Risaskref í sögu Kennarasambandsins

Rödd Íslands á alþjóðavettvangi er sterk og á henni er mark tekið, skrifar Magnús Þór Jónsson, í leiðara Skólavörðunnar.
Það hefur oft verið erfiðara að finna sér málefni til að ræða í leiðara okkar ágætu Skólavörðu en að þessu sinni. Undanfarna mánuði, allt frá því í janúar 2023, hefur meginverkefni Kennarasambands Íslands verið að gera kjarasamning fyrir öll aðildarfélög sambandsins.
Nú í fyrsta skipti í 25 ára sögu sambandsins var ákveðið að skipa viðræðunefnd allra aðildarfélagsformanna undir stjórn formanns KÍ með það skýra markmið að verkefnið um jöfnun launa milli markaða yrði meginefni kröfugerðar okkar. Skýr skil í því ferli birtust svo síðasta haust þegar við undirbjuggum, og síðan fórum í, verkfallsaðgerðir til að ná fram markmiðum okkar.
Næstu fimm mánuðir, allt þar til við undirrituðum að lokum innanhússtilboð ríkissáttasemjara, voru í einu orði magnaðir. Frá upphafi fundum við í viðræðunefndinni fyrir gríðarlegum stuðningi félagsfólks. Það kom fram í afgerandi niðurstöðum atkvæðagreiðslna vegna verkfalla þar sem aðgerðir voru undantekningalítið samþykktar með nær öllum greiddum atkvæðum.

Kennarar fjölmenntu á Austurvöll til að krefjast betri kjara. Myndina tók Anton Brink ljósmyndari.
Stuðningurinn og styrkurinn kom líka fram í tugum greinaskrifa, sem í raun mætti segja að hafi gert ákveðna fjölmiðla að allt að því útibúi okkar útgáfusviðs. Það var stórkostlegt að lesa hugleiðingar okkar fólks í ólíkum skólagerðum. Finna stuðninginn vissulega og greina þann metnað fyrir starfinu sínu sem býr í íslenskum kennurum.
Svo verð ég að fá að minnast á fundina og óundirbúnu viðburðina þar sem hópar kennara komu saman til að efla samstöðu stéttarinnar og sýna áþreifanlegan baráttuhuginn. Háskólabíó fullt út úr dyrum, fjölmennir fundir á Ísafirði, Akureyri, Akranesi, Egilsstöðum, Selfossi og víðar um land allt. Samstöðugöngur og heimsóknir á bæjarskrifstofur. Ógleymanlegt kvöld á Austurvelli þar sem kennarar fylltu völlinn til að minna Alþingi á kröfur okkar á fyrsta starfsdeginum. Vá. Bara vá!
Áskorun okkar um að fjárfesta í kennurum fékk að lokum hljómgrunn. Ábending okkar um að með því væri verið að efla fagmennsku og auka stöðugleika íslensks skólastarfs, nemendum okkar og framtíðinni til heilla. Það tók vissulega tíma og tók á.

En – þetta er bara fyrsta skrefið. Jöfnun er enn ekki náð.
Á þessu tímabili gerðist það sem við erum óvön. Stjórnmálin fengu skyndilega mikinn áhuga á skólamálum, flokkar lofuðu þessu og hinu í aðdraganda alþingiskosninga og sennilega hafa skólamál aldrei fengið meira vægi í aðdraganda kosninga eins og nú. Ríkisstjórn Íslands er nú mynduð flokkum sem hafa skuldbundið sig til að ljúka verkefninu um jöfnun launa á milli markaða. Það er vissulega áfangi sem við ætlum að fylgja eftir. Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga varð á sama hátt vettvangur pólitískrar umræðu um kröfur kennara.
Allt kom þetta svo heim og saman 25. febrúar og í kjölfarið voru samningarnir samþykktir af félagsfólki með yfirgnæfandi meirihluta. Risaskref í sögu Kennarasambands Íslands voru tekin og nú þegar er hafin vinna við þá virðismatsvegferð sem á að leiða verkefnið um jöfnun launa milli markaða áfram. Frétta er að vænta af því verkefni nú á haustmánuðum þar sem ætlunin er að kynna hugmyndafræðina og vinnuna að virðismati fyrir kennurum, því við teljum möguleikana í vegferðinni töluverða. Það er mjög mikilvægt að við áttum okkur öll á því að samningarnir nú voru fyrsta skrefið.
Að undirskrift lokinni stigu einhverjir innan raða yfirvalda fram í fréttum og lýstu yfir vandkvæðum við að greiða fyrir launahækkunina. Það hefur glatt mig í þeirri umræðu að stöðugt fleiri á vettvangi stjórnmálanna hafa rætt um það að lausnin sé að forgangsraða fjármálum upp á nýtt og finna þannig leiðir til að standa við gerða samninga. Einmitt. Fjárfesta í kennurum. Takk.
En – þetta er bara fyrsta skrefið. Jöfnun er enn ekki náð.

Var það stór áfangi fyrir okkur að taka á móti öllum stærstu haghöfum skólakerfisins á heimsvísu
Strax í kjölfar undirritunar kjarasamninga tók svo við annað stórt verkefni hjá KÍ. Við, ásamt mennta- og barnamálaráðuneytinu, héldum ISTP-leiðtogafundinn, sem er stærsti árlegi menntaviðburður heims. Til Íslands komu 25 menntamálaráðherrar ásamt formönnum kennarasamtaka á þriggja daga ráðstefnu um skólamál í Hörpu.
Það var eins með ráðstefnuna eins og kjarabaráttuna. Við hjá KÍ getum sannarlega verið stolt af framkvæmd og inntaki ráðstefnunnar. Rödd Íslands á alþjóðavettvangi er sterk og á henni er mark tekið. Því var það stór áfangi fyrir okkur að taka á móti öllum stærstu haghöfum skólakerfisins á heimsvísu hér á Íslandi og sýna þeim nánar hvaða leiðir við viljum fara með okkar skóla og um leið fá þeirra sýn.
Skemmst er frá því að segja að í kjölfar ráðstefnunnar hafa forsvarsmenn alþjóða kennarasamtakanna, Education International og skólamálaskrifstofa OECD hlaðið Ísland lofi. Hvort sem var vegna framkvæmdar ráðstefnunnar eða þess sem þau sáu og kynntust af íslensku skólastarfi.
Kæru kollegar, það er margt sem við getum verið stolt af. Og munum – við ætlum enn hærra!
