Rannsóknarverkefni í tengslum við vinnurétt

Fréttir|30. apríl 2020

KÍ vill efna til samstarfs við laganema til að vinna að rannsóknarverkefni.

Kennarasamband Íslands hefur áhuga á samstarfi við sjálfstæða áhugasama laganema í sumar til að vinna að rannsóknarverkefni í tengslum við vinnurétt ef styrkur fæst úr  Nýsköpunarsjóði námsmanna. Komist á samstarf og samþykki sjóðurinn verkefnið greiðir sjóðurinn styrk til viðkomandi nema.

Frekari upplýsingar um Nýsköpunarsjóð námsmanna má nálgast á vefsíðu Rannís.

Áhugasamir geta haft samand við Önnu Rós Sigmundsdóttur, lögfræðing KÍ, í gegnum netfangið annaros@ki.is. Mikilvægt er að senda eftirfarandi upplýsingar eigi síðar en mánudaginn 4. maí  ef þú hefur áhuga á frekari samstarfi:

  • Nafn
  • Sími
  • Netfang
  • Ferilskrá
  • Námsferilsyfirlit
  • Aðrar upplýsingar sem þú vilt koma á framfæri“

 

Með fyrirfram þökk og kærri kveðju,