Rafmagnsleysi kom í veg fyrir Skólamálaþing

Því miður varð að fresta fyrirhuguðu Skólamálaþingi í dag. Erindin verða tekin upp og send út á netinu.
Fjöldi félagsmanna var samkominn í salarkynnum Hótel Natura klukkan þrjú í dag en þá átti Skólamálaþing KÍ að hefjast. Ekki fór betur en svo að brunabjöllur glumdu á slaginu þrjú og á sömu stundu varð dimmt í salnum. Kom í ljós að rafmagn hafði farið af hótelinu og raunar öllu nágrenninu. Streymið datt út og félagsmenn víða um land sáu bara svartan skjá.
Þær upplýsingar fengust hjá Veitum að viðgerð gæti tekið klukkustund, jafnvel meira. Var því ekkert annað í stöðunni en að aflýsa þinginu, í bili að minnsta kosti.
Yfirskrift þingsins var Fögnum fjölbreytileikanum í skólanum og stóð til að fjalla um hinsegin málefni í skólakerfinu frá ýmsum hliðum. Skólamálaþing er jafnan haldið í tengslum við kennaradaginn, Alþjóðadag kennara, sem er í dag, 5. október.
Ákveðið hefur verið að fá fyrirlesara í salarkynni KÍ í Borgartúni á næstu dögum og taka erindin upp. Þau verða síðan send út á netinu þannig að allir geti notið. Nánari tímasetning verður kynnt rækilega þegar hún liggur fyrir.
Teiknararnir Elín Elísabet Einarsdóttir og Rán Flygering hugðust myndskreyta þingið í rauntíma. Af því varð ekki en þær teiknuðu þó nokkrar myndir af því sem gerðist þegar rafmagnið fór af og þinginu var aflýst. Myndirnar er hægt að skoða í albúmi hér að neðan.
Dagskrá þingsins
Setning
Jónína Hauksdóttir, varaformaður KÍ
Ávarp
Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra
Hinseginvænir skólar: Ekki bara fornöfn og regnbogafánar
Íris Elleneberg, dósent á Menntavísindasviði HÍ
Regnbogavottun: Öflugt tæki fyrir hinseginvænna skólastarf
Svandís Anna Sigurðardóttir, sérfræðingur á mannréttinda- og lýðræðisskrifstofu Reykjavíkurborgar
Fyrirmyndir fjölbreytileikans hjá fyrsta skólastiginu
Sólrún Óskarsdóttir, skólastjóri í Brákarborg
Mikilvægi hinsegin fyrirmynda í skólastarfi
Hafþór Óskarsson, kennari í Langholtsskóla
Hinsegin börn eru börn
Nóam Stefánsson framhaldsskólanemi
Hinseginleikinn í tónlistarskólanum, er hann til?
Harpa Jóhannsdóttir, tónlistarkennari við Tónlistarskóla Reykjanesbæjar
Mara Birna Jóhannsdóttir, tónlistarnemi í Listaháskóla Íslands
Líðan hinsegin barna: Hvað getum við gert? Stuðningur við hinsegin börn og ungmenni.
Tótla I. Sæmundsdóttir, fræðslustýra Samtakanna ´78
Þingslit
Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ