Rannsóknasjóður KÍ framlengir frest
Fréttir|11. apríl 2022

Hægt að sækja um rannsóknastyrk til 2. maí.
Stjórn Rannsóknasjóðs KÍ hefur ákveðið að framlengja frest til umsókna til 2. maí næstkomandi. Fimm milljónir króna eru til úthlutunar fyrir skólaárið 2022-2023 og er hámarksstyrkupphæð 1,5 milljónir fyrir hvert verkefni.
Þetta er fjórða árið sem Rannsóknasjóður KÍ veitir styrki og eru áherslusviðin að þessu sinni:
Áherslusvið sjóðsins eru að þessu sinni:
- Daglegt starf félagsmanna
- Samstarf
- Starfsþróun
- Lærdómssamfélag
- Ný viðfangsefni, áherslur og starfsaðferðir
Samstarfsverkefni tveggja eða fleiri félagsmanna njóta alla jafna forgangs.
Í umsókn skulu eftirfarandi atriði koma fram
- Umsækjandi/umsækjendur
- Kennitala
- Lögheimili
- Vinnustaður
- Rannsóknarefni
- Menntun og reynsla umsækjanda
- Markmið og lýsing á rannsókn; kennslufræðilegar hugmyndir, verklag, hvernig styður rannsóknin við skólastarf og dagleg störf félagsmanna
- Rökstuðningur; hver er þörfin, hverju á hún að skila, miðlun
- Tímááætlun, verkáætlun, helstu verkþættir
- Upphæð sem sótt er um
- Kostnaðaráætlun
Umsóknarfrestur er til 2. maí 2022. Úthlutun fer fram í maí.
Umsóknum skal skila á Mínum síðum KÍ.
Nánar um Rannsóknasjóð KÍ