Saga Google, svefn og kennarastofuspjall

Fréttir|27. mars 2021

Það er tilvalið að stúdera svefninn og lesa Skólaþræði að vinnudegi loknum. Margt annað má líka gera, svo sem slaka á fyrir fram sjónvarpið og njóta vandaðrar þáttagerðar. Hér eru hugmyndir Skólavörðunnar um dægrastyttingu.

Ritstjórn Skólavörðunnar mælir með þessu

DNA

(Þættir á RÚV)

DNA eru danskir sakamálaþættir um lögreglumanninn Rolf Larsen. Fimm árum eftir hvarf barnungrar dóttur hans finnur hann sönnun þess að mögulega sé hún enn á lífi. Hann leitar svara um leið og hann vinnur að svipuðu máli með aðstoð fransks rannsóknarlögreglumanns. Óbærileg spenna og djúpar siðferðilegar spurningar. Allt sem einkennir úrvals danskt sjónvarpsefni. 

---

Skólaþræðir

(Vettvangur fyrir skólafólk)

Á vefsíðunni Skólaþræðir eru birtar greinar um þróunar- og umbótastarf í skólum og fréttir af áhugaverðu skólastarfi. Óhætt er að mæla með heimsókn á þessa vefsíðu enda þjónar síðan öllum skólastigum og birtir mjög fjölbreytt efni.

---

Þess vegna sofum við

(Forlagið: bók og hljóðbók)

Þess vegna sofum við er býsna mögnuð lesning um mikilvægi svefnsins og hvaða skelfilegu afleiðingar svefnleysi getur haft á líkama og sál. Höfundurinn Matthew Walker taugasérfræðingur útskýrir leyndardóma svefnsins með afar aðgengilegum hætti; flókin líffræðileg atriði verða skiljanleg með frábæru líkingamáli Walkers. Leikarinn Arnar Jónsson fer líka á kostum í hljóðbókinni; svo þýður er lesturinn að auðvelt er að detta út af við hlustun. En það er einmitt það sem höfundurinn vill. 

---

Kennarastofan

(Hlaðvarp þar sem kennarar spjalla)

Nýtt hlaðvarp þar sem Þorsteinn Sürmeli, kennari við Keili á Ásbrú, ræðir við kennara um nám og kennslu í breyttum heimi. Í fyrsta þættinum ræðir hann við Heiðu Björgu Árnadóttur, kennara á unglingastigi í Stapaskóla. Þau spjalla um teymiskennslu sem kennarar við skólann hafa verið að þróa. Kennarar eru hvattir til að tísta með myllumerkinu #kennarastofan á Twitter. 

---

Land of the Giants

(Hlaðvarp)

Viltu vita allt um sögu Google? Áhugaverð umfjöllun um fyrirtækið Google þar sem fjallað er um hugsjónirnar, allar tilraunirnar og nýsköpunina og hvernig þetta veldi varð til sem snertir líf flestra á hverjum degi. Einnig eru þáttaraðir um Netflix og Amazon.   

---

Höllin

(Netflix)

Tökur standa nú yfir á fjórðu seríu Borgen eða Hallarinnar eins og þáttaröðin kallast á íslensku. Hægt er að horfa fyrstu þrjár seríurnar á Netflix og verða engin svikin af því. Sidse Babett Knudsen er náttúrulega frábær í hlutverki stjórnmálakonunnar Birgitte Nyborg. Það getur verið ágætt að rifja gömlu þættina upp en þeir hófu göngu sína árið 2010. Ráðgert er að Borgen 4 verði frumsýnd snemma á næsta ári.  

---

Meðmælin birtust í Skólavörðunni, 1. tbl. 2021