Saman erum við Kennarasambandið

Skólavarðan fór yfir það helsta sem gerðist á nýliðnu þingi KÍ. Stefnan til næstu fjögurra ára var mörkuð á þinginu sem þótti takast afar vel.
Um 230 félagsmenn KÍ sátu þing sambandsins dagana 1. til 4. nóvember síðastliðinn. Þingið var það áttunda í sögu KÍ, eða frá árinu 2000. Yfirskrift þingsins var: Saman erum við Kennarasambandið. Ein heild, ein stétt, ein samtök.
Þingið fór fram á Grand Hótel Reykjavík og þegar þingfulltrúar mættu í hús um hádegisbil 1. nóvember mætti þeim fjörugur tónlistarflutningur Lúðrasveitar verkalýðsins. Góð stemning myndaðist en það hefur alltaf verið hátíðlegur bragur á þingum KÍ, þegar fulltrúar allra aðildarfélaga sambandsins koma saman til að vinna að málefnum félagsmanna og marka stefnuna til næstu fjögurra ára.
Ánægjulegt upphaf sannarlega og var þá komið að setningu þingsins. Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ, ávarpaði þingheim og sagði kjaramál verða eitt af stóru umræðuefnum þingsins. „Við munum rýna í kjaralega stöðu okkar á þingi en við vitum öll sem hér erum inni að fram undan er mikilvægasti vetur lengi í kjaramálunum. Mikilvægt er að viðsemjendur okkar komi að borðinu tilbúnir til alvöru viðræðna um að taka á okkar sérstöðu. Það er svo sannarlega þannig að í umræðu dagsins hljómar kunnuglegt stef um að ekki sé hagstætt veður til kjarasamninga á markaði en það er einfaldlega þannig í tilviki íslenskra kennara að núna er í alvörunni næst,“ sagði Magnús í ræðu sinni.
Hann sagði laun og starfskjör kennarastéttarinnar langt frá því að vera á ásættanlegum stað, hvort sem horft væri til vinnu um jöfnun launa kynjanna eða jöfnun launa milli markaða.
„Það er samfélaginu til vansa að við búum við þann launamun sem er hjá íslenskum kennurum miðað við sambærilegar stéttir og við því verður samfélagið að bregðast. Umræðan um kynjaða launabaráttu er sem betur fer uppi og það er líka kominn tími á að slátra mýtunni um réttlætanleika þess að kvennastéttir séu lægra launaðar,“ sagði Magnús Þór og bætti við að aðildarfélögin væru tilbúin að koma til komandi kjaraviðræðna með samstarfsvilja.
Hann sagði tíma kominn til að leiðrétta laun kvenna og boltinn væri hjá stjórnmálamönnum. Standa verði við gefin loforð um launaleiðréttingu. „Ég treysti því að fulltrúar viðsemjenda komi einnig til leiks lausnamiðaðir og með það að markmiði að stíga sanngjörn skref fyrir kennarastétt sem hefur nýlega sannað sig enn frekar sem framlínustétt íslensks samfélags. Mín kæru. Árið 2023 er næst. Við munum ekki slá því á frest,“ sagði Magnús Þór.
Því næst fluttu ávörp Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB, Larry Flanagan, forseti ETUCE, Christer Holmlund, framkvæmdastjóri NLS, og Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra.
Að loknum ræðuhöldum lagði formaður KÍ til að þau Kristján Möller, fyrrum ráðherra og þingmaður, og Rakel Þorbergsdóttir, fyrrum fréttastjóri, yrðu kosin þingforsetar. Jafnframt var lagt til að varaforsetar yrðu Jón Ingi Gíslason og Kristín Stefánsdóttir. Tillagan var samþykkt samhljóða.
Fjölbreytt málefnastarf
Ellefu nefndir störfuðu á þinginu, einni fleiri en á þinginu 2018. Umhverfisnefnd tók í fyrsta sinn til starfa en ákveðið var á aukaþingi KÍ, 2020-2021 að slík nefnd myndi taka til starfa fyrir Kennarasambandið. Þingið hefur það hlutverk að móta stefnuna í öllum málaflokkum til næstu fjögurra ára og æðsta vald í málefnum KÍ liggur í höndum þingsins.
Hér á eftir verður farið yfir helstu atriði sem voru ákveðin og sett í farveg á nýliðnu þingi.
Breytingar voru gerðar á lögum Kennarasambandsins, ekki margar þó. Samþykkt var að taka út 25 prósent lágmarksstarfshlutfall sem skilyrði fyrir aðild að KÍ. Þá var ákvæði um kosningu formanna breytt á þann veg að eftirleiðis verða þeir kosnir í allsherjarkosningu innan félags, kosning verður rafræn og skal standa í að minnsta kosti 72 stundir. Taka ber fram að sum aðildarfélaganna hafa hingað til verið með allsherjarkosningu við val formanns og stjórnar. Þá var samþykkt áskorun til stjórnar KÍ um að taka aðild félaga að KÍ til skoðunar og auk þess skipan trúnaðarmanna og framsal kjarasamningsumboðs til aðildarfélaganna.
Þá voru tillögur allsherjarnefndar að nýjum siðareglum fyrir félagsmenn KÍ samþykktar.
Kennarahúsið kvatt
Samþykkt var tillaga fjárhagsnefndar um að KÍ skili gamla Kennarahúsinu við Laufásveg til ríkisins og fái til baka þann kostnað sem lagður hefur verið í húsið. Það rímar við kvaðir sem fylgdu þegar ríkið gaf Kennarasambandinu húsið á sínum tíma.
Af fræðslumálum er það að segja að almenn trúnaðarmannafræðsla, forystufræðsla fyrir kjörna fulltrúa, fræðslu- og umræðufundir fyrir almenna félagsmenn um kjara- og réttindamál og fræðsla fyrir kennaranema um málefni KÍ rúmast vel innan fræðslustefnu sem var samþykkt til næstu fjögurra ára.
Í nýrri kjarastefnu KÍ má nefna að samþykkt var að laun og önnur starfskjör kennara og stjórnenda menntastofnana skuli ávallt standast samanburð við kjör annarra sérfræðinga á vinnumarkaði. Þá er í stefnunni lögð áhersla á að vinnuaðstaða uppfylli kröfur, vinnuvikan verði stytt og hópastærðir endurspegli aldur, aðstæður og samsetningu nemendahópsins hverju sinni. Stefnt skal að því að nemendafjöldi að baki hverju stöðugildi náms- og starfsráðgjafa verði að hámarki 250.
Skólamál og útgáfa
Heilmikil umræða átti sér stað um skólamálin eins og venja er. Meðal þess sem er fréttnæmt í nýrri skólastefnu KÍ er að samþykkt var að þróa kerfi um starfsþróunarvegabréf á Mínum síðum Kennarasambandsins. Starfsþróunarvegabréf eru nokkurs konar skrá sem kennarar og skólastjórnendur munu geta notað til að ígrunda og halda utan um starfsþróun sína, formlega sem óformlega.
Rannsóknasjóður KÍ var settur á laggirnar á þinginu 2018 og var árleg styrkupphæð þá fimm milljónir. Á nýliðnu þingi var ákveðið að hækka upphæðina í sjö milljónir. Fjöldinn allur af rannsóknaverkefnum hefur verið styrktur af sjóðnum.
Þá var ákveðið að stofna nýtt fagfélag nýliða í kennslu. Félaginu er ætlað að einbeita sér að faglegum jafningjastuðniningi við þá sem sem eru að stíga sín fyrstu spor í kennslu.
Hvað útgáfumál varðar þá samþykkti þingið að halda áfram að gefa Skólavörðuna, fagtímarit KÍ, út að minnsta kosti tvisvar á ári. Stefnan verður eftir sem áður að efla vef KÍ og stuðla að nauðsynlegri miðlun upplýsinga til félagsmanna, jafnt á sviði kjaramála og í faglegum málum.
Aukin meðvitund
Umhverfisnefnd þingsins lagði fram stefnu sem nýrri umhverfisnefnd KÍ verður ætlað að vinna eftir. Hinni nýju nefnd verður gert að þróa og endurskoða stefnu KÍ í loftslags- og umhverfismálum og annast kolefnisbókhald sambandsins – sem mun þegar fram í sækir auðvelda vinnu við að setja skýr og mælanleg markmið í umhverfismálum.
Umhverfisnefnd mun beita sér fyrir fræðslu um umhverfismál til félagsmanna og markmiðið er að umhverfismál verði hluti af viðfangsefnum og stefnumótun skóla. Þá verður tekið upp grænt bókhald innan Kennarasambandsins.
Öruggt starfsumhverfi
Jafnréttisstefna KÍ á sér rætur í alþjóðlegum sáttmálum á sviði mannréttinda. Jafnréttisnefnd þingsins hvetur stjórnendur á öllum skólastigum til að koma á vandaðri kennslu um alhliða kynfræðslu og ofbeldisvarnir í skólum sínum og fela þá kennslu kennurum. Þá var samþykkt ályktun um breytingar á kynjaðri orðræðu innan KÍ og auk þess var ályktað um að kennurum verði tryggt öruggt starfsumhverfi með reglulegri jafnréttisfræðslu og skipun jafnréttisfulltrúa innan skólans.
Vinnuumhverfismál voru umfangsmikil á þessu þingi sem hinum fyrri. Í stefnuskjali vinnuumhverfisnefndar segir að miða skuli að því að bæta félagslegt og líkamlegt vinnuumhverfi félagsmanna með beinni fræðslu til félags- og trúnaðarmanna.
Meðal þess sem nefndin samþykkti var að láta gera reglulega rannsókn á vinnuumhverfi kennara og halda málþing um vinnuumhverfi í samstarfi við BHM. Þá var ályktað um að gerð verði rannsókn á eftirköstum COVID-19 og áhrifum þess á vinnuumhverfi kennara, könnuð verði áhrif eins leyfisbréfs á mönnun í leikskólum og gerð verði úttekt á með hvaða hætti stytting vinnuviku hefur áhrif á vinnuumhverfi kennara.
Það kemur í hlut nefnda og ráða á vegum KÍ að framfylgja stefnumálum þings og vinna úr hugmyndum sem koma fram í ályktunum. Það verður því nóg að gera í öllum málefnaflokkum næstu fjögur árin. Næsta þing verður haldið á vordögum 2026.
Hægt er að kynna sér stefnuskjöl, ályktanir og áskoranir þings á vef KÍ.
Grein þessi birtist í Skólavörðunni, 2 tbl. 2022.

Umhverfisnefnd mun beita sér fyrir fræðslu um umhverfismál til félagsmanna og markmiðið er að umhverfismál verði hluti af viðfangsefnum og stefnumótun skóla. Þá verður tekið upp grænt bókhald innan Kennarasambandsins.