Rannsóknasjóður KÍ styrkir fimm verkefni
Fréttir|10. júní 2021

Úthlutun úr Rannsóknasjóði KÍ liggur fyrir. Sem fyrr eru fimm milljónir króna til skiptanna.
Alls hljóta fimm verkefni styrk úr Rannsóknasjóði KÍ þetta árið. Ríflega fjörtíu umsóknir bárust sjóðnum og var heildarupphæð styrkumsókna rúmlega 51 milljón króna.
Eftirtalin hljóta styrk að þessu sinni
- Gréta Mjöll Bjarnadóttir, Bjarki Þór Jónsson, Jeaneette Castioni, Rakel McMahon og Þór Elís Pálsson – Fjölbrautaskólinn við Ármúla
Verkefni: Lærdómssamfélag til framtíðar á Nýsköpunar- og listabraut FÁ.
Styrkupphæð: 1.100.000,- kr. - Heiða Björg Árnadóttir, Brynja Stefánsdóttir, Sveinbjörn Jón Ásgrímsson og Elfa Ingvadóttir – Stapaskóli
Verkefni: Áhrif forritunarnáms á rökhugusun, skilning á stærðfræði og samskiptahæfni nemenda.
Styrkupphæð: 1.400.000,- - Sigríður Þorbjörnsdóttir, Emilía Lilja Rakelar Gilbertsdóttir – Kerhólsskóli
Verkefni: Þróun flæðis í leikskóladeild Kerhólsskóla.
Styrkupphæð: 800.000,- kr. - Sigurrós Erlingsdóttir – Menntaskólinn við Sund
Verkefni: Innleiðing á þriggja þrepa matskerfi í leiðsagnarnámi framhaldsskóla.
Styrkupphæð 1.300.000,- - Svandís Egilsdóttir
Verkefni: Birtingamyndir öflugs lærdómssamfélags í tveimur grunnskólum á höfuðborgarsvæðinu.
Styrkupphæð: 400.000,- kr.
Um Rannsóknasjóð KÍ
Rannsóknasjóður KÍ var stofnaður í apríl 2019 samkvæmt samþykkt á 8. þingi KÍ vorið 2018. Markmið sjóðsins er að veita styrki til rannsókna sem styðja við skólastarf og dagleg störf félagsmanna Kennarasambands Íslands í skólum, þróa nýja fræðiþekkingu sem félagsmenn KÍ hafa þörf fyrir og stuðla að auknum gæðum í skólastarfi.