Ráðstefna um hávaða og streitu

Fréttir|24. september 2015

Vinnueftirlit ríkisins, Kennarasamband Íslands og Háskólinn á Akureyri efna til ráðstefnu um streitu og hávaða á vinnustöðum miðvikudaginn 30. september næstkomandi. Fjallað verður um skaðlegan hávaða í vinnuumhverfi, hvernig hávaði veldur einstaklingum heilsutjóni – til dæmis streitu, hvaða reglugerðir og mælingar er hægt að hafa til viðmiðunar. Þá verður fjallað um hvernig unnt er að fyrirbyggja skaðsemi hávaða í vinnuumhverfi. 

Ráðstefnan verður haldin í Háskólanum á Akureyri og er öllum opin. Aðgangur ókeypis. 

Dagskrá

9:00 Setning ráðstefnunnar

9:10 Hávaði er skaðvaldur og veldur m.a. streitu. Dr. Valdís Ingibjörg Jónsdóttir, talmeina- og raddfræðingur.

9:40  Hávaðaskaði, hvað er það? Erlingur Hugi Kristvinsson, háls, nef og eyrnalæknir.

10:00 Kaffihlé

10:20 Mælingar og reglugerðir um hávaða. Sigurður Karlsson, sérfræðingur hjá Vinnueftirliti ríkisins.

10:40  Þarf þetta að vera svona hátt? Gunnar Gunnsteinsson framkvæmdastjóri MAK. 

11:00 Hljóðvist og hönnun vinnuumhverfis. Ólafur Daníelsson verkfræðingur. 

11:30 Pallborðsumræður

12:00 Samantekt og slit

Fundarstjóri: Ásta Snorradóttir, sérfræðingur hjá Vinnueftirliti ríkisins