Rannsóknasjóður KÍ styrkir sjö verkefni

Fréttir|1. apríl 2025

Sjö verkefni hljóta styrk úr Rannsóknasjóði KÍ í ár. Til úthlutunar voru sjö milljónir króna.

Rannsóknasjóður KÍ úthlutaði í sjötta sinn úr sjóði sínum þann 27. mars 2025. Alls bárust þrettán umsóknir og sótt var um samtals tæpar fimmtán milljónir króna. Sjö verkefni hlutu styrk í ár og nam heildarfjárhæð styrkja 6.992.000 króna, en sjóðurinn hefur sjö milljónir króna til úthlutunar.

Eftirtalin verkefni hljóta styrk að þessu sinni:

Verkefni

Styrkþegi/ar

Skóli

   Fjárhæð

Understanding outsourcing in Icelandic preschools

Hiroe Terada

Leikskólinn Austurborg

1.300.000

Er áhugi meðal heimilisfræðikennara og nemenda á unglingastigi á kennslu í vistkerafæði með áherslu á sjálfbærni?

Íris Dögg Steinsdóttir

Holtaskóli Reykjanesbæ

1.100.000

Inntak og gildi leiðsagnarsamtala

Gunnar Björn Melsted

Brúarskóli Reykjavík

412.000

Heilstætt kennsluskipulag í stærðfræðikennslu

María Ágústsdóttir og Karitas Viðarsdóttir

Vallaskóli Selfossi

1.250.000

Samvinnudagar nemenda á unglingastigi

Sara Diljá Hjálmarsdóttir

Höfðaskóli Skagaströnd

830.000

Reynsla nemenda af fornámi í sjónlistum í kvöldskóla á listnáms- og hönnunarbraut VMA

Borghildur Ína Sölvadóttir og Björg Eiríksdóttir

Verkmenntaskólinn á Akureyri

800.000

Áhrif nýrra kennsluhátta á gæði skólastarfs

Tinna Ösp Arnardóttir og Fríða Gylfadóttir

Fjölbrautaskólinn í Garðabæ

1.300.000

 

 

Heildarfjárhæð

6.992.000

 

Rannsóknasjóður KÍ hefur sjö milljónir króna til umráða á ári hverju, hér er hægt að kynna sér sjóðinn, starfsemi hans og fyrri verkefni betur. Félagsfólk er einnig hvatt til að kynna sér áherslur og viðmið sjóðsins.