Ráðningarlöggan – hlutverk trúnaðarmanna í ráðningarferli
Trúnaðarmenn gegna mikilvægu eftirlitshlutverki í ráðningarferli félagsmanna Kennarasambands Íslands (KÍ) á vinnustað. Skólastjórnendum ber lögum samkvæmt að gefa trúnaðarmönnum vi&et h;eigandi upplýsingar þegar staða losnar á vinnustað eða ef fyrirhugað er að bæta við starfsmanni. Gildir þetta bæði um fyrirhugaðar tímabundnar og ótímabundnar ráðningar, sbr. lög um kjarasamninga opinberra starfsmanna nr. 94/1996.1
Verði trúnaðarmaður var við að skólastjóri2 hafi ekki upplýst hann um lausar stöður að fyrra bragði áður en farið er í ráðningarferli er mikilvægt að trúnaðarmaður bendi skólastjóra á þessa skyldu hans og óski eftir því að framvegis upplýsi skólastjóri trúnaðarmann um laus störf áður en farið er í ráðningarferli.
En hvað á viðkomandi trúnaðarmaður að gera við upplýsingar um lausa stöðu? Hlutverk trúnaðarmanns er m.a. að hafa eftirlit með því að rétt sé staðið að ráðningarferlinu. Dæmi um slíkt er að hafa eftirlit með því að farið sé að lögum, kanna hvort auglýst sé með réttum hætti, að menntunar- og hæfniskilyrði séu málefnaleg, að skólastjóri og/eða aðrir taki ekki þátt í ráðningarferlinu ef viðkomandi verður vanhæfur til að taka ákvörðun um ráðningu t.d. ef einhver nákominn sækir um starf, að kanna hvort umsækjendur verði spurðir sömu spurninga í ráðningarviðtali o.s.frv. Þegar trúnaðarmaður hefur fengið upplýsingar um fyrirhugaða ráðningu er hlutverk hans að fylgja því eftir að ráðningarferlið sé rétt. Því er samvinna skólastjóra og trúnaðarmanna afar mikilvæg.
Má því segja að trúnaðarmenn séu nokkurs konar ráðningarlöggur sem hafa eftirlit með því að farið sé að lögum og reglum við ráðningar kennara og stjórnenda í skólum.
Rétt er að taka fram að eftirfarandi umfjöllun á við um kennara og skólastjórnendur í leikskólum, grunnskólum, framhaldsskólum og tónlistarskólum. Aðrar reglur geta átt við um aðrar starfsgreinar og starfstéttir.
Ráðningarferlið
Skipta má ráðningarferlinu í eftirfarandi hluta:
- Skólastjóri telur að mögulega þurfi að ráða nýjan starfsmann.
- Tilkynning til trúnaðarmanns um að fyrirhugað sé að ráða starfsmann.
- Þarfagreining.
- Auglýsing.
- Mat á umsóknum.
- Viðtöl við umsækjendur og umsagnaraðila.
- Ákvörðun um ráðningu.
- Ráðningarsamningur.
- Tilkynning ákvörðunar.
Nánar um ráðningarferlið
Ákvörðun um fyrirhugaða ráðningu og tilkynning til trúnaðarmanns
Yfirmaður viðkomandi stofnunar (skólastjóri) ber ábyrgð á öllu ráðningarferlinu jafnvel þótt hann feli undirmönnum sínum að sjá um það eða hann kaupi utanaðkomandi sérfræðiþjónustu til að annast það.
Skólastjóra ber ávallt að láta trúnaðarmann vita að fyrra bragði af lausum stöðum svo fljótt sem auðið er. Trúnaðarmaður á því að vita af lausum stöðum á allra fyrstu stigum ráðningarferlisins.
Þarfagreining
Þegar ætlað er að þörf sé á að ráða nýja starfsmenn er ráðlagt að fara í þarfagreiningu í tengslum við starf. Dæmi um atriði sem farið er yfir í þarfagreiningu eru m.a. hvort leggja á starf niður, flytja starf til, breyta starfslýsingu og/eða hæfnisskilyrðum, hvort fyrirhuguð sé skipulagsbreyting sem gæti haft áhrif á starfið, hverjir eigi að taka þátt í ráðningarferlinu, o.s.frv.
Mikilvægt er að gerð sé starfsgreining þar sem farið er m.a. yfir starfslýsingu sem lýsir t.d. verkefnum og ábyrgð sem fylgir starfinu og starfskröfum, t.d. menntun, reynsla og hæfni sem starfsmenn þurfa að uppfylla til að vera ráðnir og starfskjör.
Tímabundnar ráðningar
Meginreglan er sú að ráða skal starfsmenn ótímabundið. Það getur þó verið heimilt að ráða starfsmenn tímabundið til að sinna tímabundnum verkefnum eða afleysingum. Ef enn er þörf á starfsmanni eftir þann tíma sem viðkomandi var ráðinn til ætti almennt að auglýsa starfið aftur og getur sá sem var ráðinn tímabundið sótt um starfið eins og aðrir. Almennt skal ráða hæfasta umsækjandann þegar ráðið er í starfið að nýju.
Athuga ber að samkvæmt lögum um menntun og ráðningar kennara og skólastjórnenda í leikskólum, grunnskólum og framhaldsskólum má aðeins ráða einstaklinga sem eru án leyfisbréfs að hámarki eitt ár og er endurráðning óheimil án undangenginnar auglýsingar.
Hafi starfsmaður verið ráðinn tímabundið samtals í meira en tvö ár, þannig að ný ráðning tekur gildi af annarri innan sex vikna frá lokum fyrri ráðningar þá leiðir það sjálfkrafa til þess að það kemst á ótímabundin ráðning.3 Frá þessu geta verið undantekningar t.d. ef lög kveða sérstaklega á um slíkt.
Rétt er að taka fram að sæki starfsmaður um tímabundið starf eftir að hafa verið ráðinn áður í tímabundið starf hjá sama vinnuveitanda og sé hann hæfasti umsækjandi þá er óheimilt að synja honum um starfið af þeirri ástæðu að það myndi leiða til þess að samanlagður ráðningartími yrði umfram tvö ár sem myndi leiða til ótímabundinnar ráðningar. Væri starfsmaðurinn hæfasti umsækjandinn bæri því almennt að ráða hann ótímabundið ef samanlagður starfstími næði yfir tvö ár þrátt fyrir að fyrirhugað hafi verið að starfið væri tímabundið.
Auglýsing
Trúnaðarmenn geta óskað eftir að fá að lesa yfir auglýsingu um laust starf. Þar af leiðandi þarf skólastjóri að hafa tilkynnt trúnaðarmanni um laust starf tímanlega áður en starfið er auglýst.
Meginreglan er sú að auglýsa skal öll störf á opinberum vettvangi en frá henni eru undantekningar. Ekki er skylt að auglýsa.
- Afleysingastörf þar sem afleysing skal standa skemur en í 12 mánuði.
- Störf við verkefni sem skulu standa í tvo mánuði eða skemur.
- Störf sem hafa verið auglýst áður innan sex mánaða að því gefnu að það hafi komið fram í auglýsingunni að umsókn gæti gilt í allt að sex mánuði.
Til að tryggja góða starfshætti mælir KÍ með að öll störf séu auglýst. Taki skólastjóri ákvörðun um að auglýsa ekki tímabundið starf á opinberum vettvangi er samt mælt með því að auglýsa starfið innanhúss og t.d. á vefsíðu viðkomandi skóla/sveitarfélags. Ávallt skal ráða þann sem er hæfastur til að sinna starfinu.
Eftirfarfarandi atriði skulu koma fram í starfsauglýsingu:
- Starfsheiti, kennslugrein/aldursstig nemenda og/eða eftir atvikum stutt starfslýsing.
- Starfshlutfall ef ekki er um fullt starf að ræða.
- Menntunar- og hæfniskröfur sem gerðar eru til starfsmanns.
- Viðkomandi kjarasamningur og ef við á önnur starfskjör.
- Hver veitir nánari upplýsingar um starfið.
- Hvenær starfsmaður skal hefja starf.
- Ef um er að ræða tímabundið starf þurfa að koma fram nánari upplýsingar um það.
- Hvert umsókn á að berast.
- Hvort umsókn eigi að vera á sérstöku formi, t.d. rafrænu og/eða tilteknu eyðublaði, og ef svo er hvar sé hægt að nálgast það.
- Kröfur um gögn sem eiga að fylgja umsókn.
- Umsóknarfrestur.
- Að öllum umsóknum verði svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Menntunar- og hæfniskröfur verða að vera málefnalegar. Almennt er óheimilt að mismuna starfsmönnum á grundvelli kyns, fyrirhugaðs fæðingar- og foreldraorlofs, meðgöngu,5 mögulegs kennsluafsláttar, lífaldurs, fötlunar, trúar, lífsskoðana, kynhneigðar,6 stjórnmálaskoðana og -starfa7 o.s.frv. Mikilvægt er að trúnaðarmenn tryggi að störf séu auglýst með réttum hætti og fari yfir auglýsingar fyrir birtingu og kanni hvort þær uppfylli ofangreind skilyrði og hvort menntunar- og hæfniskröfur séu málefnalegar.
Vanhæfi
Mikilvægt er að þeir sem koma að ráðningarferli kanni hvort þeir geti vanhæfir til að koma að ráðningunni á einhverjum tímapunkti. Skólastjóri og aðrir sem koma að ráðningarferlinu eru m.a. vanhæfir til að koma að ráðningarferlinu ef:
- Viðkomandi er aðili máls, fyrirsvarsmaður eða umboðsmaður umsækjanda.
- Viðkomandi er eða hefur verið maki aðila eða umboðsmanns hans, skyldur eða mægður aðila (t.d. einhverjum umsækjanda) í beinan legg eða að öðrum lið til hliðar eða tengdur aðila eða umboðsmanni hans með sama hætti vegna ættleiðingar. Dæmi um tengsl sem myndu valda vanhæfi eru langafi, amma, pabbi, dóttir, tengdasonur, mágkona, svili, tengdadóttir, barnabarn, maki barnabarns, systkinabarn, föðurbróðir, móðursystir maka o.s.frv.
- Viðkomandi hefur tekið þátt í meðferð máls á lægra stjórnsýslustigi.
- Viðkomandi, venslamenn hans (sbr. ofangreinda upptalningu) eða yfirmenn hans hafa verulega hagsmuni að gæta. Sé viðkomandi vanhæfur í máli leiðir það því almennt til þess að undirmenn hans verða einnig vanhæfir.
- Yfirmaður viðkomandi er vanhæfur.
- Fyrir hendi eru aðstæður sem eru til þess fallnar að draga óhlutdrægni hans í efa með réttu.
Sá sem er vanhæfur til meðferðar máls má ekki taka þátt í undirbúningi, meðferð eða úrlausn málsins. Viðkomandi er þó heimilt að gera nauðsynlegar ráðstafanir til að halda máli í réttum farvegi á meðan staðgengill er ekki til staðar og skal vekja athygli yfirmanns viðkomandi stofnunar á vanhæfisástæðum. Yfirmaður viðkomandi skipar almennt annan til að sjá um ráðningarferlið í stað þess sem er vanhæfur.
Telji trúnaðarmaður að að einhver sem er vanhæfur t.d. vegna fjölskyldu- eða vinatengsla hafi komið að ráðningarferli ætti hann að upplýsa skólastjóra um það þegar í stað. Telji trúnaðarmaður að skólastjóri bregðist ekki rétt við slíkri ábendingu ætti trúnaðarmaður að upplýsa næsta yfirmann skólastjóra og/eða stéttarfélag um það svo fljótt sem auðið er.
Mat á umsóknum og forgangur til starfs
Þeir sem hafa leyfisbréf til kennslu í leikskólum, grunnskólum eða framhaldsskólum, njóta forgangs í starf kennara og skólastjórnenda á því skólastigi8. Þó er heimilt að ráða einstakling án leyfisbréfs að hámarki til eins árs þegar enginn réttindakennari sækir um þrátt fyrir endurtekna auglýsingu. Skólastjórar grunnskóla og skólameistarar framhaldsskóla sækja um heimild til þessa til undanþágunefndar viðkomandi skólastigs. Ekki er gerð krafa um leyfisbréf til kennslu í tónlistarskólum.
Umsækjendur sem uppfylla auglýstar hæfniskröfur og hafa viðeigandi leyfisbréf þar sem það á við njóta forgangs til ráðningar í starf. Hæfniskröfurnar eiga að lýsa því hvað helst verður litið til við val á þeim sem er hæfasti umsækjandinn og því er mikilvægt að þær séu málefnalegar. Dæmi um málefnalegar hæfniskröfur eru kröfur um ákveðna menntun, leyfisbréf, reynsla og aðrir verðleikar. Við ráðningu skólastjórnenda í leikskólum, grunnskólum, framhaldsskólum skal koma fram í auglýsingu að umsækjandi skuli hafa leyfisbréf til kennslu á viðkomandi skólastigi og viðbótarmenntun í stjórnun eða kennslureynslu á skólastiginu.
Ef fleiri en einn er jafnhæfur eftir mat á auglýstum hæfniskröfum skal líta til annarra málefnalegra sjónarmiða. Dæmi um slík sjónarmið eru menntun, reynsla, umsagnir um starfshæfni og önnur hæfni sem kemur til viðbótar við auglýstar hæfniskröfur.
Almennt ætti að taka viðtöl við alla þá umsækjendur sem uppfylla þau skilyrði/hæfniskröfur sem settar voru fram í auglýsingu. Mikilvægt er að vanda til verka við slík viðtöl og að umsækjendur séu t.d. spurðir sömu spurninga og svör skrifuð niður. Þá er eðlilegt að haft sé samband við umsagnaraðila eftir að heimild fyrir því hefur verið fengin frá umsækjendum. Einnig er mikilvægt að vandað sé til verka við slík viðtöl og umsagnaraðilar séu spurðir sömu spurninga svo allir umsækjendur fái sambærilega málsmeðferð. Trúnaðarmenn geta haft eftirlit með þessu, m.a. með því að óska eftir upplýsingum um hvort spurningar séu fyrirfram ákveðnar og staðlaðar og með því að fá afrit af slíkum spurningalistum.
Ef fyrirhugað er að hafna starfsumsókn á grundvelli umsagnar umsagnaraðila ber að upplýsa umsækjanda um umsögnina og gefa honum tækifæri til að andmæla því sem fram kom í umsögninni.
Mikilvægt er að hafa í huga að hæfasti umsækjandi skal almennt njóta forgangs til starfs og óheimilt að líta til ómálefnalegra sjónarmiða. Dæmi um ómálefnaleg sjónarmið væru að umsækjanda væri synjað um starf á þeim grundvelli að hann væri barnshafandi eða að hann hafi fyrirhugað að hefja töku fæðingar- eða foreldraorlofs.
Séu fleiri en einn umsækjandi metnir jafnhæfir (hæfastir) eftir framangreint mat geta fatlaðir notið forgangs til starfs10 auk þess sem sjónarmið varðandi jafnrétti kynja koma til skoðunar (sértækar aðgerðir). Séu t.d. tveir umsækjendur metnir jafn hæfir, annar er karl en hinn kona en mun færri karlar en konur starfa í sambærilegum störfum á viðkomandi vinnustað þá getur karlinn notið forgangs til starfs.11
Þegar búið er að taka ákvörðun um ráðningu skal ekki ganga frá ráðningunni fyrr en búið er að ganga úr skugga um að viðkomandi hafi ekki hlotið refsidóm fyrir kynferðisbrot (brot á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga, nr. 19/1940). Ekki skiptir máli hversu langt er síðan slíkt brot var framið. Þá má viðkomandi ekki heldur hafa hlotið refsidóm fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni á síðastliðnum fimm árum. Því er mikilvægt fyrir vinnuveitanda að fá umboð frá þeim umsækjanda sem fyrirhugað er að ráða til að afla upplýsinga úr sakaskrá. Mikilvægt er að hafa í huga að ekki er nægjanlegt að fá almennt sakavottorð heldur þarf vinnuveitandi að óska eftir þessum sérstöku upplýsingum frá sakaskrá þar sem það kann að vera að það komi ekki allar þessar upplýsingar fram á almennu sakavottorði. Liggi mikið á að ganga frá ráðningu væri möguleiki að ganga frá ráðningu með fyrirvara um upplýsingar frá sakaskrá. Viðkomandi ætti ekki að hefja störf fyrr en upplýsingar frá sakaskrá liggja fyrir. Bann við ráðningu starfsmanna í leikskólum, grunnskólum, framhaldsskólum og tónlistarskólum sem hafa hlotið framangreinda refsidóma kemur m.a. fram í æskulýðslögum nr. 70/2007 og lögum um hvert skólastig.12
Sérákvæði og undanþágur
Við ráðningu skólastjórnenda í leik-, grunn- og framhaldsskólum skal tekið tillit til menntunar, starfsferils, stjórnunarreynslu eða viðbótarmenntunar í stjórnun og umsagna um starfshæfni umsækjanda. Sæki fleiri en einn um sama starf og uppfylli tveir eða fleiri þær kröfur sem gerðar eru skal m.a. tekið tillit til menntunar, starfsreynslu og umsagna um starfshæfni umsækjenda þegar ákvörðun er tekin um ráðningu í starfið.13
Leikskólar
Rétt til að nota starfsheitið leikskólakennari og starfa við leikskóla á vegum opinberra aðila eða aðra hliðstæða skóla hefur sá einn sem til þess hefur leyfi ráðherra (leyfisbréf).
Að lágmarki 2/3 hlutar stöðugilda við kennslu, umönnun og uppeldi barna í hverjum leikskóla skulu teljast til stöðugilda leikskólakennara.
Til þess að verða ráðinn leikskólastjóri eða aðstoðarleikskólastjóri við leikskóla skal umsækjandi hafa starfsheitið leikskólakennari og viðbótarmenntun í stjórnun eða kennslureynslu á leikskólastigi.
Sæki enginn leikskólakennari um auglýst leikskólakennarastarf, leikskólastjórastarf eða aðstoðarleikskólastjórastarf, þrátt fyrir endurtekna auglýsingu er heimilt að lausráða í starfið til bráðabirgða, að hámarki til eins árs í senn, einstakling sem ekki er leikskólakennari.14 Einstaklingar sem hafa lokið bakkalárprófi á sviði uppeldis- og kennslufræða, og aðrir þeir sem hafa sambærilega menntun sem nýtist til starfa í leikskólum, skulu þá njóta forgangs umfram aðra við ráðningu í störf í leikskólum (þegar enginn leikskólakennari sækir um starfið).15
Grunnskólar
Rétt til að nota starfsheitið grunnskólakennari og starfa við grunnskóla á vegum opinberra aðila eða aðra hliðstæða skóla hefur sá einn sem til þess hefur leyfi ráðherra (hefur leyfisbréf).
Grunnskólakennari sem hefur sérhæft sig til kennslu í tiltekinni námsgrein, á tilteknu námssviði eða aldursstigi, skal við ráðningu hafa forgang til kennslu miðað við það.16
Til þess að verða ráðinn skólastjóri eða aðstoðarskólastjóri við grunnskóla skal umsækjandi hafa starfsheitið grunnskólakennari og viðbótarmenntun í stjórnun eða kennslureynslu á grunnskólastigi.
Í þeim tilvikum þegar menntun og sérhæfing fastra kennara dugar ekki til t.d. vegna mjög sérhæfðra eða óvenjulegrar kennslu m.v. viðkomandi skólastig t.d. kennslu á ákveðnum valgreinum á unglingastigi þá er heimilt að ráða sérfræðing (sem hefur ekki leyfisbréf) tímabundið að hámarki eitt skólaár í senn til að kenna sérgrein sína, enda sé aðeins um að ræða kennslu sem nemur 240 mínútum eða minna á viku. Ekki þarf að óska eftir heimild undanþágunefndar í slíkum tilvikum.
Ef enginn grunnskólakennari sækir um auglýst kennslustarf þrátt fyrir endurtekna auglýsingu þá getur skólastjóri sótt um heimild til undanþágunefndar grunnskóla til að lausráða tiltekinn starfsmenn til kennslustarfa til bráðabirgða, þó aldrei lengur en til eins árs í senn.17 Einstaklingar sem hafa lokið bakkalárprófi á sviði uppeldis- og kennslufræða, og aðrir þeir sem hafa sambærilega menntun sem nýtist til starfa í grunnskólum, skulu í þeim tilvikum tilvikum njóta forgangs umfram aðra við ráðningu í störf í grunnskólum (þegar enginn grunnskólakennari sækir um starfið).18 Ef undanþáguheimild fæst má ekki endurráða slíkan starfsmann án undangenginnar auglýsingar og að fenginni nýrri heimild frá undanþágunefnd.
Framhaldsskólar
Rétt til að nota starfsheitið framhaldsskólakennari og starfa við framhaldsskóla hefur sá einn sem til þess hefur leyfi ráðherra. Í leyfisbréfi skal tilgreina kennslugrein/ar eða sérsvið viðkomandi framhaldsskólakennara samkvæmt nánari ákvæðum í reglugerð.19
Við ráðningu í stjórnunarstörf við framhaldsskóla skal umsækjandi hafa starfsheitið framhaldsskólakennari og viðbótarmenntun í stjórnun eða kennslureynslu á framhaldsskólastigi.20
Heimilt er að ráða sérfræðing tímabundið að hámarki eitt skólaár í senn til að kenna sérgrein sína, enda sé aðeins um að ræða kennslu sem nemur 240 mínútum eða minna á viku.
Ekki þarf að óska eftir heimild undanþágunefndar í slíkum tilvikum.
Ef enginn framhaldsskólakennari sækir um auglýst kennslustarf þrátt fyrir endurtekna auglýsingu þá getur skólameistari sótt um heimild til undanþágunefndar framhaldsskóla til að lausráða tiltekinn starfsmenn til kennslustarfa til bráðabirgða, þó aldrei lengur en til eins árs í senn. Ef slík heimild fæst má ekki endurráða slíkan starfsmann án undangenginnar auglýsingar og að fenginni nýrri heimild frá undanþágunefnd.21 Í framangreindum tilvikum skulu einstaklingar með starfsréttindapróf eða háskólapróf og a.m.k. 120 námseiningar í auglýstri kennslugrein njóta forgangs umfram aðra við ráðningu í störf í framhaldsskólum (þegar enginn framhaldsskólakennari sækir um starfið).22
Tónlistarskóli
Lög kveða ekki á um að kennarar, stjórnendur og skólastjórar í tónlistarskólum skulu hafa sérstök leyfisbréf.
Ráðningarsamningur
Þegar búið er að taka ákvörðun um ráðningu skal gera skriflegan ráðningarsamning við þann umsækjanda sem var ráðinn í starfið. Eftirfarandi upplýsingar skulu koma fram í ráðningarsamningi:
Hvað skal koma fram í ráðningarsamningi:
- Deili á aðilum
- Vinnustaður og heimilisfang vinnuveitanda. Sé ekki um fastan vinnustað að ræða, eða stað þar sem vinnan fer jafnaðarlega fram, skal koma fram að starfsmaður sé ráðinn á mismunandi vinnustöðum.
- Titill, staða, eðli eða tegund starfs sem starfsmaður er ráðinn í eða stutt útlistun eða lýsing á starfinu.
- Fyrsti starfsdagur.
- Lengd ráðningar sé hún tímabundin og upplýsingar um af hverju ráðningin er tímabundin.
- Orlofsréttur.
- Uppsagnarfrestur af hálfu vinnuveitanda og starfsmanns.
- Mánaðar- eða vikulaun, t.d. með tilvísun til launataxta, aðrar greiðslur eða hlunnindi og greiðslutímabil.
- Lengd venjulegs vinnudags eða vinnuviku.
- Lífeyrissjóðir.
- Eftir atvikum tilvísun til gildandi kjarasamnings og hlutaðeigandi stéttarfélags.
Upplýsingar samkvæmt 6. - 9. lið má gefa með tilvísun til kjarasamninga. Ef um er að ræða starf í tónlistarskóla þarf einnig að koma fram hvaða kennslugreinar megi fela viðkomandi kennara skv. kjarasamningi Félags kennara og stjórnenda í tónlistarskólum.23
Mikilvægt er að vandað sé til gerðar ráðningarsamnings. Vinnuveitandi ber almennt hallann af óskýrum ráðningarsamningum. Breytist ráðningarsamningur er mikilvægt að gera viðauka sem kveður á um breytingarnar eða nýjan ráðningarsamning. Rétt er að geta þess að munnlegir ráðningarsamningar eru gildir en skólastjórum er engu að síður skylt að sjá til þess að gerðir séu skriflegir ráðningarsamningar enda getur reynst erfitt að sanna hvað var fólgið í munnlegum ráðningarsamningum.
Trúnaðarmenn geta óskað eftir upplýsingum um þá starfsmenn sem hafa ekki skriflega ráðningarsamninga og upplýst starfsmenn um gildi skriflegra ráðningarsamninga og viðauka verði breyting á starfi. Trúnaðarmenn geta einnig óskað eftir upplýsingum um alla tímabundna ráðningarsamninga og skýringum á ástæðum þeirra. Mikilvægt er að trúnaðarmenn fylgist með ástæðum tímabundinna ráðninga og lögmæti þeirra og hvort tímabundin ráðning hafi staðið lengur en leyfilegt er og upplýsi starfsmenn um rétt þeirra til ótímabundinna ráðninga.
Tilkynning ráðningar
Þegar búið er að ganga frá ráðningu skal tilkynna þeim sem ekki voru ráðnir um að búið sé að ganga frá ráðningu, hver hafi verið ráðinn, að viðkomandi umsækjandi hafi rétt á að óska eftir rökstuðningi innan 14 daga sbr. 21. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.
Umsækjendur eiga rétt á að fá afrit af umsóknargögnum þess umsækjanda sem ráðinn var í stöðuna.
Hafi verið ranglega staðið að ráðningu getur það leitt til þess að vinnuveitandi verði bótaskyldur.
Anna Rós Sigmundsdóttir, lögfræðingur Kennarasambands Íslands.
Samantekt mars 2016
{slider Ítarefni – neðanmálsgreinar}
1 Lög um kjarasamninga opinberra starfsmanna nr. 94/1996:
30. gr. Gefa skal trúnaðarmanni upplýsingar um ef staða losnar á vinnustað hans eða í ráði er að bæta við starfsmanni. Jafnframt skal láta honum í té upplýsingar um ráðningarkjör og hverjir sækja um starfann.
Trúnaðarmaður skal í engu gjalda þess í starfi eða á annan hátt að hann hefur valist til þessa trúnaðarstarfs.
Óheimilt er að flytja trúnaðarmann í lægri launaflokk meðan hann gegnir starfi trúnaðarmanns.
Sé trúnaðarmaður valinn úr hópi starfsmanna sem ráðnir eru með uppsagnarfresti skal hann að öðru jöfnu sitja fyrir um að halda vinnunni.“
2 Þegar fjallað er um skólastjóra í grein þessari er jafnt átt við um leikskólastjóra, skólastjóra í grunnskólum, skólameistara í framhaldsskólum og skólastjóra í tónlistarskólum.
3 Álit umboðsmanns Alþingis nr. 5356/2008:
A sem hafði verið ráðin oftar en einu sinni tímabundið við skóla leitaði til umboðsmanns Alþingis og kvartaði yfir ákvörðun vinnuveitanda um að endurnýja ekki ráðningu við skólann. Samfelld tímabundin ráðningar hafði verið umfram tvö ár. Umboðsmaður Alþingis vísaði til þess að stjórnsýslan væri í störfum sínum bundin af þeim lögum sem um hana giltu. Af þessu leiddi að þeir sem færu með vald til að ráða menn til opinberra starfa gætu ekki við meðferð þess valds vikið frá settum fyrirmælum laga um slíkar ráðningar. Með vísan til þessa taldi umboðsmaður að ákvörðun vinnuveitanda um að endurnýja ráðningu A tímabundið þegar hún hafði starfað við skólann í tvö ár samfellt hefði ekki verið í samræmi við lög. Jafnframt taldi umboðsmaður að það hefði ekki samrýmst reglum nr. 351/1996, um form ráðningarsamninga og um skyldu til að upplýsa starfsmenn um ráðningarkjör, að gera ekki skriflegan ráðningarsamning við A síðustu tvö starfsár hennar við skólann.
Álit umboðsmanns Alþingis nr. 4929/2007:
Það var niðurstaða umboðsmanns Alþingis að sú ákvörðun vinnuveitanda að bjóða starfsmanni aðeins tímabundinn ráðningarsamning eftir að hann hafði starfað við skólann samfellt í tvö ár hefði ekki verið í samræmi við ákvæði 41. gr. laga nr. 70/1996, sbr. einnig lög nr. 139/2003. Umboðsmaður lagði áherslu á að með ákvæðum 2. mgr. 41. gr. laga nr. 70/1996 og 5. gr. laga nr. 139/2003 hefði löggjafinn tekið skýra og afgerandi afstöðu til þess að ekki væri heimilt að ráða starfsmenn tímabundinni ráðningu lengur en tvö ár samfellt í senn. Ekki væri í lögum að finna nein ákvæði þess efnis að annað gilti um þá sem starfa í framhaldsskólum. Stjórnsýslan væri í störfum sínum bundin af þeim lögum sem um hana giltu og ákvarðanir og/eða athafnir stjórnvalda yrðu annars vegar að eiga sér stoð í lögum og mættu hins vegar ekki brjóta í bága við lög. Þeir sem færu með vald til að ráða menn til opinberra starfa gætu ekki við meðferð þess valds vikið frá settum fyrirmælum laga um slíkar ráðningar þó að þeir teldu óhentugt eða óhagkvæmt að fylgja þeim fyrirmælum.
4 Lög um tímabundna ráðningu starfsmanna nr. 139/2003:
„5. gr. Framlenging eða endurnýjun tímabundinnar ráðningar.
Óheimilt er að framlengja eða endurnýja tímabundinn ráðningarsamning þannig að hann vari samfellt lengur en í tvö ár nema annað sé tekið fram í lögum. Þó er heimilt að endurnýja tímabundinn ráðningarsamning stjórnanda, sem gerður hefur verið til fjögurra ára eða lengri tíma, í jafnlangan tíma hverju sinni. Vinnuveitandi skal þó ávallt leitast við að ráða starfsmann ótímabundið.
Nýr ráðningarsamningur telst taka við af öðrum samningi sé hann framlengdur eða ef nýr tímabundinn ráðningarsamningur kemst á milli sömu aðila [innan sex vikna]1) frá lokum gildistíma eldri samnings.“
5 Lög um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla nr. 10/2008:
26. gr.Bann við mismunun í starfi og við ráðningu.
Atvinnurekendum er óheimilt að mismuna umsækjendum um starf á grundvelli kyns. Sama gildir um stöðuhækkun, stöðubreytingar, endurmenntun, símenntun, starfsþjálfun, námsleyfi, uppsögn, vinnuaðstæður og vinnuskilyrði starfsmanna.
Óheimilt er að láta fæðingar- og foreldraorlof eða aðrar aðstæður tengdar meðgöngu og barnsburði hafa neikvæð áhrif á ákvarðanir skv. 1. mgr.
Óheimilt er að auglýsa eða birta auglýsingu um laust starf þar sem gefið er í skyn að fremur sé óskað starfsmanns af öðru kyninu en hinu. Þetta ákvæði gildir ekki ef tilgangur auglýsandans er að stuðla að jafnari kynjaskiptingu innan starfsgreinarinnar og skal það þá koma fram í auglýsingunni. Sama á við ef gild rök mæla með því að einungis sé auglýst eftir öðru kyninu.
Ef leiddar eru líkur að því að við ráðningu, setningu eða skipun í starf, stöðuhækkun, stöðubreytingu, endurmenntun, starfsþjálfun, símenntun, námsleyfi, uppsögn, vinnuaðstæður eða vinnuskilyrði hafi einstaklingum verið mismunað á grundvelli kyns, töku fæðingar- og foreldraorlofs eða annarra aðstæðna í tengslum við meðgöngu og barnsburð skal atvinnurekandi sýna fram á að aðrar ástæður en kyn, fæðingar- og foreldraorlof eða aðrar aðstæður tengdar meðgöngu og barnsburði hafi legið til grundvallar ákvörðun hans.
Við mat á því hvort ákvæði 4. mgr. hafi verið brotið skal taka mið af menntun, starfsreynslu, sérþekkingu eða öðrum sérstökum hæfileikum sem krafa er gerð um í viðkomandi starfi samkvæmt lögum eða reglugerðum eða telja verður annars að komi að gagni í starfinu.“
6 Ætla má að tilskipanir nr. 2000/78/EB um almennar reglur um jafnrétti á vinnumarkaði og í starfi og 2000/43/EB um beitingu meginreglunnar um jafnrétti án tillits til kynþáttar eða þjóðernisuppruna verði innleiddar á Íslandi á næstunni.
7 Sbr. álit umboðsmanns Alþingis í máli nr. 8354/2015 þar sem fram kom að óheimilt væri að líta til sjónarmiða um stjórnmálaskoðanir og pólitísk störf við ráðningu.
8 Lög um menntun og ráðningu kennara og skólastjórnenda við leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla nr. 87/2008:
3. gr.Starfsheitið leikskólakennari.
Rétt til að nota starfsheitið leikskólakennari og starfa við leikskóla á vegum opinberra aðila eða aðra hliðstæða skóla hefur sá einn sem til þess hefur leyfi [ráðherra].1)“
9. gr. Leikskólakennarar og ráðning þeirra.
Til þess að verða ráðinn kennari við leikskóla skal umsækjandi hafa öðlast leyfi til þess að nota starfsheitið leikskólakennari skv. 3. og 21. gr.
Að lágmarki 2/3 hlutar stöðugilda við kennslu, umönnun og uppeldi barna í hverjum leikskóla skulu teljast til stöðugilda leikskólakennara.
4. gr.Starfsheitið grunnskólakennari.
Rétt til að nota starfsheitið grunnskólakennari og starfa við grunnskóla á vegum opinberra aðila eða aðra hliðstæða skóla hefur sá einn sem til þess hefur leyfi [ráðherra].1“
11. gr. Ráðning grunnskólakennara og sérfræðinga.
Til þess að vera ráðinn kennari við grunnskóla skal umsækjandi hafa öðlast leyfi til þess að nota starfsheitið grunnskólakennari skv. 4. og 21. gr.“
5. gr. Starfsheitið framhaldsskólakennari.
Rétt til að nota starfsheitið framhaldsskólakennari og starfa við framhaldsskóla hefur sá einn sem til þess hefur leyfi [ráðherra].1) Í leyfisbréfi skal tilgreina kennslugrein/ar eða sérsvið viðkomandi framhaldsskólakennara samkvæmt nánari ákvæðum í reglugerð.
13. gr. Starfsfólk framhaldsskóla og ráðning þess.
Til þess að vera ráðinn til kennslu í framhaldsskóla skal umsækjandi hafa öðlast leyfi til þess að nota starfsheitið framhaldsskólakennari skv. 5. og 21. gr. Miða skal við að framhaldsskólakennari kenni þær greinar eða á því sviði sem menntun hans nær til.“
9 Lög um menntun og ráðningu kennara og skólastjórnenda við leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla nr. 87/2008:
17. gr. Undanþáguheimild fyrir leikskóla.
Sæki enginn leikskólakennari um auglýst leikskólakennarastarf, leikskólastjórastarf eða aðstoðarleikskólastjórastarf, sbr. 2. mgr. 9. gr., þrátt fyrir endurtekna auglýsingu er heimilt að lausráða í starfið til bráðabirgða, að hámarki til eins árs í senn, einstakling sem ekki er leikskólakennari. Hið sama gildir ef umsækjandi uppfyllir ekki þau almennu skilyrði sem nauðsynleg teljast til þess að fá ráðningu í starf. Nú hefur starf starfsmanns verið auglýst í tvígang án þess að leikskólakennari hafi fengist og er þá heimilt að ráða hann í starfið samkvæmt nánari fyrirmælum sveitarstjórnarlaga og hlutaðeigandi kjarasamnings. Starfsmaður sem ráðinn er vegna framangreindra aðstæðna má ekki bera starfsheitið leikskólakennari og ekki má endurráða hann án undangenginnar auglýsingar.
18. gr. Undanþágunefnd grunnskóla.
[Ráðherra]1) skipar undanþágunefnd grunnskóla til fjögurra ára í senn. Nefndin skal skipuð fjórum fulltrúum, einum fulltrúa tilnefndum af heildarsamtökum kennara, einum fulltrúa tilnefndum af Sambandi íslenskra sveitarfélaga, einum fulltrúa tilnefndum af samstarfsnefnd um háskólastigið og einum fulltrúa án tilnefningar og skal hann vera formaður nefndarinnar. Jafnmarga varamenn skal skipa á sama hátt.
Óheimilt er að ráða aðra en þá sem uppfylla ákvæði laga þessara til kennslu við grunnskóla á vegum opinberra aðila eða hliðstæða skóla, sbr. lög um grunnskóla.
Nú sækir enginn grunnskólakennari um auglýst kennslustarf þrátt fyrir endurtekna auglýsingu og getur skólastjóri þá sótt um heimild til undanþágunefndar grunnskóla um að lausráða tiltekinn starfsmann til kennslustarfa til bráðabirgða, þó aldrei lengur en til eins árs í senn. Undanþágunefnd er heimilt að víkja frá kröfu um endurtekna auglýsingu þegar sótt er um undanþágu til að endurráða einstakling sem er í námi til kennsluréttinda. Slíkri umsókn skal fylgja staðfesting á að viðkomandi sé í námi og áætlun um námsframvindu. Skólastjóra er ekki skylt að leita til undanþágunefndar sé um að ræða kennslu sem nemur 240 mínútum á viku eða minna, sbr. 3. mgr. 11. gr.
Málsaðili getur skotið ákvörðun undanþágunefndar til ráðherra. Málskot frestar ekki réttaráhrifum ákvörðunar undanþágunefndar.
Ef hvorki skólastjóri né að minnsta kosti tveir skólanefndarmenn mæla með ráðningu grunnskólakennara í kennslustarf getur skólastjóri þrátt fyrir ákvæði 2. mgr. leitað til undanþágunefndar og óskað eftir heimild nefndarinnar til að lausráða annan einstakling.
Nú fæst heimild frá undanþágunefnd til að lausráða einstakling skv. 3. eða 5. mgr. og skal hann þá ráðinn með sérstökum ráðningarsamningi til ákveðins tíma með þriggja mánaða gagnkvæmum uppsagnarfresti sem er þó einn mánuður á fyrstu þremur mánuðum í starfi. Slíkur starfsmaður má ekki bera starfsheitið grunnskólakennari og ekki má endurráða hann án undangenginnar auglýsingar.
Starfsreglur undanþágunefndar skal ákveða nánar í reglugerð.2)
1)L. 126/2011, 489. gr. 2)Rg. 440/2010.
19. gr.Undanþágunefnd framhaldsskóla.
[Ráðherra]1) skipar undanþágunefnd framhaldsskóla til fjögurra ára í senn. Nefndin skal skipuð þremur fulltrúum, einum fulltrúa tilnefndum af heildarsamtökum kennara, einum fulltrúa tilnefndum af Félagi íslenskra framhaldsskóla og einum fulltrúa án tilnefningar og skal hann vera formaður nefndarinnar. Jafnmarga varamenn skal skipa á sama hátt.
Óheimilt er að ráða aðra en þá sem uppfylla ákvæði laga þessara til kennslu við framhaldsskóla, sbr. lög um framhaldsskóla.
Nú sækir enginn sem fullnægir ákvæðum þessara laga um auglýst kennslustarf þrátt fyrir endurtekna auglýsingu og getur skólameistari þá sótt um heimild til undanþágunefndar framhaldsskóla um að lausráða tiltekinn starfsmann til kennslustarfa til bráðabirgða, þó aldrei lengur en til eins árs. Undanþágunefnd er heimilt að víkja frá kröfu um endurtekna auglýsingu þegar sótt er um undanþágu til að endurráða einstakling sem er í námi til kennsluréttinda. Slíkri umsókn skal fylgja staðfesting á að viðkomandi sé í námi og áætlun um námsframvindu. Skólameistara er ekki skylt að leita til undanþágunefndar sé um að ræða kennslu sem nemur 240 mínútum á viku eða minna, sbr. 3. mgr. 13. gr.
Málsaðili getur skotið ákvörðun undanþágunefndar til ráðherra. Málskot frestar ekki réttaráhrifum ákvörðunar undanþágunefndar.
Ef hvorki skólameistari né að minnsta kosti tveir skólanefndarmenn mæla með ráðningu framhaldsskólakennara í kennslustarf getur skólameistari þrátt fyrir ákvæði 2. mgr. leitað til undanþágunefndar og óskað eftir heimild nefndarinnar til að lausráða annan einstakling sem hefur sérmenntun í auglýstri kennslugrein.
Nú fæst heimild frá undanþágunefnd til að lausráða einstakling skv. 3. eða 5. mgr. og skal hann þá ráðinn með sérstökum ráðningarsamningi með þriggja mánaða gagnkvæmum uppsagnarfresti sem er þó einn mánuður á fyrstu þremur mánuðum í starfi. Slíkur starfsmaður má ekki bera starfsheitið framhaldsskólakennari og ekki má endurráða hann án undangenginnar auglýsingar.
Starfsreglur undanþágunefndar skal ákveða nánar í reglugerð.2)
1)L. 126/2011, 489. gr. 2)Rg. 669/2010.“
10 Lög um málefni fatlaðra nr. 59/1992:
32. gr. Fatlaðir skulu eiga forgang að atvinnu hjá ríki og sveitarfélagi ef hæfni þeirra til starfsins er meiri eða jöfn hæfni annarra sem um starfið sækja. Sé að mati svæðisráðs gengið á rétt fatlaðs manns við veitingu starfs getur það krafið veitingarvaldhafa um skriflega greinargerð fyrir ákvörðun sinni í sambandi við stöðuveitinguna.“
11 Lög um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla nr. 10/2008:
2. gr.
...
7. Sértækar aðgerðir: Sérstakar tímabundnar aðgerðir sem ætlað er að bæta stöðu eða auka möguleika kvenna eða karla í því skyni að koma á jafnri stöðu kynjanna á ákveðnu sviði þar sem á annað kynið hallar. Þar getur þurft tímabundið að veita öðru kyninu forgang til að ná jafnvægi.“
12 Æskulýðslög nr. 70/2007:
„Óheimilt er að ráða til starfa hjá aðilum, sem 2. gr. tekur til og sinna börnum og ungmennum undir 18 ára aldri í æskulýðsstarfi, einstaklinga sem hlotið hafa refsidóm vegna brota á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga, nr. 19/1940. Sama gildir um þá sem hlotið hafa refsidóm fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni, nr. 65/1974, á síðastliðnum fimm árum. Ákvæði þetta nær einnig til þeirra sem falin er umsjón með börnum og ungmennum undir 18 ára aldri á grundvelli sjálfboðaliðastarfs.
Yfirmenn skóla, leikskóla, sumardvalarheimila, íþrótta- og tómstundamiðstöðva og annarra slíkra stofnana eða staða þar sem börn og ungmenni koma saman eða dveljast um lengri eða skemmri tíma, og 2. gr. tekur til, eiga rétt til upplýsinga úr sakaskrá um það hvort tiltekinn einstaklingur, sem sótt hefur um störf á þeirra vegum, hefur hlotið dóm vegna brota sem 3. mgr. tekur til, að fengnu samþykki hans.“
Lög um leikskóla nr. 90/2008:
6. gr. Ráðning.
...
„Óheimilt er að ráða til starfa við leikskóla einstakling sem hlotið hefur refsidóm fyrir brot á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga. Við ráðningu skal liggja fyrir sakavottorð eða heimild leikskólastjóra til að afla upplýsinga úr sakaskrá.
Lög um grunnskóla nr. 91/2008:
11. gr.Ráðning.
...
„Óheimilt er að ráða einstakling til starfa við grunnskóla sem hlotið hefur refsidóm fyrir brot á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga. Við ráðningu skal liggja fyrir sakavottorð eða heimild skólastjóra til að afla upplýsinga úr sakaskrá.
Lög um framhaldsskóla nr. 92/2008
8. gr.Starfsfólk framhaldsskóla.
...
„Óheimilt er að ráða einstakling til starfa við framhaldsskóla sem hlotið hefur refsidóm fyrir brot á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga. Við ráðningu skal liggja fyrir sakavottorð eða heimild skólameistara til að afla upplýsinga úr sakaskrá.“
13 1. mgr. 20. gr. laga um menntun og ráðningu kennara og skólastjórnenda við leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla nr. 87/2008.
14 17. gr. laga um menntun og ráðningu kennara og skólastjórnenda við leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla nr. 87/2008.
15 3. mgr. 20. gr. laga um menntun og ráðningu kennara og skólastjórnenda við leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla nr. 87/2008.
16 4. mgr. 20. gr. laga um menntun og ráðningu kennara og skólastjórnenda við leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla nr. 87/2008.
17 18. gr. laga um menntun og ráðningu kennara og skólastjórnenda við leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla nr. 87/2008.
18 2. mgr. 20. gr. laga um menntun og ráðningu kennara og skólastjórnenda við leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla nr. 87/2008.
19. 13. gr. laga um menntun og ráðningu kennara og skólastjórnenda við leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla nr. 87/2008.
20 14. gr. laga um menntun og ráðningu kennara og skólastjórnenda við leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla nr. 87/2008.
21 19. gr. laga um menntun og ráðningu kennara og skólastjórnenda við leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla nr. 87/2008.
22 5. mgr. 20. gr. laga um menntun og ráðningu kennara og skólastjórnenda við leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla nr. 87/2008.
23 Kjarasamningur FT:
Gr. 9.2 „...Gera ber skriflegan ráðningarsamning við starfsmann við upphaf ráðningar og ber í þeim samningi að virða reglur um ákveðnar lágmarksupplýsingar, sbr. efnisákvæði tilskipunar ESB 91/533. Í ráðningarsamningi skal tilgreina hvaða kennslugreinar megi fela viðkomandi og hver fyrirséð verklok eru, sé um tímabundna ráðningu að ræða.“
{/sliders}