Ráðstefna um hlutverk leiðsagnarkennara í norrænu skólakerfi

Norræn ráðstefna um störf og hlutverk leiðsagnakennara í skólastarfi á Norðurlöndum verður haldin í Reykjavík dagana 11. og 12. nóvember næstkomandi.
Yfirskrift ráðstefnunnar er: Hlutverk leiðsagnarkennara á Norðurlöndum.
Á ráðstefnunni verður fjallað um þörfina á stefnumótun er kemur að leiðsögn og stuðningi við nýja kennara.
Tilgangur ráðstefnunar er mynda vettvang til að leiðsögn við kennara og auka skilning og þekkingu á mikilvægi þess að kennarar fái markvissa leiðsögn í upphafi starfsferils.
Ráðstefnan verður í fyrirlestraformi en auk þess verða pallborðsumræður og málstofur þar sem ýmis mál verða rædd. Ráðstefnan verður á ensku.
Ráðstefnan, sem er lokapunktur verkefnis sem hefur staðið yfir frá árinu 2017, er haldin á vegum NordPlus með stuðningi Norrænu ráðherranefndarinnar.
Að NordPlus-verkefninu standa Kennarasamband Íslands, Danmarks Lærerforening, IMAK á Grænlandi, Utdanningsforbundet í Noregi og tveir háskólar sem mennta kennara; Háskólinn í Suðaustur-Noregi og Háskólinn í Åbo í Finnlandi. Verkefninu lýkur formlega á næsta ári.
Ráðstefnan er öllum opin og skráning er hér.