Ríkisstjórnin þverbrýtur leikreglur vinnumarkaðar

Fréttir|12. september 2025

„Fordæmalaust er að stjórnvöld taki einhliða ákvörðun um breytingar á grundvallarréttindum vinnandi fólks án samráðs við verkalýðshreyfinguna," segir í nýrri yfirlýsingu ASÍ, BHM, BSRB, Fíh og KÍ.

Svo segir í yfirlýsingu sem KÍ, ASÍ, BHM, BSRB, Fíh og sendu frá sér í dag. Yfirlýsingin, sem birtist fyrst á Vísi, er hér í heild fyrir neðan.

Ríkisstjórnin þverbrýtur leikreglur vinnumarkaðarins

Í dag birtust í samráðsgátt stjórnvalda áform ríkisstjórnarinnar um breytingu á lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. Meðal breytinganna er ákvæði sem ætlað er að auðvelda stjórnendum að reka starfsfólk ríkisins.

Með þessu áformar ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur að skerða einhliða réttindi launafólks. Fordæmalaust er að stjórnvöld taki einhliða ákvörðun um breytingar á grundvallarréttindum vinnandi fólks án samráðs við verkalýðshreyfinguna. Nú bætist þetta við fyrirætlanir ríkisstjórnarinnar af sama toga um skerðingu atvinnuleysistrygginga sem og skerðingu réttinda örorku- og ellilífeyrisþega í lífeyrissjóðum.

Grunnstoð íslenska vinnumarkaðsmódelsins er náið samráð og samskipti aðila vinnumarkaðarins og stjórnvalda um öll þau mál er snúa að kjörum launafólks. Þetta módel er undirstaða sterks vinnumarkaðar á Íslandi og velferðarsamfélagsins og er lykilatriði að farsæld þeirra verkefna sem unnin eru á vettvangi ríkisins.

Með þessum áformum afhjúpar ríkisstjórnin þekkingar- og skeytingarleysi sitt á mikilvægi samstarfs við aðila vinnumarkaðarins.

Íslensk verkalýðshreyfing hafnar þessum vinnubrögðum og áformum og mun verjast skerðingum á réttindum launafólks af hörku.

Finnbjörn A Hermannsson, forseti ASÍ

Helga Rósa Másdóttir, formaður Fíh

Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ

Kolbrún Halldórsdóttir, formaður BHM

Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB