Regnbogafáninn dreginn að hún við Kennarahúsið
Regnbogafáninn blaktir nú við Kennarahúsið og mun gera á meðan Hinsegin dagar standa yfir. Dagskrá Hinsegin daga er fjölbreytt að vanda og margt fróðlegra viðburða í Iðnó og Hörpu næstu dagana. Hápunktur Hinsegin daga er Gleðigangan sem fram fer laugardaginn 6. ágúst. Í Gleðigöngunni sameinast lesbíur, hommar, tví- og pankynhneigðir, trans fólk, intersex fólk og aðrir hinsegin einstaklingar í einum hópi ásamt ættingum, vinum og þjóðinni allri til að staðfesta tilveru sína, sýnileika og gleði.
Regnbogafáninn hefur um árabil verið tákn baráttu hinsegin fólks um heim allan. Það var San Francisco-búinn Gilbert Baker sem hannaði og saumaði fyrsta regnbogafánann árið 1978. Litirnir áttu að tákna samfélag samkynhneigðra. Friðarhreyfingar hafa einnig notað fánann í baráttu sinni og segir Baker fánann eign allra þeirra sem berjast fyrir mannréttindum.
Gleðigangan hefst klukkan 14 á laugardag og verður gengið eftir Vatnsmýrarvegi, Sóleyjargötu, Fríkirkjuvegi og Lækjargötu og að Arnarhóli þar sem fram fer útihátíð. Fjöldi listamanna kemur fram á hátíðinni og þá mun Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, flytja ávarp. Þetta verður í fyrsta sinn sem forseti Íslands tekur þátt í dagskrá Hinsegin daga.
Hinsegin dagar eru nú haldnir í 18. sinn og hefur Gleðigangan vaxið ár frá ári.
Lag Hinsegin daga 2016 ber titilinn Við getum sameinast og er flutt af September og Bjartmari Þórðarsyni.