Ryðjum brautina: Metum konur af erlendum uppruna að verðleikum

Fundað um stöðu kvenna af erlendum uppruna í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna 8. mars.
Kennarasmband Íslands, ASÍ, BHM, BSRB, Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga Fíh, Kvenréttindafélag Íslands og Samtök starfsmanna fjármálafyrirtækja SSF, standa að viðburðinum Ryðjum brautina: Metum konur af erlendum uppruna að verðleikum. Fundurinn fer fram í gegnum streymi á milli klukkan 12 og 13, bæði á íslensku og ensku og túlkað verður á bæði tungumál.
Hér er hægt að fylgjast með í streymi. Upptaka af fundinum verður gerð aðgengileg að honum loknum.
Dagskrá
Fundarstýra: Lenya Rún Taha Karim, þingkona Pírata
Opnunarávarp: Tatjana Latinovic, formaður Kvenréttindafélags Íslands
Aðalfyrirlestur: Anna Wojtynska, nýdoktor við Háskóla Íslands: 'Trapped in migrants sector?' Foreign women in Icelandic labour market
Erindi: Merab Glenn Atuhyre, MPA og atvinnuleitandi: Reynsla mín af íslenskum vinnumarkaði
Erindi: Leila Floresca Esteban, hjúkrunarfræðingur: Reynsla mín af íslenskum vinnumarkaði
Erindi: Aleksandra Leonardsdóttir, sérfræðingur í fræðslu og málefnum innflytjenda hjá ASÍ: Samantekt, hvað getur verkalýðshreyfingin gert?
Vinnandi konur tóku höndum saman
Alþjóðlegur baráttudagur kvenna var fyrst haldinn 28. febrúar 1909 í Bandaríkjunum, þá í tengslum við bandaríska jafnaðarflokkinn. Árið 1910, á ráðstefnu Alþjóðasamtaka sósíalískra kvenna í Kaupmannahöfn, sem bar yfirskriftina Vinnandi konur, lagði Clara Zetkin, kvenréttindakona og leiðtogi kvennadeildar þýska jafnaðarmannaflokksins, til að stofnað yrði til alþjóðlegs baráttudags kvenna.
Tillagan hlaut samróma samþykki þeirra 130 kvenna sem sóttu fundinn frá um sextán mismunandi löndum. Dagsetningin var þó aðeins á reiki í upphafi en ákveðið var að daginn skyldi halda hátíðlegan árlega í mars og á sunnudegi, eina frídegi verkakvennanna. Hér á landi var fyrst minnst á daginn á árshátíð Kvenfélags Sósíalistaflokksins 8. mars 1948.