Rætt um tveggja og hálfs árs samning
Viðræður um endurnýjun kjarasamnings félaga í FF og FS ganga hægt og töluvert hik er á samninganefnd ríkisins. Þetta kom fram í ávarpi sem Elna Katrín Jónsdóttir, fulltrúi í samninganefnd FF, hélt í Verkfallsmiðstöðinni í Framheimilinu í dag. Hún sagði líklegt að samið yrði til 2 ½ árs eins og staðan væri núna. Leiðrétting á launum væri forgangsatriði hjá samninganefndinni og að „það örlaði á skilningi mótaðilans á nauðsynlegt sé að horfast í augu við þá staðreynd að launaskrið sé miklu minna innan framhaldsskólans en hjá öðrum stofnunum ríkisins“. Elna hvatti ennfremur viðstadda til samstöðu enda væri samtakamáttur stéttarinnar afar mikilvægur við samningaborðið.
Um fimm hundruð framhaldsskólakennarar mættu í Verkfallsmiðstöðina í Framheimilinu í dag. Guðjón Ragnar Jónasson, forsvarsmaður Verkfallsmiðstöðvarinnar, segir að gestum fjölgi jafnt og þétt í verkfallsmiðstöðinni. „Hér svífur samtakamátturinn yfir vötnum,“ segir Guðjón Ragnar.
Haraldur Freyr Gíslason, formaður Félags leikskólakennara, ávarpaði gesti Verkfallsmiðstöðvarinnar. Haraldur sagði FL standa þétt að baki framhaldsskólakennurum í baráttunni fyrir bættum kjörum. „Ykkar barátta er okkar barátta,“ sagði Haraldur Freyr.
Samningafundir stóðu yfir alla helgina og fundur stendur nú yfir í húsakynnum ríkissáttasemjara.