Rannsóknasjóður KÍ auglýsir eftir umsóknum

Fréttir|5. apríl 2023

Sjö milljónir króna eru til úthlutunar hjá Rannsóknasjóði KÍ sem er á sínu fimmta starfsári. Nýliðar í starfi, líðan hinsegin barna og þróun kennsluhátta eru meðal áherslusviða í komandi úthlutun.

Opið er fyrir umsóknir um styrki í Rannsóknasjóð KÍ fyrir skólaárið 2023-2024. Þetta verður sjötta starfsár sjóðsins en til hans var stofnað á þingi KÍ árið 2018. Hámarksstyrkupphæð er 1,5 milljón króna. Alls hafa 23 verkefni verið styrkt frá stofnun sjóðsins.

Rannsóknasjóður KÍ veitir styrki til vel skilgreindra rannsókna sem beinast almennt að daglegu starfi félagsmanna, breytilegu hlutverki menntunar, nýjum viðfangsefnum, áherslum og starfsaðferðum.

Stjórn sjóðsins hefur ákvarðað að áherslusvið 2023-2024 verða eftirfarandi

  • Nýliðar, móttaka og stuðningur í starfi
  • Líðan hinsegin barna í skólum
  • Gæði í kennslu og gæðaviðmið, þróun kennsluhátta

Samstarfsverkefni tveggja eða fleiri félagsmanna njóta alla jafna forgangs.

Umsóknarfrestur er til 30. apríl 2023 og stefnt er að því að úthlutun verði lokið 15. maí 2023. Umsóknum skal skilað á Mínum síðum á vef KÍ.

 

Í umsókn þarf eftirfarandi að koma fram

  • Umsækjandi/umsækjendur
  • Kennitala
  • Lögheimili
  • Vinnustaður
  • Rannsóknarefni
  • Menntun og reynsla umsækjanda
  • Markmið og lýsing á  rannsókn; kennslufræðilegar hugmyndir, verklag, hvernig styður rannsóknin við skólastarf og dagleg störf félagsmanna
  • Rökstuðningur; hver er þörfin, hverju á hún að skila, miðlun
  • Tímaáætlun, verkáætlun, helstu verkþættir
  • Upphæð sem sótt er um
  • Kostnaðaráætlun