Réttlátt samfélag
Ræða Aðalheiðar Steingrímsdóttur, varaformanns Kennarasambands Íslands, 1. maí 2017 á Akureyri:
Krafan um réttlátt samfélag hefur hljómað allt frá því að alþýðufólk og róttækar hreyfingar gerðu fyrsta maí að sínum baráttu- og hátíðisdegi – en það gerðist fyrst í Vestur-Evrópu fyrir rúmum hundrað árum og nokkrum áratugum seinna fór verkafólk á Íslandi í sínar fyrstu kröfugöngur á fyrsta maí.
Og rauðu fánarnir og alþjóðasöngur verkalýðsins á fyrsta maí eru voldug söguleg tákn og ævarandi áminning um mikilvægi baráttunnar fyrir umbótum fyrir allan almenning – fyrir friði, lýðræði og félagslegu réttlæti.
Hér eins og annars staðar þurfti kjark og sjálfsvirðingu til að rísa gegn rótgrónum fordómum og undirlægjuhætti, og sterk bein til að leggja niður vinnu á fyrsta maí. Um þetta höfum við áhrifamiklar lýsingar í endurminningum margra frumherjanna, - og þeir eiga allt okkar þakklæti fyrir djörfung sína og dug.
Fjöldahreyfing kvenna og karla í verkalýðsfélögum vítt og breitt um landið lyfti grettistökum til hagsbóta fyrir alþýðu þessa lands. Markmiðið var að tryggja jöfnuð og rétt allra til að lifa með reisn og möguleika þeirra til nýta hæfileika sína, óháð efnahag og aðstæðum.
Sérstaklega þurfti að rísa með mikilli ákveðni og festu gegn þeim ölmusuhugsunarhætti sem gegnsýrði viðhorf til fátæks fólks, - og gerir að mörgu leyti enn.
Margt bjátar á
Við eigum alltaf að muna þessa sögu. Hún sýnir að ekkert sem snertir lífskjör og mannréttindi fólks eru sjálfsagðir hlutir. Fyrir öllu hefur þurft að berjast - fyrir öllu hefur þurft mikið að hafa.
Og þessi sannindi gilda ekki síður nú en þá. Við vitum að það er margt sem bjátar á í samtímanum og ekkert mun breytast til batnaðar nema að almenningur í landinu knýi með samtakamætti sínum fram nauðsynlegar breytingar.
Við vitum öll að efnahagshrunið sem varð hér haustið 2008 fól í sér gríðarlegt áfall fyrir lífskjör almennings – en var um leið efnahagslegt, pólitískt og siðferðilegt gjaldþrot nýfrjálshyggjunnar.
Engu að síður höfum við sem þjóðfélag ekki gert upp við þessa stjórnmálahreyfingu.
Félagslegir innviðir samfélagsins eru ennþá veikir og opinber þjónusta verulega látið undan síga. Mikilvægar velferðarstofnanir eru fjársveltar og drabbast niður – hjúkrunarheimili, sjúkrahús og skólar.
Pólitísk öfl í samfélaginu sækja fast í að heilbrigðiskerfið verði opnað enn meira fyrir umsvifum einkaaðila og að sömu lögmál eigi að gilda þar og í viðskiptalífinu. Allir vita að það myndi þýða ennþá meiri ójöfnuð í samfélaginu - og er hann þó mikill fyrir.
Stundum finnst manni að fólk hafi ekki dregið rétta lærdóma af efnahagshruninu og aðdraganda þess.
Eins og við vitum hafa komið fram nýjar upplýsingar sem varpa skæru ljósi á íslenskt samfélag og sýna að það þarf að gera á því róttækar breytingar svo ekki sé fastar að orði kveðið.
Hér er ég að vísa til þeirra upplýsinga sem komu fram í Panamaskjölunum og fjallað er um í skýrslunni sem stjórnvöld stungu undir stól fyrir síðustu kosningar.
Þar kemur fram að eignamenn í landinu hafa stolið tugum milljarða úr samneyslunni með því að flytja eignir sínar í skattaskjól á aflandseyjum. Og það kemur líka fram í skýrslunni að Íslendingar skera sig frá öðrum þjóðum að því leyti hvað stór hluti eignamanna kemur undan fé sínu með þessum hætti.
Skýrslan staðfestir að á Íslandi er til fámenn yfirstétt sem hefur hagnast á íslenskum auðlindum eða á öðrum sviðum íslensks samfélags, en vill ekki greiða sitt til samneyslunnar, og sem stal tugum milljörðum króna af okkur hinum, og stakk í vasann.
Þetta hrikalega svindl er með öðrum orðum einstakt á heimsvísu, - og skýrir að stórum hluta af hverju það skortir fé inn í samneysluna þannig að hún standist samanburð við önnur Norðurlönd þótt landsframleiðsla á mann hér á landi sé svipuð og þar.
Það er mjög mikilvægt að halda þessu til haga þegar stjórnvöld segja að það séu ekki til fjármunir til þess að hafa hér velferðarkerfi eins og tíðkast annars staðar á Norðurlöndunum.
Afleiðingarnar blasa hvarvetna við og baráttumálin eru mörg.
Til þess að leysa vandamálin verður að sækja af hörku það sem stolið var af þjóðinni og sjá til þess að hún fái réttlátan skerf af auðlindum sínum.
Það gerir okkur kleift að leysa mörg þeirra vandamála sem að almenningur í landinu glímir við, til dæmis þau sem snúa að gamla fólkinu, öryrkjum og fötluðum.
Og við eigum að leggja metnað okkar í að taka á móti flóttafólki sem kemur úr ólýsanlegum hörmungaraðstæðum eins og okkur ber líka skylda til samkvæmt alþjóðasáttmálum – og gera allt sem er í okkar valdi til að auðvelda þeim að koma að koma sér vel fyrir í samfélaginu.
Að koma fram með fullum sóma við flóttamenn og innflytjendur dregur ekki á neinn hátt úr möguleikum okkar til að leysa þau vandamál sem við glímum við í okkar samfélagi.
Það er staðreynd að margir í okkar samfélagi búa við fátækt, og þurfa að neita sér um grundvallarþarfir eins og mat, lyf og læknishjálp, og að margir eru þannig staddir að endar ná ekki saman í hverjum mánuði og ekkert má bera út af til þess að fólk eigi fyrir daglegum nauðþurftum.
Þetta ástand sýnir að velferðarkerfið á Íslandi er ekki nógu gott. Til að laga þetta verða að koma auknar fjárveitingar og kosti það hærri skatta á hina tekjumeiri er það einfaldlega það sem verður að gera.
Unga fólkið sniðgengið
Ég ætla sérstaklega að tala hér um unga fólkið og aðstæður þess hér á landi, en þær koma við okkur öll og allar fjölskyldur.
Nú í langan tíma hafa stjórnvöld gersamlega sniðgengið hagsmuni unga fólksins og lokað augunum fyrir þeim erfiðleikum sem það glímir við. Það er sama hvar borið er niður, alls staðar er hrópandi óréttlæti gagnvart unga fólkinu.
Engar raunhæfar aðgerðir hafa komið fram til að leysa hrikaleg húsnæðisvandræði sem ungt fólk er í, og þar sem það hefur meðal annars tekið á sig fórnarkostnaðinn sem stafar af nýja túristagóðærinu. Og við skulum muna að unga fólkið var skilið eftir á köldum klaka í hinum svokölluðu leiðréttingaraðgerðum fyrri ríkisstjórnar sem komu fyrst og fremst hinum efnameiri til góða.
Vístölutölubundnu námslánin breyttust ekki neitt og námslánafrumvarp fyrri ríkisstjórnar snýst fyrst og fremst um að tryggja að lánasjóðurinn hafi allt sitt á þurru en ekki um aðstæður og hagsmuni námsfólksins, og að auka jafnrétti til náms.
Og þeir sem eru 25 ára og eldri var vísað úr almenna skólakerfinu og á rándýrt nám á einkamarkaði, og bera ákvarðanir af þessu tagi vott um fullkomið skilningsleysi á högum ungs fólks.
Annars staðar á Norðurlöndum eru víðast námsstyrkir til framhaldsskólanema og ókeypis námsgögn á öllum skólastigum. En hér þykir það í lagi að velta kostnaði af skólagöngunni á heimilin í landinu sem á meðal annars þátt í óhóflegri vinnu ungs fólks með námi.
Í öllum nálægum löndum er það keppikefli að það fæðist sem flest börn og það sé mikilvægt fyrir farsæld og hagsæld í þjóðfélögunum til lengri tíma, og það er litið á slíka þróun sem merki um félagslega heilbrigði.
En á Íslandi er sannarlega ekki verið að auðvelda unga fólkinu að stofna fjölskyldu og eignast börn, hér er fæðingarorlofið allt of stutt og fólk lendir í miklum erfiðleikum við að brúa bilið milli þess og leikskólans, svo að ekki sé nú talað um þann mikla kostnað sem barnafjölskyldur þurfa að standa undir vegna þess að hér er ekki gjaldfrjáls leikskóli.
Allt þetta sem hér er nefnt er augljóslega hægt að gera á öðrum Norðurlöndum og þar er áratuga hefð fyrir mörgu af því sem hér hefur verið nefnt.
Ég hef dregið þessa stöðu unga fólksins fram sérstaklega til þess að undirstrika að það er möguleiki og engin útópísk draumsýn að gera miklar umbætur á íslensku samfélagi ef almenningur í landinu og launafólk sérstaklega tekur höndum saman um að beita sér fyrir þeim af fullum þunga.
Samtök launafólks á Íslandi verða að taka forystu í almennri umræðu um mótun þjóðfélagsins til framtíðar og alls ekki að eftirláta sviðið viðskiptaráði, samtökum atvinnurkenda eða greiningardeildum bankanna.
Hagsmunir almennings eiga að ráða ferðinni þar sem tryggja skal að allir eigi kost á að lifa með reisn og í velferðarþjóðfélagi sem setur mennskuna í öndvegi. Við munum aldrei og eigum aldrei að sætta okkur við annað.
Kæru félagar – sameinumst um þetta – og til hamingju með daginn!