Rafrænt félagsskírteini komið í gagnið

Fréttir|30. september 2026

Félagsfólk KÍ getur nú sótt um rafrænt félagsskírteini og hlaðið niður í farsímaveski.

Nú er hægt að nálgast rafrænt félagsskírteini KÍ og hlaða því beint í farsímaveskið. Skírteinið er að finna á mínum síðum og er í boði bæði fyrir iPhone- og Android-síma.

Aðildarfélag félagsmannsins kemur fram á skírteininu. Aðild að félögum KÍ fylgja ýmis fríðindi, afslættir og tilboð sem hægt er að kynna sér á Orlofsvefnum. 

Við hvetjum félagsfólk til að skoða vel þau fjölbreyttu kjör sem í boði eru. Linda Björk Pálsdóttir framkvæmdastjóri Orlofssjóðs segir virkilega ánægjulegt að rafræna félagsskírteinið sé komið í gagnið: „Svo er einnig gaman að segja frá því að nú styttist í að Orlofssjóður opni nýjan bókunarvef þar sem enn verður aukið við framboð afslátta.“

Dæmi um afsláttarkjör

  • 15% afsláttur af aðalskoðun hjá Tékklandi og Aðalskoðun
  • 20% afsláttur hjá Hertz bílaleigu
  • 10% afsláttur hjá Fitness sport
  • 30% afsláttur hjá Home & you

Vef­ur Or­lofs­sjóðs

Hér er hægt að kynna sér afsláttarkjör og fleira sem Orlofssjóður er með í boði.

Nánar