Reglum sjúkrasjóðs breytt

Fréttir|2. júlí 2014

Reglum Sjúkrasjóðs Kennarasambandsins var breytt nú um mánaðarmótin. Helstu breytingar eru eftirfarandi:

  • Endurgreiðsla vegna ýmissa meðferða hækkar í kr. 2.800
  • Hámarks endurgreiðsla vegna faghandleiðslu, félags-, fjölskyldu og sálfræðimeðferð hækkar í kr. 7.000
  • Fæðingarstyrkur hækkar í kr. 215.600
  • Endurgreiðsla vegna kaupa á heyrnartækjum hækkar í 45% af kaupverði.
  • Styrkgreiðslum vegna þyngdarátaks verður hætt.
  • Útfararstyrkur vegna barns sjóðsfélaga nú greiddur v. barna 20 ára og yngri.

Nánari upplýsingar:

Upplýsingar um styrki og greiðslur sjúkrasjóðs

Úthlutunarreglur sjúkrasjóðs.