Ræðum stefnu og ákvarðanir í menntamálum

Fréttir|25. febrúar 2016

Sjónum er nú beint að stefnu Hvítbókar um læsi. Félagsfólk er hvatt til að taka virkan þátt í umræðunni.

Skólamálaráð KÍ sendi frá sér Umræðuhefti um stefnu og ákvarðanir í menntamálum hér á landi í janúar síðastliðnum. 

  • Hvernig getur íslenskt menntakerfi veitt börnum og ungu fólki sem besta menntun og velferð fyrir lífið?
  • Í hvaða átt þarf íslenskt menntakerfi að þróast og hvernig?
  • Hvert er hlutverk skólafólks og kennarasamtakanna í þeirri þróun og hvernig?
  • Á hvaða vegferð erum við í menntamálum?
  • Hvaða útlínur má greina?
  • Eru þær til framdráttar menntun, velferð og skólastarfi?


Bent var á að tilteknir þættir í heftinu yrðu sendir út með vissu millibili. Núna er vakin sérstök athygli á stefnu hvítbókar um læsi, tillögum um aðgerðir og ákvörðunum um framkvæmd. Aftast í heftinu eru ýmsar tölulegar upplýsingar sem varða læsismálin.

Félagsfólk er hvatt til að ræða efnið og senda frá sér hugleiðingar og pistla. Efni sem berst verður birt í miðlum KÍ.

Umræðuhefti Skólamálaráðs KÍ um læsi. 

Hér má finna Umræðuheftin og bréf sem voru sent til trúnaðarmanna og formanna svæða- og félagsdeilda.