Ráðstefna Heilsueflandi grunnskóla
Ráðstefna Heilsueflandi grunnskóla 2015 verður haldin 21. ágúst n.k. kl. 8:30 – 15:30. Ráðstefnan er öllum opin og verður haldin í Víðistaðaskóla í Hafnarfirði.
Heilsueflandi grunnskóli er á vegum Embættis landlæknis og finna má nánari upplýsingar um það á heimasíðu Embættis landlæknis www.landlaeknir.is/hgs. Í aðalnámskrá um grunnskóla er Heilsa og velferð einn af grunnþáttum menntunnar og mun Heilsueflandi grunnskóli auðvelda skólum að setja sér heilsustefnu og útfæra aðgerðaráætlun með markmiðum til að efla sig í heilsueflingu og vellíðan.
Starfsfólk þeirra skóla sem eru nú þegar þátttakendur í verkefninu og þeir sem hafa áhuga á sækja um að starfa í anda Heilsueflandi grunnskóla eru sérstaklega hvattir til að mæta.
Takið daginn frá og fylgist með á heimasíðu Embættis landlæknis www.landlaeknir.is hvenær skráning hefst. Ráðstefnugjaldi verður haldið í lágmarki.