Rannsóknasjóður KÍ hefur opnað fyrir umsóknir
Fréttir|9. mars 2022

Félagsmenn KÍ hafa frest til 12. apríl næstkomandi að sækja um rannsóknastyrk.
Opnað hefur verið fyrir umsóknir um styrki í Rannsóknasjóð Kennarasambands Íslands. Þetta er fjórða árið sem sjóðurinn er starfræktur og eru fimm milljónir króna til úthlutunar fyrir skólaárið 2022-2023. Hámarksstyrkupphæð er 1,5 milljón króna.
Áherslusvið sjóðsins eru að þessu sinni:
- Daglegt starf félagsmanna
- Samstarf
- Starfsþróun
- Lærdómssamfélag
- Ný viðfangsefni, áherslur og starfsaðferðir
Samstarfsverkefni tveggja eða fleiri félagsmanna njóta alla jafna forgangs.
Í umsókn skulu eftirfarandi atriði koma fram
- Umsækjandi/umsækjendur
- Kennitala
- Lögheimili
- Vinnustaður
- Rannsóknarefni
- Menntun og reynsla umsækjanda
- Markmið og lýsing á rannsókn; kennslufræðilegar hugmyndir, verklag, hvernig styður rannsóknin við skólastarf og dagleg störf félagsmanna
- Rökstuðningur; hver er þörfin, hverju á hún að skila, miðlun
- Tímááætlun, verkáætlun, helstu verkþættir
- Upphæð sem sótt er um
- Kostnaðaráætlun
Umsóknarfrestur er til 12. apríl 2022 og skal úthlutunum lokið 15. maí. Umsóknum skal skila á Mínum síðum KÍ.
Nánar um Rannsóknasjóð KÍ