Röddin – atvinnutæki kennara

Fréttir|30. maí 2024

Doktor Valdís Jónsdóttir, sérfræðingur um rödd, fjallar um röddina sem atvinnutæki, hvernig hægt er að vernda hana og beita henni í erfiðum aðstæðum, í Skólavörðunni.

Röddin er atvinnutæki kennara, án þess að vera þó viðurkennd sem slíkt. Kennarar eru í einni mestri hættu á að fá raddveilur en rannsóknir sýna að upp undir helmingur kennara þjáist af álagseinkennum í raddfærum.

Langalgengustu raddveilurnar eru raktar til rangrar raddbeitingar og því þekkingarleysi á rödd, raddheilsu og raddfærum sem veldur henni. Auk þess er eðli starfsins og umhverfisáhrif meðal helstu ástæðna raddveila kennara, en raddheilsa margra kennara stenst ekki það raddálag sem fylgir starfinu. Þá eru óvistvæn umhverfisáhrif til að mynda fólgin í því að þurfa að tala í hávaða, í lélegri hljóðvist eða við slæmar kringumstæður eins og til dæmis utandyra eða í þurru lofti.

Hvað er hægt að gera þegar vöðvar í radd- og talkerfi gefa sig og hvernig er hægt að snúa þróuninni til betri vegar þannig að það verði auðveldara að tala, röddin endist betur og líkamleg þreyta minnki?

Dr. Valdís Jónsdóttir, sérfræðingur um rödd, lumar á nokkrum heilræðum og góðum æfingum fyrir kennara.

Heilræði

  1. Hitið röddina upp, til dæmis með því að humma lag.
  2. Drekkið reglulega vatn yfir daginn.
  3. Liðkið kjálka, tungu, kinnar og varir þegar tækifæri gefst.
  4. Talið í eigin tónhæð, ekki spenna röddina upp eða kalla, frekar ganga til viðkomandi.
  5. Gætið þess að tala og lesa á nægu lofti.
  6. Syngið alltaf í eðlislægri tónhæð.
  7. Talið alltaf með slakan kjálkann svo tungan liggi milli jaxla og forðist að tala með samanbitnar tennur.
  8. Talið alltaf það hægt að orð renni ekki saman, heldur heyrist hvert orð og endingar hvers orðs.
  9. Kveðið fast að samhljóðum og leggið áherslu á hvert atkvæði.
  10. Hafið stuttar þagnir.
  11. Reynið að finna fyrir hreyfingu talfæra.

 


Hægt er að kynna sér málið betur í bókinni Talandinn, er hann í lagi? - Vísindi á mannamáli eftir Valdísi, eða með því að skoða vefsíðu hennar.