Reglur sjúkrasjóðs taka breytingum

Fréttir|22. janúar 2021

Nýjar úthlutunarreglur taka gildi 1. febrúar næstkomandi.

Sjúkrasjóður KÍ hættir að endurgreiða félagsmönnum útlagðan kostnað vegna reglubundinnar kembileitar að brjósta- og leghálskrabbameini. Á þetta við um kostnað sem hefur fallið til á þessu ári. Ástæðan er gjöld vegna þessa falla nú undir greiðsluþátttökukerfi sjúkratrygginga. 

Þetta er önnur tveggja breytinga sem gerðar hafa verið á úthlutunarreglum Sjúkrasjóðs sem taka gildi frá og með næstu mánaðamótum.

Hin breytingin varðar fæðingarstyrk en nú verður hægt að nýta hann upp að 24 mánaða aldri barns – í stað 12 mánaða áður. Fæðingarstyrkur er 215.600 krónur miðað við full starf sex mánuði fyrir fæðingu barns.

Lesa nýjar úthlutunarreglur sjúkrasjóðs