Ráðstefna Félags sérkennara - Farsæld barna

Ráðstefna Félags sérkennara á Íslandi verður haldin á Grand Hótel mánudaginn 27. nóvember 2023 kl. 9:00 til 15:30. Í lok ráðstefnu verður aðalfundur félagsins haldinn. Yfirskrift ráðstefnunnar er Farsæld barna. Það eru öll velkomin á ráðstefnuna, þátttakendur greiða 11.500 kr. fyrir skuldlausa félagsmenn FÍS og 13.500 kr. fyrir þá sem ekki eru í félaginu. Greiða þarf gjaldið við skráningu og greiðist það inn á reikning félagsins, reikningsnúmer: 0326-26-985 kt.6706790129.
Ráðstefna Félags sérkennara á Íslandi verður haldin á Grand Hótel mánudaginn 27. nóvember 2023 kl. 9:00 til 15:30. Í lok ráðstefnu verður aðalfundur félagsins haldinn.
Yfirskrift ráðstefnunnar er Farsæld barna.
Það eru öll velkomin á ráðstefnuna, þátttakendur greiða 11.500 kr. fyrir skuldlausa félagsmenn FÍS og 13.500 kr. fyrir þá sem ekki eru í félaginu. Greiða þarf gjaldið við skráningu og greiðist það inn á reikning félagsins, reikningsnúmer: 0326-26-985 kt.6706790129.
Boðið verður upp á möguleika á að kaupa sér hádegishlaðborð í hádeginu.
Dagskrá:
Kl.8:30 Skráning og kaffi
Kl.09:00 - Setning málþings - Sædís Ósk Harðardóttir formaður
Kl.09:00 – 09:10 Ávarp – Hr. Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands
Kl.09:10-10:10. Jóhanna Jóhannesdóttir, Jóhanna ætlar að fjalla um börn sem glíma við flókin þroskaáföll (e. Complex trauma) út frá módelinu Attachment and Resilience Based Model (Tengslamyndun, Tilfinningastjórnun, Færniþættir) sem styður starfsfólk við að skyggnast á bak við tilfinningalegan óstöðugleika barna. Í umhverfi þar sem skilningur, umhyggja, samhygð og öryggi er ríkjandi aukast líkur á því að börn sem glíma við þroskaáföll nái ró. Farið verður yfir leiðir sem starfsmenn geta nýtt sér til að setja tilfinningarlegan óstöðugleika barna í merkingarbært samhengi og bregðast við af yfirvegun, rósemd og viðeigandi festu sem eykur mjög líkur á að þörfum þessara barna sé mætt á þroskavænlegan máta. Litið verður til helstu styrkleika og hamlandi þátta hjá starfsfólki almennt. Þætti sem aukið geta líkur eða dregið úr líkum á að börn með tengslavanda finni fyrir nauðsynlegu öryggi og stöðugleika hjá starfsfólki
Jóhanna er félagsráðgjafi, MA og nemi í fjölskylduráðgjöf. Jóhanna hefur unnið með fjölskyldum og fósturfjölskyldum til fjölda ára hjá Barnavernd Reykjavíkur. Hún hefur því mikla reynslu af handleiðslu við fósturforeldra og starfsmenn leik- og grunnskóla í málefnum barna sem glíma við flókin þroskaáföll (e. Complex trauma). Í dag leiðir hún stuðning inn í flókin mál við lykilaðila barna með tengslamiðaðri nálgun. Jóhanna starfar þess utan sjálfstætt við að fræða fósturforeldra og stofnanir og er einnig með reglulega fræðslu í Endurmenntun um málefnið. Hún er ennfremur ráðgjafi hjá Píeta samtökunum.
Kl.10:10-10:45 Karitas Ósk Bjarkadóttir Laxdal - Karitas mun fjalla um niðurstöður MA rannsóknar hennar sem ber heitið: Farsældarlögin eiga að tryggja réttindi barna samkvæmt Barnasáttmálanum“: „Nú ætlum við að innleiða nýja hugsun um farsæld barna“. Karitas er félagsráðgjafi að mennt og vinnur með börnum og fjölskyldum hjá Velferðarsviði Reykjavíkurborgar. Áður hefur hún starfað hjá barnavernd, komið að stofnun og stýrt frístund fyrir fötluð börn í Garðabæ ásamt því að hafa haldið utan um stefnuna Velferð barna í Garðabæ.
Kl.10:45-11:00 Kaffihlé
Kl.11:00-12:00 Hanna Dorothéa Bizouerne „Í erindi sínu mun Hanna veita almenna fræðslu um kvíða hjá börnum, hjálplegar leiðir sem kennarar geta nýtt í vinnu sinni með börnum með kvíðavanda, leiðir til að fá foreldra þeirra í samvinnu og úrræði sem stendur þessum fjölskyldum til boða.„ „Hanna Dorothéa Bizouerne hefur starfað sem sálfræðingur á Litlu kvíðameðferðarstöð síðan 2018. Hanna sérhæfir sig í meðferð við hegðunar- og tilfinningavanda hjá börnum, úrvinnslu áfalla og greiningar á frávikum í taugaþroska. Hanna hefur einnig unnið sem skólasálfræðingur fyrir ýmis sveitarfélög og hefur því góða reynslu af ráðgjöf til kennara og stjórnenda vegna nemenda með sálrænan vanda.“
Kl.12:00-13:00 Hádegishlé
Kl.13:00-14:00 “Barnið verður hjartað í kerfinu”. Unnur Helga Ólafsdóttir og Berglind Hauksdóttir, sérfræðingar á farsældarsviði Barna- og fjölskyldustofu. Fjallað verður um það hvernig breytt nálgun í samþættri þjónustu mun birtast börnum og fjölskyldum þeirra. Áhersla verður lögð á samræmingu þjónustu á landsvísu og skilvirk vinnubrögð fagaðila í umhverfi barns. Einnig verður fjallað um mikilvægi valdeflingar og þátttöku foreldra og barna í samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna.
Kl.14:00-14:40 Sólveig Sigurðardóttir, deildarstjóri farsældarþjónustu barna og Dagný Hauksdóttir, sviðsstjóri mennta- og menningarmála á Akranesi.
Þær ætla að fjalla um stöðu innleiðingar á Akranesi.
Kl.14:40-15:00 Kaffihlé
Kl.15:00-15:20 Hugleiðing í lok ráðstefnu, Ragnar Þór Pétursson, kennari í Norðlingaskóla.
Kl.15:20-15:30 Ráðstefnuslit
Ráðstefnustjóri er Jónína Rós Guðmundsdóttir
Aðalfundur félagsins verður í kjölfar fræðsludagsins kl. 15:45. Á dagskrá eru hefðbundin aðalfundarstörf.
