Rödd verkalýðs á að heyrast...
...af hverju er ekki verkalýðsflokkur á Íslandi?
Á baráttudegi verkalýðsins í ár blésu vindar í Reykjavík sem vöktu von um að straumhvörf í þróun íslensks samfélags gætu breyst úr draumi í veruleika. Kraftur, jarðtenging, eining og hreinn tónn var meðal þess sem andaði frá kröfugöngu og baráttufundi níu til tólf þúsunds manns á Ingólfstorgi. Þessa hreinu orku liggur á að virkja svo sannur tónn verkalýðsins megi fylla upp í holann hljóm stjórnmála í dag.
Rödd verkalýðsins þarf að heyrast í stjórnmálum til að skapa það jafnvægi sem er nauðsynlegt öllu samhengi. Gangverk heildarinnar er stopp sökum ójafnvægis í stjórnunarteymi landsins. Vanstillt súrefnisdælan veldur í senn hættulegum þrengingum og útvíkkunum í blóðrásarkerfi samfélagsins. Inn í stjórnunarjöfnuna sárvantar verkalýðsflokk með hugsjónir um að skapa samfélag heildarinnar, samfélag með velferð allra í fyrirrúmi.
Sú sviðsmynd samfélagsþróunar sem blasir við er hryggileg.
Stjórnkerfið og stjórnsýslan er sýndarveruleikinn einn. Veggir og glerþök, þykk og þunn, verða sýnilegri með degi hverjum í gjörvallri stjórnsýslunni. Fyrirbrigðið sérhagsmunir ofar heildarhagsmunum leggst á landann eins og vírus sem ekkert fær grandað. Hið ósýnilega handarband auðs og valds hefur nálgast hæðir ónæmis og almenningur horfir á í beinni.
Fólk er í höftum – óttans, auðs og valds
Valdastéttin úthlutar gæðum sér og sínum til handa, s.s: arði af auðlindum þjóðar, stjórn banka og lífeyrissjóða – verkalýðsflokkur sæti ekki aðgerðarlaus hjá, er það?
Verkalýðsflokkur myndi vinna af alvöru að stærsta réttlætis- og kjaramáli launafólks og koma aftur á því fyrirkomulagi að laun fólks séu í sömu mynt og lánin sem það getur tekið. Í heilbrigðu „ósýktu“ samfélagi væri þetta fyrirkomulag fráleitt. Hinir útvöldu vilja óbreytt ástand og enda eiga þeir hina verðtryggðu krónu. Auk þess sem að í úthlutun á umsýslu hinnar verðtryggðu krónu felast gríðarleg gæði útvöldum til handa – þá fylgir verðtryggða krónan öðrum úthlutuðum gæðum í bónus, að ótöldum hlunnindum einokunarumhverfis. Það er þyngra en tárum taki að horfa upp á hinn þögla meirihluta í landinu vera settan undir glerþak sem ekki hið einasta er orðið tvöfalt heldur stefnir hraðbyri í að það verði skothelt. Verkalýðsflokkur myndi ekki samþykkja fyrirkomulag sem viðheldur gríðarlegri misskiptingu í hagkerfinu.
Verkafólk hefur stóru hlutverki að gegna við þróun samfélagsins hér eftir sem hingað til. Öxlum okkar ábyrgð, hendum óttanum, látum rödd okkar heyrast, stuðlum að samfélagsþróun sem hefur réttlæti, jafnræði og lýðræði að leiðarljósi.
Lýðræði í hættu
Sköpum stjórnskipulag þar sem arður af auðlindum þjóðarinnar er nýttur í þágu samfélagsins sem heildar, stjórnkerfi og stjórnsýslu með vegakerfi og umferðarreglur sem fara ekki í manngreinarálit, samfélag sem sættir sig ekki við spillingu, samfélag sem hefur velferð allra að leiðarljósi, samfélag sem einkennist af mannlegri samkennd þar sem borin er virðing fyrir manngildi hvers og eins, stjórnmálamenningu þar sem ráðamenn koma fram við okkur eins og fólk.
Stjórnmálamenning þessa lands hefur sett lýðræðið í hættu. Núverandi kerfi þarf að hreinsa allverulega að innan og dugir hvergi nærri einskiptis detox-meðferð til. Rödd verkalýðsins þarf að heyrast alls staðar og alltaf. Sýnum að við þorum, getum og viljum. Byggjum réttlátt samfélag.
Leiðarljósið er að finna í menntastefnu þjóðarinnar – það læra börnin sem fyrir þeim er haft
Það er nauðsynlegt að horfa til hlutverks skólakerfisins í uppbyggingu og endurmótun samfélagsins. Einstaklings- og samfélagsmiðuð gildi almennrar menntunar eru skilgreind sem grunnþættir menntunar.
Grunnþættir menntunar eru á ábyrgð okkar allra, það þarf heilt samfélag til að ala upp barn. Það er grundvallaratriði að stjórnkerfið og stjórnsýslan endurspegli þessi gildi. Það læra börnin sem fyrir þeim er haft.
• Læsi: Meginmarkmið læsis er að nemendur séu virkir þátttakendur í að umskapa og umskrifa heiminn með því að skapa eigin merkingu og bregðast á persónulegan og skapandi hátt við því sem þeir lesa með hjálp þeirra miðla og tækni sem völ er á.
• Sjálfbærni: Sjálfbærni snýst um að hugsa um samspil umhverfis, efnahags, samfélags og velferðar. Algengasti skilningur á hugtökunum sjálfbærni og sjálfbær þróun felur í sér að við skilum umhverfinu til afkomendanna í ekki lakara ástandi en við tókum við því og við leitumst við að mæta þörfum samtíðar án þess að skerða möguleika komandi kynslóða til að mæta þörfum sínum.
• Lýðræði:Í lýðræði taka einstaklingar afstöðu til siðferðilegra álitamála og virkan þátt í mótun samfélagsins. Í lýðræðisríki þurfa borgararnir að búa við mannréttindi og ráða öllum meiriháttar málum sínum sameiginlega. Forsenda lýðræðis er samábyrgð, meðvitund og virkni borgaranna sem gerir þá færa um að taka þátt í að móta samfélag sitt og hafa áhrif nær og fjær. [...] Gert er ráð fyrir því að börn og ungmenni læri til lýðræðis með því að læra um lýðræði í lýðræði.
• Jafnrétti:Jafnréttismenntun felur í sér gagnrýna skoðun á viðteknum hugmyndum í samfélaginu og stofnunum þess í því augnamiði að kenna börnum og ungmennum að greina þær aðstæður sem leiða til mismununar sumra og forréttinda annarra.
• Heilbrigði og velferð:Heilbrigði byggir á andlegri, líkamlegri og félagslegri vellíðan án tillits til félagslegrar stöðu. Það ræðst af flóknu samspili einstaklings, aðstæðna og umhverfis.
• Sköpun: Í sköpun felst að móta viðfangsefni og miðla þeim, búa til, gera eitthvað nýtt eða öðruvísi en viðkomandi kann eða hefur gert áður. [...] Sköpun brýtur hefðbundin mynstur, reglur og kerfi og veitir nýja sýn á fyrirbæri og viðteknar hugmyndir. Sköpun byggir á gagnrýnni hugsun og aðferðum sem opna sífellt nýja möguleika og því skiptir sköpunarferlið ekki síður máli en afrakstur verksins. Í sköpuninni felst einnig hagnýting hugmynda.
Sigrún Grendal, formaður Félags kennara og stjórnenda í tónlistarskólum