Reynsluheimur leikskólabarna í COVID-19

Fréttir|5. október 2020

Leikskólabörn höfðu áhyggjur af heilsu sinna nánustu og þeim fannst leitt að geta ekki leikið við vini sína. Um leið nutu mörg börn þess að vera í minni hópum en venja er. Þetta er meðal þess sem kemur fram samræðumyndbandi frá leikskólanum Lundarseli á Akureyri sem tekið var upp síðasta vor.

Aðdraganda myndbandagerðarinnar má rekja til þess að félagasamtökin Beta- og Mýdeild innan Delta Kappa Gamma Society International, hafði hafið undirbúning að árlegu málþingi í tilefni Alþjóðadags kennara, 5. október 2020 á Akureyri.

Ekkert verður af málþinginu þetta árið vegna þeirra aðstæðna sem uppi eru vegna COVID-19. Þess í stað vilja félagasamtökin senda kennurum um allt land kveðju með samræðu Inga Jóhanns Friðjónssonar, leikskólakennara og BA í heimspeki, sem hann tók við elstu börnin í Lundarseli á Akureyri síðastliðið vor. Samræðan snerist um hvernig börnunum leið meðan fyrsta bylgja COVID-19 stóð yfir í samfélaginu.

Ingi Jóhann útbjó rúmlega 5 mínútna myndband af svörum nokkurra barna sem má sjá og heyra í fylgiskjalinu. Í raun spönnuðu viðtölin yfir 90 mínútur við 21 viðmælanda (öll svör barnanna komust ekki fyrir í myndbandinu). Börnin fengu val um að taka þátt í spjallinu og reynt var eftir fremsta megni að fá upplýst samþykki fyrir því að nota viðtölin við myndbandsgerðina. Auðvitað voru svörin misjöfn og alfarið út frá reynsluheimi barnanna, þar sem leitast var við að komast að þeirra upplifun með opnum spurningum.

„Af samtölunum má draga þá ályktun að þau börn sem mættu meira í leikskólann í apríl og maí höfðu minni áhyggjur af ástandinu en þau börn sem voru aðallega heima. Sum börnin fundu fyrir leiða á að hitta ekki vini sína í leikskólanum og höfðu áhyggjur af heilsu fjölskyldunnar. Öðrum leið vel og það mátti líka greina í þessu spjalli við börnin að þau nutu sín í minni hópum og í ró með vinum sínum í leikskólanum. Greinilegt er að faraldurinn hafði/hefur áhrif á tilfinningalíf barnanna. Þau virðast meðtaka býsna mikið umræðuna í þeirra nærumhverfi,“ segir í tilkynningu frá Mý- og Betadeild.

Horfa á myndbandið