Rannsóknir í framhaldsskólum
Fréttir|4. febrúar 2014
Á vordögum standa Rannsóknarstofa um þróun skólastarfs Menntavísindasviðs HÍ og námsbraut um kennslu í framhaldsskólum fyrir sjö málstofum um rannsóknir í framhaldsskólum og á unglingastigi grunnskóla. Málstofurnar fara fram á miðvikudögum, í stofu K206 í húsnæði Menntasvísindasviðs HÍ við Stakkahlíð frá kl. 16:20 til 17:05. Hér er hægt að skoða viðburðina næstu vikur.
Fyrsta málstofan verður haldin miðvikudaginn 5. febrúar nk. en þar flytur Atli V. Harðarson skólameistari Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi og nýdoktor frá Menntavísindasviði HÍ erindið Lýðræði og skólar en í því fjallar hann um spurningarnar:
- Hvað af því sem einkennir farsælt lýðræði á heima í framhaldsskóla?
- Hverju þarf að breyta svo skólar verði lýðræðislegri?
- Hvaða hindranir eru í vegi slíkra breytinga?
- Hindranir sem verða ræddar eru annars vegar tæknihyggja og þröng sýn á gildi menntunar og hins vegar skipulag sem gerir nemendur að neytendum „skólaþjónustu“ fremur en þátttakendum í skólasamfélagi.