Ræða formanns KÍ á mótmælafundi á Austurvelli

Fréttir|11. september 2024

Nokkur hundruð manns komu saman á Austurvelli í gær til þess að mótmæla skeytingarleysi stjórnvalda í efnahagsmálum þjóðarinnar. „Heimilum landsins blæðir," sagði Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambandsins, sem var einn ræðumanna fundinum. Ræðan er birt hér á eftir.

Ágæti Austurvöllur!

Þing var sett í dag. Fram undan er vegferð alþingismanna og ráðherra að sinna sínu starfi — starfi sem ætlað er að þjónusta íslenskt samfélag í samræmi við vænttingar þess.

Erindi okkar sem tölum hér í dag er að benda á þá þætti sem við teljum að geti orðið farsælir fyrir land og þjóð, og viljum að verði ræddir í sölum Alþingis á næstu vikum og mánuðum. Þar fer hæst umræða um vexti og verðbólgu enda ljóst að verulega reynir á þolmörk íslenskra heimila, sem hafa þurft að herða beltið vegna þess að ekki hefur enn tekist að ná böndum á efnahagsstjórn landsins með augljósum áhrifum á heimilisbókhaldið.

Eina ferðina enn virðast heimilin eiga að borga fyrir lélega efnahagsstjórn. Lausnin sem sumir stjórnmálaleiðtogar nefna er niðurskurður og einkavæðing með tilheyrandi kostnaði, sem fellur á neytendur. Það má aldrei flytja vandann yfir á heimilin með því að skera niður eða það sem stjórnmálamenn kalla að hagræða í stóru kerfunum, enda hefur það ekki gefist vel ef við bara lítum til nágranna okkar.

Lítið fer fyrir umræðu stjórnmálanna um hvar á að forgangsraða áherslum þegar kemur að daglegu lífi okkar allra — og þá ekki síst þegar við horfum á samtrygginguna sem liggur í kerfunum sem snerta okkur. Alloft snýst umræða stjórnmálanna  um að leiðin út úr vandanum sé að veikja grunnkerfin — og blekkingin sem felst í orðinu hagræðing er auðvitað löngu augljós — raunverulega orðið er niðurskurður.

Við verðum að vernda grunnkerfin — en ekki herða að þeim. Það þarf sem dæmi að bregðast við þeim vanda sem steðjar að skólum þessa lands. Það þarf að bregðast við þeirri stöðu að nú, árið 2024, er hlutfall fagmenntaðra kennara á öllum skólastigum í sögulegu lágmarki. Í allri umræðu um gæði í skólastarfi þarf að horfa á þá staðreynd að einungis 80 prósent grunnskólakennara er með kennaramenntun, hlutfallið í leikskólanum er 25 prósent og framhaldsskólinn stefnir í sömu átt eftir skarpa breyting síðustu tíu ára.

Einhver gæti spurt hvaða máli skiptir þetta í stóra samhenginu? Við verðum að horfa á stóru myndina. Það þarf að fara fram samfélagslegt samtal um hversu miklu máli skiptir að fjárfesta í fólki, í okkar tilviki, kennurum, líkt og staðan í skólakerfinu sýnir. Það gæti orðið okkur dýrkeypt í framtíðinni ef við verndum ekki grunnkerfi eins og menntakerfið okkar. Við erum að tala um framtíð allra barna og ungmenna. Við erum að tala um framtíð þjóðarinnar og framtíðarárangur okkar sem samfélags.

Samfélagið er munnurinn og þingið eyrun, ekki öfugt.

Börn eiga skilið bestu menntun sem völ er á. Fjárfesting í skólakerfinu er fjárfesting í börnum — og þar með í framtíðinni. Fjárfesting í kennurum verður því fjárfesting í samfélaginu. Hún tryggir börnum vellíðan, fagmennsku og stöðugleika. Fjöldamargar rannsóknir sýna að menntun bætir félagslega stöðu, býr börn undir virkari þátttöku í samfélaginu þar sem þau verða hæfari einstaklingar í fjölmenningarlegu samfélagi Íslands í dag og til framtíðar.

Ég geri kröfu um að stjórnvöld þori að taka þátt í uppbyggilegu samtali um metnaðarfulla framtíð. Það hefur verið hryggilegt að hlusta á fulltrúa þingflokka, sem síðustu daga hafa lýst komandi vetri á Alþingi sem „miklum átakavetri“.

Ég held að verkefnin sem liggja fyrir kalli einmitt ekki á átök.

Átök hafa ekki skilað okkur langt fram á veginn þegar kemur að kerfunum sem þjóðin treystir á að virki hvern dag og það er krafa okkar að á raddir þjóðarinnar sé hlustað.

Heimilum landsins blæðir. Hátt vaxtastig og verðbólga gerir þeim efnahagslega erfitt fyrir. Það bitnar á börnunum okkar og framtíðinni. Á sama tíma er skortur í skólakerfinu — þannig að enn meira kreppir að börnunum. Það þarf að standa vörð um heimilin og það þarf að standa vörð um hagsmunamál heimilanna — eins og skólakerfið, sem er stór þáttur.

Ég vænti þess að kjörnir þingmenn og ráðherrar muni sinna sínum störfum af heilindum, og horfi til lausna sem þjóna fólkinu sem byggir okkar samfélag.

Fyrir nokkrum árum var mér bent á að mögulega væri ákveðin vísbending fólgin í því að okkur voru gefin tvö eyru en bara einn munnur.  Það er mikilvægt að hlusta.

Kennarasamband Íslands skorar á löggjafarþingið að hlusta eftir röddum þjóðarinna, bæði í dag og á næstu vikum. Samfélagið er munnurinn og þingið eyrun, ekki öfugt. Þannig náum við betri árangri þannig leysum við saman vandann sem vextir og verðbólga búa til — og þannig byggjum við upp kerfin sem eru okkur öllum svo mikilvæg.

Muna, tvö eyru og einn munnur, stöndum vörð um grunnkerfin okkar!

  • Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ
  • Ræða flutt á Austurvelli síðdegis 10. september 2024

Svipmyndir frá fundinum