Rannsóknasjóður KÍ kynnir áherslur næsta árs

Fréttir|14. desember 2023

Sjötta úthlutun Rannsóknasjóðs KÍ er áformuð í apríl á næsta ári. Stjórn sjóðsins hefur gefið út hvaða áherslur verða í öndvegi við næstu úthlutun.

Stjórn Rannsóknasjóðs KÍ hefur ákveðið að hefja móttöku umsókna um styrk, fyrir skólaárið 2024-2025, þann 5. janúar næstkomandi. Þetta er töluvert fyrr en verið hefur en umsóknarfrestur rennur út á miðnætti sunnudaginn 10. mars 2024. 

Sjóðurinn hóf að veita styrki árið 2019  og hafa 26 rannsóknarverkefni, af margvíslegum toga, verið styrkt. Meginmarkmið með stofnun Rannsóknasjóðs er að veita styrki til rannsókna sem styðja við skólastarf og dagleg störf félagsmanna Kennarasambands Íslands í skólum, þróa nýja fræðiþekkingu sem félagsmenn KÍ hafa þörf fyrir og stuðla að auknum gæðum í skólastarfi.

Sjóðurinn hefur sjö milljónir króna til ráðstöfunar í næstu úthlutun. 

Stjórn Rannsóknasjóðs hefur gefið út hvaða áherslusvið verða á oddinum í næstu úthlutun. Þau eru eftirfarandi:

  • Árangursríkar kennsluaðferðir sem efla orðaforða, tjáningu, mál- og lesskilning
  • Nám og kennsla barna og ungmenna með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn
  • Gæði kennslu og þróun kennsluhátta í afmörkuðum sviðum eða námsgreinum
  • Staða hinsegin kennara í skólum
  • Starfsþróun sem styður við faglegt skólastarf og starfsánægju kennara

Félagsfólk sem býr hugmynd að rannsókn sem rúmast innan áherslusviðanna er hvatt til að senda inn umsókn. Hægt er að kynna sér regluverk, viðmið og umsóknarferli á síðu Rannsóknasjóðs hér á vefnum. Einnig er hægt að kynna sér þau verkefni sem þegar hafa hlotið styrk. 

Lesa meira um Rannsóknasjóð KÍ