Sælukot skrifar undir samkomulag um viðræðuáætlun
Fréttir|15. október 2019

FL og Sælukot hafa gert samkomulag um viðræður og eingreiðslu.
Kennarasamband Íslands, fyrir hönd Félags leikskólakennara, og Leikskólinn Sælukot, hafa skrifað undir samkomulag um viðræðuáætlun vegna komandi kjarasamninga.
Samkomulagið kveður meðal annars á um eingreiðslu að upphæð 105 þúsund krónur sem verður greidd út um næstu mánaðamót, 1. nóvember. Starfsfólk í fæðingarorlofi fær einnig eingreiðslu. Það er sameiginlegur samningur aðila að eingreiðslan sé hluti fyrirhugaðra launabreytinga á gildistíma hinna endurnýjuðu kjarasamninga og verði metin sem hluti af kostnaðaráhrifum þeirra.
Skrifað var undir samkomulagið 9. október síðastliðinn.