Reynslusögur framhaldsskólakennara

Kjarninn hefur undanfarna daga birt viðtöl við framhaldsskólakennara þar sem farið yfir reynslu þeirra á COVID-19 tímanum. Ítarlega og góð viðtöl þar sem kennarar draga fram ýmis atriði.
Í fyrsta viðtalinu var rætt við Hauk Eiríksson, kennara við Verkmennaskólann á Akureyri. „Hausinn fór strax á fullt,“ rifjar Haukur upp. Hann eins og svo margir aðrir kennarar hafi fyrstu vikurnar unnið fram á nótt við skipulag fjarnámsins. Nemendur tóku langflestir hinu breytta fyrirkomulagi vel en í ljós kom að aðstaða þeirra til fjarnáms er misjöfn sem og félagslegur stuðningur. Sumir hafi átt erfitt. „Það verður að athuga að þessir nemendur skráðu sig í staðnám en ekki fjarnám,“ bendir hann á.
Haukur ákvað að nemendur myndu ekki mæta eftir stundatöflu. „Ég sá fyrir mér að það gæti orðið of mikið. Sumir nemendur eru með fjörutíu tíma stundatöflu á viku. Þú situr ekkert fyrir framan tölvu í fjörutíu tíma á viku og fylgist með einhverjum kenna. Það er bara útilokað. Ég setti þetta því þannig upp að nemendur gætu unnið verkefnin þegar þeim hentaði.“
Hann bendir einnig á að sumir nemendur séu í vinnu og með fjölskyldu. „Þannig að mörgum hentar að kíkja á þetta á kvöldin þegar það er komið logn á heimilinu.“
Oft heyrist að „ungt fólk í dag“ sé svona eða hinsegin. „Krakkar í dag eru frábærir, þeir eru miklu betri en þegar ég var krakki,“ segir hann með áherslu. „Þau eru miklu opnari en við vorum. Þó að þau viti kannski ekki hvað skafrenningur er þá vita þau svo margt annað. Ég er frekar bjartsýnn fyrir þeirra hönd.“
Í næsta viðtali er rætt við Borghildi Sverrisdóttur, kennara við Flensborgarskólann en hún hóf fjarkennslu í samkomubanni af miklum krafti, með fjögurra ára tvíbura og sex ára dóttur oft við hlið sér. „Við þessar aðstæður ætlaði ég mér að skila 100 prósent vinnu,“ segir hún. „En þetta gekk einfaldlega ekki upp.“ Hún tók því nokkur skref til baka, sjálfri sér og nemendum til góða.
Á einni viku var allt sett af stað og ýmis búnaður og forrit reynd. „Persónulega fór ég of geyst í þetta. Ég fann að ég réð ekki almennilega við allt það sem ég stefndi að. Ég var svolítið syndandi án þess að kunna fyllilega að synda,“ rifjar hún upp. „Fyrstu vikuna var ég bara að reyna að halda mér á floti.“
Stjórnendur Flensborgarskóla höfðu fullan skilning á því að aðstæður kennara heima fyrir væru misjafnar og vildu að þeir sniðu sér stakk eftir vexti. „En maður hefur metnað og vill gera það besta fyrir nemendur sína. Maður vill ekki að þetta bitni á neinu heldur halda dampi í kennslunni.“
Borghildur er bjartsýn að eðlisfari. Hún óttast ekki að hið undarlega ástand sem nemendur hafa þurft að búa við síðustu vikur muni hafa langtíma áhrif á þeirra líðan eða nám. „Ég hef trú á því að við komum aftur í skólann í haust, kannski ekki eins og ekkert hafi í skorist, en höldum áfram okkar starfi, bæði nemendur og kennarar. Ég hlakka til. Það er alltaf betra að vera í beinum samskiptum við fólk, halda kennslustund. Þess vegna er ég nú kennari. Annars hefði ég bara valið mér eitthvað starf fyrir framan tölvu.“
Væntumþykja, umburðarlyndi og sveigjanleiki hafa verið lykilstef í fjarkennslu Halldórs Björgvins Ívarssonar, kennara við Framhaldsskólann í Mosfellsbæ. „Það er eins með nemendur og okkur flest að þetta ástand dregur úr okkur, það tæmir tankinn. Flestir mínir nemendur hafa verið að halda sjó mjög vel, hafa staðið sig virkilega vel og eiga hrós skilið fyrir flotta frammistöðu í þessu nýja námsumhverfi og þessum nýju aðstæðum.“ Halldór er viðmælandi í þriðja viðtali Kjarnans.
Viku áður en samkomubannið var tilkynnt taldi hann sig vita í hvað stefndi. Viðbrögð yfirvalda í Wuhan í Kína og á Ítalíu gáfu tóninn fyrir það sem mögulega var í vændum. „Það var viðbúið að okkar viðbrögð yrðu sambærileg. Þannig að ég var búinn að undirbúa mig ágætlega og hafði til dæmis tekið fjarkennsluæfingar með nemendunum í skólanum.“
Umræður eru stór þáttur í sögukennslu. Halldór segir að við núverandi aðstæður nái hann ekki alveg sömu tengingu við nemendur og inni í kennslustofunni. „Þau eru misjafnlega frökk að tjá sig í gegnum netið, sumum finnst það óþægilegt. Umræðurnar í gegnum netið virka betur í minni hópum. En segja má að það sama eigi við í kennslustofunni .“
Flestum nemendum fannst tilhugsunin um að fara í fjarnámið frekar spennandi að sögn Halldórs. Fyrir einhverja þeirra var þetta þægilegra og betra og þegar til greina kom eftir 4. maí, er fyrstu skref voru stigin í afléttingu samkomubanns, að færa kennsluna aftur að einhverju leyti inn í skólann vildi meirihluti nemenda ljúka önninni í fjarnámi.
Og það var lendingin. Nemendunum býðst hins vegar að hitta Halldór og aðra kennara í skólanum ef þeir kjósa.
„Þetta er langhlaup. Það er eins með nemendur og okkur flest að þetta ástand dregur úr okkur, það tæmir tankinn. Flestir mínir nemendur hafa verið að halda sjó mjög vel, hafa staðið sig virkilega vel og eiga hrós skilið fyrir flotta frammistöðu í þessu nýja námsumhverfi og þessum nýju aðstæðum.“ Kom til dæmis í ljós þegar Halldór tók saman mætingu fyrir fjarnámsvikurnar fram að páskafríi að í einum áfanganum var hún að meðaltali betri en fyrir fjarnámið. Fyrirkomulagið hentar því klárlega mörgum.
Sá lærdómur sem við munum draga af þessu verður vonandi sá að hægt er að miðla námsefni á marga vegu. Það þarf ekki endilega að gerast inni í kennslustofu og samkvæmt niðurnjörvaðri stundarskrá. Það sem hentar einum hentar ekki endilega öðrum. Þetta segir Kolbrún Ýrr Bjarnadóttir íslenskukennari við Menntaskólann á Akureyri. Hún vonar að á síðustu mánuðum hafi öllum orðið ljóst hversu mikilvæg góð mennta- og heilbrigðiskerfi eru og að framlínufólkið sem í þeim starfar verði héðan í frá metið að verðleikum og meiri virðing fyrir því borin. „Við höfum ótrúlega aðlögunarhæfni og gátum brugðist mjög hratt við þegar líf okkar flestra breyttist. Og þó að það hafi verið snúið fyrir marga að fara úr staðkennslu í fjarkennslu tókst okkur, bæði kennurum og nemendum, vel til.“
Kolbrún á fjögur börn og voru þau tvö elstu í skertu skólastarfi í samkomubanninu. Þau þurftu sitt næði til að vinna sína heimavinnu, dóttirin inni í sínu herbergi, stundum í fjarkennslustundum, og sonurinn, sem var annan hvern dag í skólanum, lærði við borðstofuborðið. „Heimilið varð eins og lítill vinnustaður. Við reyndum að dreifa okkur um húsið svo allir gætu fengið vinnufrið. Þannig að ég flutti mig inn í svefnherbergi þar sem ég sat við fjarkennsluna með rimlarúm yngsta barnsins við hliðina á mér,“ segir hún og hlær. „Þetta voru eiginlega fyndnar aðstæður. En svona var þetta.“
Eftir páskafrí var allt fyrirkomulagið farið að slípast til. Þá var hún búin að átta sig á því að líklega myndi hún ekki hitta nemendur sína aftur í kennslustofunni þetta skólaárið. Hún tók vinnutarnir um helgar til að skipuleggja kennslu komandi viku. Þó að hún hafi notað ákveðin verkfæri fjarkennslunnar áður hafi það krafist aukins undirbúnings að kenna allt í gegnum netið .
Kolbrún bað nemendur sína að lýsa líðan sinni og hvernig þeim gengi í fjarnáminu. „Það er vaxandi kvíði í samfélaginu og í skólanum eru nemendur sem voru kvíðnir áður en faraldurinn skall á. Og í kvíða er einangrun ekki að hjálpa,“ segir hún.
Nemendum hennar líður misjafnlega. „Sumir sögðust vera mjög einmana og þrá ekkert heitar en að koma aftur í skólann.“
Líkt og hjá mörgum hefur orðatiltækið enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur verið Kolbrúnu ofarlega í huga upp á síðkastið. „Nemendur sem voru kannski komnir með skólaleiða áttuðu sig á því eftir að allt fór yfir í fjarnám hvað skólinn er stór partur af þeirra lífi.“
Þegar samkomubann var sett á og fjarnám hófst í framhaldsskólum hafði Kristín Marín Siggeirsdóttir kennari í Kvennaskólanum ímyndað sér að hún gæti prjónað og bakað – dúllað sér heima við. En eitthvað varð lítið úr því. Vinnudagarnir urðu langir og hún vann margar helgar, flest kvöld og stundum langt fram á nótt.
Nokkrum dögum áður en samkomubann var sett á voru kennarar í Kvennaskólanum undir það búnir að þannig gæti farið. Þegar það var tilkynnt um miðjan mars og allir nemendur þurftu að fara heim að læra ákvað Kristín að halda sínu striki og mæta í skólann þar sem hún er með góða vinnuaðstöðu. En svo veiktist kennari af COVID-19 og margir kennarar urðu að fara í sóttkví. „Og ég var ein af þeim.“
Kristín veiktist ekki en það gerðu nokkrir samstarfsmenn hennar. „Þannig að ég kom mér bara fyrir í sófahorninu heima og hef verið þar síðan,“ segir hún hlæjandi. „Það hefur verið mín vinnuaðstaða.“
Þegar Kristín lítur til baka segir hún síðustu vikur hafa gengið ágætlega en að fjarkennslan hafi kostað mjög mikla vinnu. „Helgin eftir að tilkynnt var um samkomubann fór í það að skipuleggja næstu þrjár vikur fram að páskafríi, setja nemendum fyrir, útbúa verkefni til að halda þeim við efnið í staðinn fyrir daglegar kennslustundir. Ég hef lært rosalega mikið en þetta hefur verið ofboðslega mikil vinna. Vinnudagarnir hafa verið langir. Ég hef unnið mörg kvöld, margar helgar og fram á nætur. Ég hafði ímyndað mér að ég myndi kannski getað prjónað, bakað og dúllað mér heima í samkomubanninu en það hefur verið frekar lítið um það. Ég hef verið hlaðin verkefnum tengdum kennslunni.“
Það er mikið álag að sitja í skóla allan daginn. Sumir hafa ekki heilsu til þess og „þá getur hentað þeim vel að haga sínum vinnutíma eftir eigin höfði,“ segir Kristín. Hún segist halda að fyrirkomulag fjarkennslunnar gæti gagnast þessum nemendum áfram. „Ég hef sjálf lært mikið af þessu og sé núna fleiri möguleika í því að aðstoða þá nemendur sem eiga erfiðara með nám í skólanum.“
Myndir og textar úr viðtölum í Kjarnanum.