Ratleikur um heiminn

Fréttir|5. maí 2015

Fjölmargir kennarar nýta í dag samskiptaforritið Skype í kennslustofunni. Með því er á einfaldan hátt hægt að tengjast öðrum kennurum og nemendum um allan heim.

Árið 2003 kynntu hinn danski Janus Friis og Svíinn Niklas Zennström í samstarfi við Ahti Heinla, Priit Kasesalu og Jaan Tallinn frá Eistlandi til sögunnar nýtt samskiptaforrit sem bar nafnið Skype. Forritið varð fljótt gríðarlega vinsælt og í dag eru notendur þess um 300 milljónir talsins. Skype er í eigu Microsoft sem keypti það árið 2011 á 8,3 milljarða Bandaríkjadala (1.122 milljarða króna). Þó flestir tengi Skype helst við videó-samtöl við vini og ættingja milli landa eru notkunarmöguleikarnir óteljandi, þar á meðal í skólastarfi. Fyrirtækið sjálft hvetur einmitt kennara til að nýta forritið við kennslu og heldur úti síðunni „Skype in the Classroom“ til að leiðbeina kennurum í því efni. Fjölmargir sjálfboðaliðar bjóðast þar til að fræða nemendur um allt frá mannréttindum og þróunaraðstoð yfir í tölvunarfræði og allt þar á milli. Það þarf heldur ekki að leita lengi á vefnum til að finna umfjallanir um möguleikana. Ein sú ítarlegasta er skrifuð undir fyrirsögninni „Fimmtíu frábærar leiðir til að nota Skype við kennslu“.

MysterySkype
Einn möguleikanna sem Skype býður upp á er MysterySkype sem í raun er leikur þar sem nemendur frá tveimur skólum í mismunandi löndum reyna að finna út hvar hinn hópurinn er staðsettur. Í upphafi þarf skóli eða kennari að skrá sig á heimasíðu Mysteryskype þar sem fyrir má finna þúsundir skóla alls staðar að úr heiminum. Ein þeirra sem nota MysterySkype reglulega er María Hrönn Valberg, skólastjóri Grunnskóla Önundarfjarðar á Flateyri. Hún segist hafa kynnst leiknum á ráðstefnunni BETT í fyrra.

„Í raun er þetta afar einfalt. Þú finnur skóla sem þú hefur áhuga á og sendir honum eða kennara við skólann beiðni á MysterySkype. Svo ákveða kennararnir einfaldlega tíma fyrir leikinn. Í fyrstu skiptin þarf að undirbúa krakkana vel og fara til dæmis yfir hvernig spurninga á að spyrja. Einnig þarf að kenna þeim ákveðna þætti í landafræði, t.d. fara yfir heimsálfurnar, finna út hvaða lönd eru í norðri, suðri, austri og vestri og þess háttar.“

María segir að nemendurnir megi aðeins spyrja spurninga sem hægt er að svara með „já“ eða „nei“. „Þetta er stórskemmtilegt og nemendurnir bíða alltaf spenntir eftir næsta Skypefundi. Svo er þetta svo fín kennsluaðferð því nemendur fá þarna þjálfun í landafræði, ensku, rökhugsun, tjáningu og samvinnu, svo eitthvað sé nefnt.“ 

María segir að eftir hvern leik búi nemendur til miða með upplýsingum um staðinn sem verið var að tala við. „Miðarnir eru festir upp á vegg á heimskort og á skólasýningu í maí verður kynning á öllum stöðunum sem nemendur hafa heimsótt í gegnum Skype um veturinn.“

María segist vonast til að fleiri íslenskir kennarar tileinki sér forritið. „Ég hef reyndar sagt kennurum að hafa í fyrsta skiptið samband við annan skóla á Íslandi. Nemendur eru öruggari á eigin tungumáli og það gerir allt auðveldara. Annars hvet ég alla kennara til að tileinka sér MysterySkype og mæli hiklaust með leiknum.“

Einstök upplifun

Nemendur í Grunnskóla Önundarfjarðar töluðu á dögunum við nemendur í tékkneskum skóla í gegnum Skype.

Tékkneski kennarinn sendi að því loknu þakkir sínar í tölvupósti sem við birtum hér í lauslegri þýðingu:

„Á fimmtudaginn spiluðu nemendur í níunda bekk í fyrsta skipti MysterySkype með nemendum frá Grunnskóla Önundarfjarðar á Íslandi. Í upphafi voru krakkarnir feimnir og því erfitt að fá þá til að tala, en fljótlega komust þeir yfir feimnina og urðu því margs vísari við að ræða við nemendur sem búa svona langt í burtu.

Það var mjög skemmtilegt að tala við krakka í skóla þar sem aðeins eru fimmtán nemendur. Það var einnig einstök upplifun að virða fyrir sér útsýnið frá skólanum og sjá snjó, fjöll, dæmigerð íslensk hús og síðan meiri snjó. Auk þess að tala saman á ensku, leyfðu nemendur hver öðrum að heyra hvernig nokkur orð hljóma á móðurmálinu og svo sungum við nokkur lög saman. Þetta var hin besta skemmtun og mjög fín enskuþjálfun fyrir okkur. Mig langar að þakka íslenska kennaranum henni Maríu fyrir að veita okkur þetta dásamlega tækifæri.“

 

  • Greinin birtist í Skólavörðunni, 3. tbl. 2015. Skólavörðuna má nálgast hér og einnig er hægt að lesa hana í appi sem fæst í AppStore og á GooglePlay.