Rúmlega helmingur hefur greitt atkvæði

Rúmlega fimmtíu prósent félagsmanna FSL og SÍ hafa greitt atkvæði um nýja kjarasamninga félaganna. Atkvæðagreiðslu lýkur á hádegi á morgun, föstudaginn 1. september.
Alls höfðu 51,77 prósent félagsmanna í Félagi stjórnenda leikskóla (FSL) greitt atkvæði um nýjan kjarasamning félagsins á hádegi í dag.
Hjá Skólastjórafélaginu var staðan sú á hádegi að 60 prósent félagsmanna höfðu greitt atkvæði.
Atkvæðagreiðslan hófst á hádegi á mánudaginn og henni lýkur á morgun, föstudaginn 1. september, klukkan 12 á hádegi. Félagsmenn eru hvattir til að taka þátt. Kosning fer fram á Mínum síðum á vef KÍ.
FSL og SÍ skrifuðu hvort um sig undir kjarasamning við Samband íslenskra sveitarfélaga 18. ágúst síðastliðinn. Gildistími samninganna er 1. október 2023 til 31. maí 2024.