Rök gegn þriggja ára framhaldsskóla
„Þriggja ára stúdentsnám sem tekur við af íslenskum grunnskólum er gengisfelling á stúdentsprófinu og því má búast við að margir verði að leggja á sig dýrt aðfararnám að háskóla. Það er pólitískt hugleysi að gera þetta allt án þess að hin pólitíska umræða hafi átt sér stað í almannarýminu," skrifar Brynjólfur Eyjólfsson, kennari við MA, í nýjum Vikupósti sem birtur er á vef Félags framhaldsskólakennara.
Brynjólfur segir að með því að „stytta námið með því einu að klippa ofan af því er í besta falli klaufalegur misskilningur á eðli skólakerfisins en í versta falli hrein og klár heimska". Hann segir fyrirliggjandi tillögu í Menntaskólanum á Akureyri fela í sér að í raun sé verið að leggja niður eðlisfræðibrautina og þar með gera nemendum ófært að ljúka raungreinastúdentsprófi sem myndu opna þeim allar leiðir inn í háskóla. Þá segir Brynjólfur fullyrðingar um að brottfall minnki þegar námið styttist vera hugarburð sem ekki byggi á neinum rökum.