Rýnt í kennslu framhaldsskólakennara

Fréttir|17. mars 2025
Rannsóknasjóður KÍ

„Mat á gæðum kennslu í hugsandi skólastofu í stærðfræði á framhaldsskólastigi: Rýnt í kennslu framhaldsskólakennara,“ er titill rannsóknar sem Eyþór Eiríksson, kennari við MK, og Jóhann Örn Sigurjónsson hafa gert. Eyþór hlaut styrk úr Rannsóknasjóði KÍ á síðasta ári.

Hugsandi skólastofa (Liljedahl, 2020; Liljedahl, í prentun) er kennslunálgun sem snýst um að skapa rými þar sem hugsun er í fyrirrúmi, nemendur vinna saman að verkefnum sem eru hönnuð til að stuðla að skilningi nemenda á nýjum hugtökum og hugmyndum og leita skilnings í samræðum við samnemendur og kennara. Í þessari rannsókn var fylgst með kennslu eins stærðfræðikennara í íslenskum framhaldsskóla. Markmið rannsóknarinnar var að veita kennaranum endurgjöf á gæði eigin kennslu þegar kennt er eftir hugmyndafræði hugsandi skólastofu og veita innsýn í sjálfsrýni hans á niðurstöðunum. Þessi rannsókn er framkvæmd af starfandi kennara í samstarfi við meðrannsakanda. Rannsóknin hefur því bæði eiginleika starfendarannsóknar, þar sem kennarinn (Eyþór) rannsakar eigið starf, og skólastofurannsóknar meðrannsakandans (Jóhann) sem ytri aðili framkvæmir.

Á Íslandi virðast hefðbundnir kennsluhættir ríkjandi í stærðfræðikennslu bæði á efsta stigi grunnskólans og í framhaldsskólum þar sem kennslan hefst gjarnan á innlögn kennarans og í kjölfarið vinna nemendur æfingar og verkefni hvert fyrir sig, oft byggt á innlögn kennarans (Anna Helga Jónsdóttir o.fl., 2014; Ingvar Sigurgeirsson o.fl., 2018; Þóra Þórðardóttir og Unnar Hermannsson, 2012).  Áhersla er á einstaklingsvinnu og að nemendur læri tilteknar aðferðir til að leysa ákveðnar gerðir verkefna (Birna Svanbjörnsdóttir o.fl., 2023; Guðný Helga Gunnarsdóttir og Guðbjörg Pálsdóttir, 2015; Savola, 2010). Slíkir kennsluhættir virðast leiða til þess að viðmið um hugsun, skilning, umræður og rökræður verða gjarnan út undan (Anna Helga Jónsdóttir o.fl., 2014). Í slíku námsumhverfi reynist kennurum oft vandasamt að viðhalda kröfum um rökhugsun í kennslustundum og algengt er að kennarar dragi úr áskorun verkefna (Jóhann Örn Sigurjónsson og Berglind Gísladóttir, 2020).

Hugsandi skólastofu er stundum lýst sem ákveðinni andstæðu við hefðbundna kennsluhætti. Í hugsandi skólastofu er samvinna nemenda í tveggja til þriggja manna hópum lykilatriði og allir hópar vinna að sama verkefninu. Höfuðáhersla er lögð á hugsun, skilning, sjálfstæði nemenda, að þau sæki sér upplýsingar og rökstuðning frá samnemendum og að kennari spyrji svokallaðra hugsunar-hvetjandi spurninga.

Í hugsandi skólastofu er samvinna nemenda í tveggja til þriggja manna hópum lykilatriði

Gögnum var safnað með hljóðupptökum og áhorfi í þremur kennslustundum þar sem einum nemendahóp var fylgt eftir í eina kennsluviku. Nemendahópurinn sótti kennslustundirnar sem hluta af áfanga á þriðja þrepi Aðalnámskrár framhaldsskóla þar sem fjallað var um heildun, deildajöfnur, runur og raðir. Í hópnum voru 17 skráðir nemendur og í tímana mættu 13-14 nemendur. Nemendur voru á 17.-22. aldursári. Kennarinn hóf störf sem stærðfræðikennari árið 2020 og hefur unnið eftir hugmyndafræði hugsandi skólastofu frá vorönn 2022. Þegar gögnum var safnað, í janúar 2024, vann hann eftir atriðum í fyrstu þremur af fjórum innleiðingarskrefum hugsandi skólastofu.

Gæði kennslunnar voru metin út frá greiningarrammanum PLATO (Grossman, 2015) fyrir yfirþættina faglegar kröfur og stigskiptan stuðning. Faglegar kröfur samanstanda af samræðum í skólastofunni og vitsmunalegri áskorun. Stigskiptur stuðningur samanstendur af sýnikennslu og notkun sýnidæma, kennslu og beitingu námsaðferða og endurgjöf.

Samræður byggja á svörum nemenda og hafa þau tækifæri til að útskýra, segja frá og beita virkri hlustun

Helstu niðurstöður voru að í kennslustundunum voru faglegar kröfur almennt metnar á efri þrepum á meðan undirþættir stigskipts stuðnings voru metnir á bæði efri og neðri þrepum. Dæmi voru um sýnikennslu og kennslu námsaðferða á efsta þrepi, en endurgjöf var aldrei metin á efsta þrepi.

Niðurstöðurnar sýna fram á að í íslensku samhengi er hægt að nota aðferðir hugsandi skólastofu til að búa til menningu þar sem nemendur vinna í sameiningu að krefjandi viðfangsefnum sem reyna á greinandi hugsun. Kennari hefur svigrúm til að biðja um rökstuðning og útskýringar. Það gefur nemendum tækifæri til að dýpka skilning sinn á verkefninu og lausnaferlinu. Samræður byggja á svörum nemenda og hafa þau tækifæri til að útskýra, segja frá og beita virkri hlustun. Hugsandi skólastofa virðist gefa tækifæri til að veita nemendum endurgjöf sem kennarinn hefði þó getað nýtt sér betur. Endurgjöfin var oft stutt og einungis á formi hróss til nemenda en hefði þurft að veita nemendum tækifæri til að bæta eigin vinnu. Niðurstöður gefa einnig til kynna að hópumræða eftir vinnu og glímu nemenda við stærðfræðihugtök skapi aðstæður til sýnikennslu og samræðna á efstu þrepum og sé heppilegri heldur en að hugtökin séu kynnt fyrir nemendum áður en þau vinna með þau.

Hafa ber í huga að í þessari rannsókn er úrtakið aðeins einn nemendahópur hjá einum kennara og að notuð var virk kennsluaðferð sem hugsanlega mætti geta sér til um að samræmdist vel sumum af þeim matskvörðum sem notaðir voru. Áfanginn sem nemendahópurinn tók er á þriðja þrepi Aðalnámskrár framhaldsskóla og því ekki skylduáfangi hjá öllum brautum. Nemendahópurinn er þannig einungis samsettur af nemendum sem velja sér braut sem krefst stærðfræðiáfanga á þriðja þrepi. Einnig ber að athuga að fjöldi nemenda í tímum þegar gögnum var safnað var einungis 13-14 sem er minna en almennt gengur og gerist í áföngum í framhaldskólum á Íslandi. Því er alhæfingargildi niðurstaðna takmarkað þó tilvistarsönnunin sé gild (Schoenfeld, 2007).

HÖFUNDAR: Eyþór Eiríksson og Jóhann Örn Sigurjónsson

 

Lesa ítarlega grein á vef Netlu

Ritrýnd grein um niðurstöðurnar hefur verið birt á vef Netlu, ásamt upplýsingum um höfundana. 

Hlekkur á greinina