Rebozo-námskeið
Kennarasambandið vekur athygli á að hinn 4. júní verður haldið skemmtilegt rebozo-námskeið í Síðumúla 10. Námskeiðið hefst kl. 09:00 og því lýkur kl. 16:00
Rebozo er ofið sjal sem gaman er að nota í leik og starfi. Það er hægt að nota til slökunar og nudds, til stuðnings en jafnfram í leik og ærslagangi.
Rebozo-tæknin hefur nýst vel víða í starfi með börnum, öldruðum, fólki með fötlun og barnshafandi konum. Það er auðvelt að tileinka sér tæknina, gaman og auðvelt að nýta hana í flestum aðstæðum.
Dagskrá námskeiðsins á laugardaginn er fjölbreytt, farið verður yfir hvernig maður notar sjalið, nudd og slökun útafliggjandi og slökun, til stuðnings við daglegar athafnir og hvernig er hægt að nota sjalið í leik. Einnig verður farið yfir lokunarnudd þar sem nuddþegi er vafinn skemmtilega inn í mörg sjöl.
Engar forkröfur eru gerðar fyrir þátttöku á námskeiðinu og hægt er að fá lánað sjal meðan á námskeiðinu stendur. Leiðbeinendur á námskeiðnu eru Mirjam de Keisjer og Thea Van Tuyl sem hafa áralanga reynslu af því að ferðast um heiminn og kenna notkun rebozo í leik og starfi.
Námskeiðið er á einstöku tilboði til félagsmanna til 1. júní. 9.900.- í stað 19.500 og mörg stéttarfélög niðurgreiða námskeiðið.
Nánari upplýsingar og skráning á soffia@hondihond.is eða í s. 8624804
DAGSKRÁ:
Kaffi og spjall, inngangur að rebozo
sitjandi nudd
standandi nudd
frá toppi til táar
Hádegismatur
nudd frá toppi til táar- framhald
nudd á fjórum fótum og á bolta
lokunarnudd