Reykvískir kennarar í ævintýralegri göngu

Fréttir|2. maí 2023

Góð þátttaka var að venju í vorferð Kennarafélags Reykjavíkur. Aðalfundur félagsins fór fram fyrir skömmu.

Félagar í Kennarafélagi Reykjavíkur nutu stórbrotinnar náttúru á Reykjanes í vorferð félagsins sem farin var síðstliðinn sunnudag. Ríflega sextíu félagar mættu í ferðina og voru gegnir um fjórtán kílómetrar. 

Formaður KFR, Jón Ingi Gíslason, segir veðrið hafa leikið við hópinn, náttúrufegurð mikil og fararstjórn Einars Skúlasonar til mikillar fyrirmyndar. 

Að lokinni göngu var til veislu á Bryggjunni í Grindavík. 

Aðalfundur KFR

Stjórn Kennarafélags Reykjavíkur er svo skipuð 2023-2024

  • Jón Ingi Gíslason , formaður, Engjaskóli
  • Eðvarð Hilmarsson, Fellaskóli
  • Elín Guðfinna Thorarensen, Ölduselsskóli
  • Kristín Björnsdóttir, Ingunnarskóli
  • Kristjana Erlen Jóhannsdóttir, Engjaskóli
  • Lilja Margrét Möller, Austurbæjarskóli
  • Una Dögg Guðmundsdóttir, Dalskóli