Sagði upp í byrjun heimsfaraldurs

„Kennarar hafa tvisvar farið í verkfall undanfarið en í bæði skiptin hafa verið sett lög á þá og þeim gert að sætta sig við þau laun sem ríkissáttasemjari ákveður", segir Arnheiður Björg Smáradóttir sérkennari í Noregi. Arnheiður ræddi við Atla Stein Guðmundssson, sem skrifar í Skólavörðuna frá Noregi.
Ég tók aldrei hefðbundna kennaranámið, ég kláraði BS-próf í jarðfræði og tók svo kennslufræðina í eitt ár auka og fékk þá kennsluréttindi í grunnskóla og framhaldsskóla.“ Þetta segir Arnheiður Björg Smáradóttir, sérkennari í stærðfræði og raungreinum við Verket skole sem er grunnskóli í Moss í Noregi. Ferilinn hóf hún þó allt annars staðar, sem umsjónarkennari á Stokkseyri, í fyrsta bekk.
„Ég var þar í eitt ár, en ég vildi nú alltaf heldur vera með unglingunum svo eftir árið færði ég mig yfir á Eyrarbakka og var umsjónarkennari í áttunda til tíunda bekk,“ rifjar Heiða upp eins og hún er almennt kölluð og féllst blaðamaður á að nota stuttnefnið, þvert ofan í áralanga sannfæringu sína um annað. Samhliða Eyrarbakka kenndi hún jarðfræði við Fjölbrautaskóla Suðurlands á Selfossi. Svo var komið að straumhvörfum í lífi hennar.
Árið 2010 lá leiðin yfir á meginland Evrópu, í rann frænda okkar Norðmanna. „Þá tók við eitthvað allt annað,“ segir Heiða sem flutti til Sarpsborgar til að byrja með, nágrannabæjar Fredrikstad þar sem hún nú er búsett með móðurmálskennara í öðrum grunnskóla, manni sínum Thomasi Bolverk sem þó lifir tvöföldu lífi og er innsti koppur í búri svartmálmssveitarinnar Bolverk og þekkja lesendur þar vísast til Óðinsheitið Bölverkr án mikilla tafa.
Starfsfólk og börn til aðstoðar
„Ég fékk náttúrulega ekki vinnu við kennslu þar sem ég var ekki með tungumálið á hreinu en fékk vinnu í leikskóla sem „støttepedagok“ sem snerist um að ég var með þeim börnum sem þurftu sérstaka aðstoð, ég var hálfgerður sérkennari,“ segir hún frá.
Aðspurð kveður hún leikskólastarfið hafa verið spennandi á meðan hún var að læra á nýtt þjóðfélag og nýja þjóð. „Þetta var mjög góður leikskóli og bæði starfsfólkið og börnin hjálpuðu mér mikið að læra tungumálið. Þarna var ég meira og minna í þrjú ár, ég var með fasta vinnu í eitt ár og svo var hringt í mig þegar vantaði eftir það,“ rifjar Heiða upp og segir af fyrirkomulagi sem Norðmenn kalla að vera „ringevikar“.

Arnheiður Björg Smáradóttir unir hag sínum vel í Verket skole í Moss í Noregi, lofar faglegt frelsi sitt og almennt góð kjör þótt þau mættu vitaskuld alltaf vera aðeins betri.
Þetta var þó ekki hennar eina starf innan menntakerfis Norðmanna þar sem Heiða kenndi íslenskum börnum íslensku í Sarpsborg þótt ekki hafi sá hópur verið stór. „Þetta fólst aðallega í því að hjálpa þeim að skilja norska námsefnið á íslensku, þetta voru grunnskólanemendur,“ segir kennarinn íslenski sem aðstoðaði eingöngu yngri börnin þar sem þau eldri áttu orðið einhver ár í dönsku að baki á Íslandi og danskan er hinn besti grunnur undir norskuna.
Áður en leið Heiðu lá endanlega inn í grunnskólakennslu átti þó annar leikskóli eftir að njóta krafta hennar, að þessu sinni í Bærum, nágrannabæ Óslóar, þar sem henni bauðst staða leikskólastjóra. „Ég var búin að láta það spyrjast út að ég væri að leita að einhverju föstu, ég var mikið í fastri afleysingavinnu en búin að kynnast mörgu fólki í Sarpsborg og Fredrikstad og einhver þekkti einhvern sem átti leikskóla,“ segir Heiða sposk. Hjólin fóru að snúast, stjórnunarstaða í boði sem hún rann eins og bráðið smjör inn í eftir viðtal.
Lét sig hafa aksturinn
Leikskólastjórastöðunni gegndi hún í sex ár í þessum litla leikskóla í Bærum. „Og mér leið vel þarna, lét mig nú hafa það að keyra á milli,“ segir Heiða, en aksturinn milli Bærum og Fredrikstad var klukkustund væri umferðin engin. Þannig er ástandið hins vegar ákaflega sjaldan á E6-brautinni milli Óslóar og bæjarfélaganna suður af borginni.
„Þetta var mjög fínn tími, fínir foreldrar og starfsfólk, en mig langaði alltaf aftur í skólann,“ játar Heiða og sagði að lokum upp starfinu – og það á tíma þegar ákaflega fáir lögðu fram uppsagnarbréf, jafnvel þótt litið væri til allrar heimsbyggðarinnar. Þetta var nefnilega í febrúar 2020, þegar kórónuveiran eftirminnilega tók að herða járngreip sína um gervallt mannkynið.
„En ég fékk vinnu í Moss þegar ég var búin að senda umsóknir út um allt, var boðuð í viðtal þar, var svo í leikskólanum út júní og byrjaði í skólanum í ágúst,“ rifjar Heiða upp en Moss er í tæplega 40 kílómetra akstursfjarlægð frá heimili hennar í Fredrikstad.
„Á þessum tíma var mjög erfitt að komast í viðtöl, allir voru svo hræddir og allt var í gegnum tölvuna og það er öðruvísi að vera í atvinnuviðtali í gegnum tölvu en að vera á staðnum,“ segir Heiða af tíma sem lagðist þungt á atvinnulíf og allt annað líf nánast um allan heim.
Þarna var hins vegar komin staðan í Verket skole þar sem Heiða kennir enn þann dag í dag og unir hag sínum sem best verður á kosið. „Ég er með sérkennslubörnin í áttunda til tíunda bekk í stærðfræði og náttúrufræði og svo er ég með hópa af nemendum sem eru ekki sérkennslunemendur en þurfa bara meiri hjálp í stærðfræði. Þetta eru þá allt að 10 til 15 nemenda hópar og ég er bara að kenna þeim sömu stærðfræði og kennd er í þeirra bekkjum nema hvað ég kenni hana bara á aðeins annan hátt,“ útskýrir sérkennarinn í Moss.
Aginn hefur alltaf verið góður í norskum skólum en vandamálin hafa samt verið að aukast þar núna undanfarin ár.
Skólinn allur ókeypis
Heiða er beðin að bera saman norska og íslenska grunnskóla og bera niður á þeim vettvangi sem henni þóknast. „Mér finnst stundum eins og hlutunum sé voðalega mikið stýrt, það upplifði ég ekki á Íslandi, eða ekki eins. Stærsti munurinn er samt að í Noregi er skólinn allur ókeypis,“ heldur Heiða áfram og er beðin að útskýra þau miklu fríðindi nánar.
„Blýantar, tölvur og allt er ókeypis og líka í framhaldsskólanum og það er rosalega stór munur. Þótt margt sé ókeypis á Íslandi þarf alltaf að kaupa eitthvað. Þegar dóttir mín byrjaði í framhaldsskóla hérna fékk hún tölvu og bakpoka og allt sem hún þurfti fyrir skólann, ég þurfti ekki að borga krónu,“ segir Heiða og játar að fyrirkomulagið hafi komið flatt upp á hana.
„Að öðru leyti er þetta ósköp líkt, nemendur, námskrá og hvaðeina. Ég er auðvitað ekkert inni í málum á Íslandi núna hvað snertir agavandamál og svoleiðis. Aginn hefur alltaf verið góður í norskum skólum en vandamálin hafa samt verið að aukast þar núna undanfarin ár,“ segir hún frá án þess að geta bent sérstaklega á ástæður eða hvað hafi breyst að þessu leyti.
„En hér er náttúrulega skóli fyrir alla. Allir fara í sömu skólana þar sem er sama formið og verið að gera það sama. Það passar náttúrulega ekkert fyrir alla,“ segir Heiða og vísar hér ekki sérstaklega til barna innflytjenda heldur alveg eins mikið til rammnorskra barna í báðar ættir.
Meira efni til yfirferðar
„Um það bil helmingurinn af nemendunum í mínum skóla eru innflytjendur og það er ekkert meiri órói út af því,“ segir Heiða og svarar því aðspurð að mjög mismunandi sé tekið á agavandamálum í Noregi eftir skólum.
„Auðvitað eru verklagsreglur í gildi sem Stórþingið setur en það fer samt mjög mikið eftir skólastjóra og aðstoðarskólastjóra hvernig tekið er á hlutunum. Mér finnst til dæmis tekið mjög vel á agavandamálum hjá okkur, við erum með skólastjóra, aðstoðarskólastjóra og deildarstjóra sem eru mikið inni í skólanum, vita hvað er að gerast og þekkja nemendurna auk þess sem við fylgjum verklagsreglunum. Mér finnst við taka mjög vel á þessum agavandamálum og mér finnst það bera árangur,“ segir Heiða og hrynjandi málrómsins verður eilítið harðari eitt andartak.
Eitt úrræðið sé að bjóða nemendum með alvarleg agavandamál tímabundið pláss annars staðar þar sem nemendur eru mun meira í verklegum hlutum, til dæmis að byggja eitthvað. Þar séu nemendurnir í minni hópum og þetta fyrirkomulag þykir Heiðu hafa gefist vel. „Maður sér mikinn mun,“ segir hún.
Enn fremur kemur Heiða auga á þann mun að gjarnan sé meira efni til yfirferðar í norska skólakerfinu, til dæmis sé nokkuð um að kennsla í framhaldsskólastærðfræði teygi sig inn í grunnskólann til að gefa nemendum þar forskot. „En skólaárið er líka langt hérna, kennt alveg til 20. júní og svo byrjað aftur um miðjan ágúst,“ segir hún og talið snýst að kaupum og kjörum.
Norskir móðurmálskennarar eru alla vega.
Þetta er Thomas Bolverk, maður Heiðu, sem einnig kennir við grunnskóla á svæðinu.
Hann er auk þess innsti koppur í búri svartmálmssveitarinnar Bolverk.
Sex saman á skrifstofu
„Þetta er miklu betra hérna. Ég veit að launin hafa reyndar hækkað á Íslandi en ég veit að launin eru betri hérna og kaupmátturinn er líka mun meiri. Á Íslandi þurfti ég að vinna í tveimur skólum til að eiga aðeins aukalega en hér er þetta allt öðruvísi. Maður hefur meira frelsi og meiri tíma fyrir fjölskylduna,“ segir Heiða af kjaramálum.
Hún kveður starfsumhverfið á sínum vinnustað hið ágætasta en Verket skole er um þrjátíu ára gamall. „Við erum sex kennarar saman á skrifstofu sem stuðlar að góðu samstarfi, auk þess sem það skapar góðan anda. Okkur er raðað eftir því hvaða bekkjum við kennum og hvaða fög, það verður einhvern veginn þéttara,“ heldur hún áfram og kveðst sátt við stjórnendur og starfsumhverfi í Moss. „Annars myndi ég ekki keyra þangað á hverjum degi,“ bætir hún glettnislega við.
Aðspurð segir hún kennaraskort í Noregi, hann sé að minnsta kosti yfirvofandi. „Kennarar hafa tvisvar farið í verkfall undanfarið en í bæði skiptin hafa verið sett lög á þá og þeim gert að sætta sig við þau laun sem ríkissáttasemjari ákveður,“ segir Heiða. Þegar þetta gerðist síðast hafi margir kennaranemar ákveðið að hverfa frá námi.
„Okkur fannst eins og verkfallsrétturinn hefði verið tekinn af okkur en komum svo ágætlega út úr síðustu kjarasamningum sem ég held að hafi haft áhrif í sambandi við námið. En kennarastaðan er ekkert óskastarf margra ungra í dag og það mun verða kennaraskortur. Núna er það líka þannig að til að mega kalla þig kennara þarftu að vera með meistaragráðu, fyrir nokkrum árum nægði bakkalárgráða,“ útskýrir Heiða.
Það standa því margir kennarar frammi fyrir því að þurfa að bæta við sig námi samhliða vinnu, „fyrir ekkert svo rosalega mikið. Kennarar í Noregi geta ekki fengið hærri laun en þeir eru komnir með eftir fimmtán ár í starfi. Þannig að sá sem útskrifast 25 ára er kominn upp í topp fertugur, þá færðu engin fleiri launaþrep, bara kjarasamningshækkanirnar,“ segir Heiða og þær hækkanir eru hóflegar í Noregi, um það ríkir þjóðarsátt þar í landinu og hefur gert um áratugi – hóflegar launahækkanir og mikill stöðugleiki. Í raun Noregur í hnotskurn.
Komið er að lokaspurningu, ófrávíkjanlegum vatnaskilum allra viðtala. Er íslenski kennarinn ánægður í starfi sínu í Noregi? „Já, ég er mjög ánægð,“ svarar Heiða um hæl, „hér er faglegt frelsi þótt fylgja þurfi námskrá og lögum auðvitað. Ég fæ gott frí, ég get unnið fyrir utan kennslutímann og bara þegar ég vil. Já, ég er ánægð. Ég held ég muni bara vera kennari þar til ég fer á eftirlaun,“ segir Arnheiður Björg Smáradóttir, grunnskólakennari við Verket skole í Moss í Noregi, og þar leggjum við talið.
