Ráðstefna um kynbundið ofbeldi og ábyrgð skólans

Fréttir|9. mars 2023

Stígamót efna til ráðstefnu föstudaginn 10. mars þar sem fjallað veðrur um kynbundið ofbeldi og ábyrgð skólans.

Ráðstefnan er haldin í tengslum við átakið Sjúkást og er sérstaklega sniðin að starfsfólki sem er í forsvari fyrir forvarnir og aðgerðir gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi ungmenna í grunn- og framhaldsskólum.

Samkvæmt þingsályktunartillögu um forvarnir meðal barna og ungmenna gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi og áreitni bjóðum við sérstaklega velkomna fulltrúa grunnskólanna sem sitja í nýstofnuðum forvarnarteymum, og námsráðgjafa og aðra starfsmenn framhaldsskóla sem sitja í teymi verkefnisins Heilsueflandi framhaldsskóli. Að því sögðu eru öll önnur sem hafa áhuga á því að dýpka þekkingu sína og taka þátt í baráttunni gegn kynferðisofbeldi velkomin.

Ráðstefnan stendur frá 10 til 15. Upptaka af fundinum verður gerð aðgengileg að honum loknum. 

Viðburðurinn er haldinn í samstarfi við forsætisráðuneytið, mennta- og barnamálaráðuneytið, Samband íslenskra sveitarfélaga og Kennarasamband Íslands.

  • Hér er hægt að lesa meira um viðburðinn.
  • Hér er hægt að kynna sér dagskrána.