Ræddu samráð KÍ og ráðuneytis í menntamálum

Fréttir|9. júlí 2025
Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ, og Guðmundur Ingi Kristinsson, mennta- og barnamálaráðherra, stilltu sér upp fyrir fundinn.

Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ, fór til fundar við Guðmund Inga Kristinsson, mennta- og barnamálaráðherra í morgun.

Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ, og Guðmundur Ingi Kristinsson, mennta- og barnamálaráðherra, funduðu í húsakynnum Alþingis í morgun. 

Fram kom á fundinum að ráðherra leggur mikið upp úr samráði við Kennarasambandið, í víðtækum skilningi, og var fundurinn liður í því að skipuleggja næstu skref. 

Einkum var horft til þeirra atriða sem nú liggja til grundvallar í annarri aðgerðaáætlun menntastefnu fyrir árin 2025 til 2027 – en áætlunin markar annan áfanga af þremur í innleiðingu Menntastefnu til 2030. Jafnframt var á fundinum rætt vítt og breitt um menntamál og áhersluatriði allra skólagerða. 

Í sumarlok munu fulltrúar Kennarasambandsins og ráðuneytis funda um næstu skref sem ætlað er að efla enn frekar samstarf milli þessara lykilaðila íslensks skólasamfélags. 

Formaður KÍ kvaðst sáttur við fundinn. „Ég fagna því að ráðherra menntamála beri miklar væntingar um samráð við fulltrúa okkar hjá KÍ í því verkefni að efla skólastarf í landinu. Við hlökkum mjög til samstarfs við ráðuneytið og deilum væntingum með ráðherranum," sagði Magnús Þór Jónsson.