Reynslan er metin og viðurkennd

Fréttir|23. mars 2022

Raunfærnimat í leikskólakennaranámi.

Síðastliðið haust hófst raunfærnimat í leikskólakennaranámi á Menntavísindasviði Háskóla Íslands. Það er í fyrsta sinn sem raunfærnimat er innleitt við Háskóla Íslands og leikskólakennarafræðin því brautryðjandi þegar kemur að því að meta starfsreynslu nemenda til styttingar háskólanáms. Skólavarðan spurði Ingibjörgu Ósk Sigurðardóttur, dósent í leikskólakennarafræði, Önnu Magneu Hreinsdóttur aðjunkt og Ínu Dögg Eyþórsdóttur, verkefnastjóra á kennslusviði Háskóla Íslands, nánar út í málið.

Núverandi nemendum boðið fyrst í raunfærnimat 

Ína Dögg segir að ákveðið hafi verið að hefja leik á því að bjóða núverandi leikskólakennaranemum sem uppfylla ákveðin skilyrði að undirgangast raunfærnimat. Hún segir þrjár ástæður vera fyrir því að leikskólakennaranámið sé góður brautryðjandi fyrir þróunarverkefni á borð við þetta innan Háskóla Íslands:
„Leikskólakennaranámið býður upp á góða möguleika til raunfærnimats, mikil þörf er á að mennta fleiri leikskólakennara og margir sem starfa við fagið hafa reynslu en skortir menntun.“

Eitt af því sem kemur skýrt fram í samtali okkar við vettvang er mikilvægi þess að styðja við og hvetja fólk með áralanga starfsreynslu úr leikskólum til að taka skrefið til háskólanáms.

Ingibjörg Ósk er umsjónarmaður námsleiðar í leikskólafræðum og hefur haldið utan um innleiðingu raunfærnimats á Menntavísindasviði ásamt Önnu Magneu. Hún segir að undirbúningurinn hafi gefið námsleiðinni mikilvægt tækifæri til að rýna í og skoða þau hæfniviðmið sem liggi leikskólakennaranámi til grundvallar:

„Þannig eflum við leikskólakennaranámið og skoðum með gagnrýnum huga þær væntingar sem gerðar eru til nemenda. Innleiðingin er þróunarverkefni og við höfum lært heilmikið á þessum fyrstu skrefum. Við hjá Háskóla Íslands vinnum þetta ekki ein því í stýrihópi sitja einnig fulltrúar frá Kennarasambandi Íslands og sérfræðingar frá Fræðslumiðstöð atvinnulífsins. Það hefur verið ómetanlegt því þar er mikil reynsla af framkvæmd raunfærnimats.” 

Mikilvægt jafnréttismál

Anna Magnea segir að hin síðari ár hafi verið lögð áhersla á samstarf og samtal við vettvang, sérstaklega sveitarfélögin sem eru vinnuveitendur margra leikskólakennaranema. Ljóst er að meirihluti nemanna býr yfir töluverðri reynslu af skipulagi, þróun og kennslu í leikskólum:

„Eitt af því sem kemur skýrt fram í samtali okkar við vettvang er mikilvægi þess að styðja við og hvetja fólk með áralanga starfsreynslu úr leikskólum til að taka skrefið til háskólanáms. Við þá ákvörðun skiptir miklu máli að fólk fái á einhvern hátt tækifæri til að njóta reynslu sinnar þegar kemur að háskólanámi. Nemendur okkar búa margir yfir mikilli starfsreynslu - jafnvel stjórnunarreynslu.“

Anna Magnea bætir við að þetta sé ekki eingöngu mikilvæg þróun leikskólakennaranáms og viðurkenning á reynslu leikskólastarfsfólks sem tekst á við háskólanám. Þetta sé ekki síst brýnt jafnréttismál:

„Raunfærnimat hefur lengi tíðkast í karllægari greinum. Með þessu þróunarverkefni fær mikilvægur hópur í samfélaginu, leikskólastarfsfólk, sem að langstærstu leyti er skipaður konum, tækifæri til að sýna fram á þekkingu sína og reynslu.“  

52 námskeið metin, meðalaldur þátttakenda var 35 ár

Í haust fengu allir nemendur í leikskólakennarafræði boð á kynningarfund um raunfærnimat og 90 nemendur þáðu boðið eða fengu upptöku af fundinum senda. Á fundinum voru kynntir svokallaðir skimunarlistar sem eiga að varpa ljósi á hvort umsækjandi eigi erindi í raunfærnimat. Tæplega 40 nemendur skiluðu inn skimunarlista og ferilskrám og 17 nemendur fóru á endanum í raunfærnimatið. Alls voru 7 námskeið á 2. og 3. ári til raunfærnimats og að loknu raunfærnimatinu fékk þátttakendahópurinn 52 námskeið metin og samanlagðar einingar voru 430 talsins. Meðalaldur þeirra sem fóru í raunfærnimat var 35 ár, yngsti þátttakandinn var 25 ára og þeir elstu 46 ára. Meðalstarfsaldur þátttakenda í leikskóla var rúm 9 ár og sá sem var með lengstan starfsaldur var með 24 ára starfsreynslu í leikskóla. Ína Dögg, Ingibjörg Ósk og Anna Magnea eru sammála um að vel hafi tekist til þó að reynslan hafi einnig varpað ljósi á ýmislegt sem betur má fara. Ingibjörg Ósk segir að spennandi verði að bjóða enn stærri hópi upp á raunfærnimat, þeim sem starfa á leikskólum en hafa ekki enn stigið skrefið í átt að háskólanámi:

„Við munum næsta haust bjóða nýjum leikskólakennaranemum upp á að sækja um raunfærnimat, að því gefnu að þeir séu 25 ára og hafi að minnsta kosti þriggja ára reynslu af leikskólastarfi. Ferlið er í fjórum skrefum, það hefst með upplýsingagjöf og endurgjöf í kjölfar útfyllingar skimunarlista, þá taka við fundir með náms- og starfsráðgjöfum og matsaðilum þar sem gagna er aflað og færni umsækjenda er skráð. Þriðja skrefið er greining og mat og þar er stuðst við matsviðtöl og í fjórða og síðasta skrefinu fer fram vottun og staðfesting á færni viðkomandi.“

Raunfærnimat á háskólastigi er umdeilt innan háskólasamfélagsins enda þótt rökin séu góð. Helstu gagnrýnisraddir lúta að því að með raunfærnimati sé um að ræða gjaldfellingu á náminu, jafnvel lélegra nám. Ína Dögg segir þetta alls ekki eiga við rök að styðjast:

„Umsækjendur sem fara í gegnum raunfærnimat þurfa að uppfylla sömu hæfniviðmið námskeiða og þeir sem sitja námskeiðin og ljúka þeim. Munurinn er sá að þeir sem fara í gegnum raunfærnimat hafa öðlast þekkingu sína og færni utan hefðbundins skólakerfis. Þá reynslu er mikilvægt að meta og viðurkenna.“

 

Umfjöllunin var í Skólavörðunni 1. tbl. 2022