Rannsóknasjóður KÍ styrkir sex verkefni

Fréttir|13. mars 2026
DSC 6030
Rannsóknasjóður KÍ

Markmið Rannsóknasjóðs KÍ er að veita styrki til rannsókna sem styðja við skólastarf og dagleg störf félagsmanna KÍ.

Stjórn Rannsóknasjóðs KÍ hefur gefið út hvernig úthlutun styrkja verður háttað þetta árið. Þetta er í sjöunda sinn sem sjóðurinn veitir fé til rannsókna.

Umsóknir þetta árið voru ellefu talsins og hlutu sex þeirra brautargengi. Heildarfjárhæð styrkja að þessu sinni er 7.704.000 krónur. 

Styrkþegar komu saman í húsakynnum KÍ fyrr í dag. Formaður stjórnar Rannsóknasjóðs, Jónína Hauksdóttir, afhenti verðandi rannsakendum blóm. 

Þá var Anna Kristín Sigurðardóttir, prófessor og fulltrúi háskólastigsins, kvödd en hún hættir nú í stjórn sjóðsins þar sem hún hefur setið frá upphafi. Anna Kristín fékk miklar þakkir fyrir ómetanlegt framlag sitt í stjórnin um leið og henni var óskað velfarnaðar. 

Styrkþegar eru þessir

Margarita Hamatsu

  • leikskólanum Árbæ / Hjallastefnunni
  • Verkefnið: Strengthening Nature-Based and Regenerative Education Through Teacher-Led Research in Iceland
  • Styrkur: 1.500.000,-

Mladen Zivanovic & Aleksandra Tekiela

  • Landakotsskóla
  • Verkefnið: Lausnamenn framtíðarinnar: Skapandi stærðfræði og samvinna 
  • Styrkur: 994.000,-

Ragnar Þór Pétursson

  • Norðlingaskóla
  • Galdrasmiðja Norðlingaskóla: Lýðræðisleg skólahefð á krossgötum
  • Styrkur: 1.050.000,-

Harpa Valdimarsdóttir

  • Fjölbrautaskólanum í Garðabæ
  • Starfendarannsókn á breytingu kennsluhátta og námsmats
  • Styrkur: 1.210.000,-

Kolbrún Halldórsdóttir

  • Menntaskólanum á Tröllaskaga
  • Verkefni: Samstarf sem brú milli skólastiga: Eigindleg rannsókn í Fjallabyggð
  • Styrkur: 1.450.000,-

Fríða Gylfadóttir & Tinna Ösp Arnardóttir

  • Fjölbrautaskólanum í Garðabæ
  • Verkefni: Nemendur með í ráðum: þróun gagnvirks námsmatssamnings með gervigreind 
  • Styrkur: 1.500.000,-

Svipmyndir frá afhendingu styrkjanna