Réttur til setu í ríkisreknum skólum á að vera heilagur
Kennarafélag Fjölbrautaskóla Vesturlands telur stefnu stjórnvalda um að stytta framhaldsskólanám vanhugsaða og ótímabæra. Augljóst er að mati félagsins að stúdentsprófið verði rýrara í roðinu eftir styttingu. Þá mótmælir félagið harðlega áformum um að bægja frá nemendum sem eru 25 ára og eldri. Þetta er meðal þess sem kemur fram í ályktun sem Kennarafélag Fjölbrautaskóla Vesturlands hefur sent frá sér.
Ályktunin hljóðar svo:
„Kennarafélag Fjölbrautaskóla Vesturlands lýsir miklum efasemdum um þá stefnu stjórnvalda að stytta framhaldsskólanám og telur hana bæði vanhugsaða og ótímabæra. Augljóst er að stúdentsprófið verður rýrara í roðinu eftir styttingu og að meirihluti nemenda mun koma verr undirbúinn til háskólanáms. Hugmyndin er ekki til þess fallin að minnka brottfall, nema síður sé, og líklegast að slakari nemendur muni gefast upp. Ekki er tekið tillit til hins séríslenska fyrirbrigðis sem er mjög mikil þátttaka nemenda á vinnumarkaði, bæði á námstíma og í sumarafleysingum. Ef nemendur eiga eingöngu að sinna námi og vera upp á forráðamenn komnir fjárhagslega þarf hugarfarsbreytingu í þjóðfélaginu.
Þá mótmælir félagið harðlega þeirri stefnu að bægja nemendum eldri en 25 ára frá námi í venjulegum framhaldsskólum. Réttur fólks til setu í ríkisreknum skólum á Íslandi á að vera heilagur, fólk á að eiga greiðan aðgang í framhaldsskólana hvort sem það kýs að hefja nám 16 ára eða 26 ára. Það á ekki að vera ríkisins að ákveða hvenær það nýtir sér réttindi sín og rétt að benda á að þeir sem gera hlé á námi eru upp til hópa nýtir þjóðfélagsþegnar og greiða sitt til samfélagsins. Það er því hrópandi óréttlæti að þessi hópur sé hrakinn í rándýrt nám í einkaskólum.
Kennarar hafa góða reynslu af því að hafa eldri nemendur í hópum hjá sér, þeir hafa oft aðra sýn á hlutina en þeir sem yngri eru og eru tilbúnir að miðla af reynslu sinni. Að lokum má benda á að þessi hópur er ekki stór og aukakostnaður við nám þeirra er hverfandi.
Þá lýsir hópurinn fullum stuðningi við tónlistarkennara í verkfalli þeirra.“