Rafræn kosning um kjarasamning skólastjórnenda
Fréttir|11. júní 2014
Nýr kjarasamingur Skólastjórafélags Íslands og Sambands íslenskra sveitarfélaga, sem var undirritaður 10. júní sl., verður borinn undir atkvæði félagsmanna dagana 12. til 19. júní.
Kosningin hefst klukkan 9.00 12. júní og lýkur klukkan 13.00 19. júní 2014.
Nánar má kynna sér kjarasamninginn og dagskrá kynningarfunda hér.
Hvernig á að greiða atkvæði?
- Atkvæðagreiðslan fer fram á Mínum síðum. Hægt er að greiða atkvæði í hvaða nettengdri tölvu sem er. Kjósendur þurfa að skrá sig inn á Mínar síður með Íslykli. Þeir sem ekki eru komnir með Íslykil geta pantað hann með því að smella á hnappinn Sækja um Íslykil sem er undir stóra bláa hnappinum Mínar síður. Þegar komið er inn á Mínar síður birtist flipi sem heitir Kosningar. Smellið á kosninguna sem heitir Atkvæðagreiðsla um kjarasamning SÍ og þá birtist atkvæðaseðillinn.
- Veljið einn af eftirfarandi svarmöguleikum sem eru: Já, Nei, Skila auðu.
- Smellið að lokum á flipann Kjósa og þá birtist eftirfarandi texti til að staðfesta að atkvæði hafi verið greitt: Atkvæði þitt hefur verið móttekið.Ef viðkomandi vill fresta því að greiða atkvæði skal smella á: Hætta við kosningu.