RannUng fagnar fimmtán ára afmæli

Fréttir|8. nóvember 2022

Afmælisráðstefna RannUng fer fram á Grand Hótel Reykjavík 11. nóvember næstkomandi.

RannUng, Rannsóknarstofa í menntunarfræðum ungra barna, fagnar stórafmæli um þessar mundir en stofnað var til rannsóknastofunnar í Kennaraháskóla Íslands á vormánuðum 2007. Markmið RannUng er að auka og efla rannsóknir á menntun og uppeldi barna á aldrinu 0 til 8 ára og vera vettvangur fræðaþróunar á því sviði. 

Þá er RannUng ætlað það hlutverk að eiga frumkvæði að og sinna rannsóknum, miðla þekkingu og kynna niðurstöður rannsókna á sviðinu. 

Í tilefni afmælisins verður efnt til mikillar afmælisráðstefnu sem fer fram á Grand Hótel Reykjavík 11. nóvember. 

Með stofnun rannsóknarstofunnar er komið til móts við breyttar aðstæður í málefnum ungra barna. Flest börn á aldrinum 3-5 ára sækja nú leikskóla og aukin þekking á því hvernig börn læra og þroskast hefur opnað augu fólks fyrir mikilvægi fyrstu æviáranna og menntun ungra barna.

Afmælisráðstefnan: Rannsóknir og leikskólastarf í 15 ár

Föstudagur 11. nóvember klukkan 13:00 til 16:00

Hildur Skarphéðinsdóttir setur ráðstefnuna

Jóhanna Einarsdóttir, prófessor á MVS HÍ

  • Höfum við gengið til góðs? Þróun leikskólastigsins síðastliðin 15 ár

 

Sara M. Ólafsdóttir, dósent við MVS HÍ

  • Tilheyra allir í leikskólanum? Sýn barna á fullgildi í fjölbreyttu leikskólasamfélagi

Sigurður Sigurjónsson, formaður félags stjórnenda leikskóla (FSL)

  • Sjónarmið KÍ

Afmæliskaffi

Hanna Ragnarsdóttir, prófessor við MVS HÍ

  • Þátttaka fjöltyngdra barna í mótun tungumálastefnu fjölskyldna

 

Sulakshna Kumar, leikskólakennari

  • Reynsla foreldra af erlendum uppruna af þátttöku í leikskólasamfélagi

 

Umræður á borðum og kynntar niðurstöður umræðna

Fundi slitið

  • Kolbrún Pálsdóttir, forseti Menntavísindasviðs

Fundarstjóri: Hanna H. Leifsdóttir, verkefnastjóri á fagskrifstofu leikskólamála á Skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborgar

Verð kr. 17.500 kr. og fer skráning fram hér