Rannsóknarstofa um tónlist og menntun stofnuð

Markmið nýrrar rannsóknarstofu er að efla og hvetja til rannsókna á sviði tónlistarmenntunar á öllum skólastigum
Rannsóknarstofa um tónlist og menntun hefur verið sett á laggirnar. Stofnfundur fór fram síðastliðinn föstudag að frumkvæði Helgu Rutar Guðmundsdóttur prófessors í tónlistarfræðum á Menntavísindasviði. Markmið fundarins var formleg stofnun rannsóknarstofu um tónlist og menntun auk kosningar stjórnar stofunnar sem mun skila árskýrslu árlega til Menntavísindastofnunar sem einnig mun hýsa heimasíðu rannsóknarstofunnar.
Markmið rannsóknarstofu um tónlist og menntun er að efla og hvetja til rannsókna á sviði tónlistarmenntunar á öllum skólastigum. Stefnt er að því að rannsóknarstofa um tónlist og menntun geti stuðlað að umræðu um gildi og hlutverk tónlistarmenntunar í víðum skilningi.
Rannsóknarstofa um tónlist og menntun skapar vettvang fyrir meistara- og doktorsnema til að taka þátt í rannsóknum og að taka þátt í miðlun rannsóknarniðurstaðna.
Stór þáttur í starfsemi rannsóknarstofu felst í að standa fyrir styrkumsóknum og að leiða saman rannsakendur, háskólanema og hagaðila í mótun rannsóknarverkefna bæði innlendra og erlendra samstarfsverkefna þvert á stofnanir samfélagsins.
Rannsóknarstofa um tónlist og menntun stefnir að því að miðla rannsóknum og að hvetja til faglegrar umræðu um málefni tónlistarmenntunar í samfélaginu með þátttöku í málþingum og ráðstefnum auk þess að standa fyrir opinberum málþingum um tónlist og menntun.
Stjórn mótar stefnuna og efnir til viðburða
Á stofnfundinn voru boðaðir nemendur á Menntavísindasviði í rannsóknatengdu námi (M.Ed. og Ph.D.) með áherslu á tónlist og menntun, auk fulltrúa frá Intelligent Instruments Lab sem starfar við Háskóla Íslands. Listaháskóla Íslands var boðið að senda fulltrúa sinn á stofnfundinn.
Þessi sóttu stofnfundinn: Helga Rut Guðmundsdóttir, prófessor við MVS HÍ, Natalia Duarte Jeremías, doktorsnemi við MVS HÍ, Adam J. Switala, doktorsnemi við HÍ, Fríða Dís Guðmundsdóttir, M.Ed. nemi við MVS HÍ , Halldór Arnar Úlfarsson, Intelligent Instruments Lab, HÍ, Elín Anna Ísaksdóttir, LHÍ, Ingimar Waage, LHÍ , Harpa Þorvaldsdóttir, Syngjandi skóli – Reykjavíkurborg, Dagný Arnalds, FT , Sigrún Grendal, FT, og Kolbrún Hulda Tryggvadóttir, TKÍ.
Stjórn rannsóknarstofunnar mun funda minnst árlega og móta stefnu stofunnar og skipuleggja viðburði á vegum hennar.