Ráðherrar tóku við skýrslu um fjármögnun skólakerfa

Fréttir|26. mars 2025

Ný og áhugaverð samantekt Norrænu kennarasamtakanna (NLS) um fjármögnun skólakerfa er nýkomin út. Skýrslan var afhent ráðherrum menntamála í Hörpu.

Formenn kennarasambanda á Íslandi, í Danmörku, Noregi, Svíþjóð, Finnlandi og Færeyjum nýttu tækifærið á Alþjóðlega leiðtogafundinum, ISTP, og afhent ráðherrum landanna nýja skýrslu þar sem farið er yfir fjármögnun menntunar.

Skýrslan var unnin af Norrænu kennarasamtökunum (NLS) og skiluðu aðildarlöndin inn greinargerðum þar sem farið var yfir stöðuna í hverju landi. 

Christer Holmlund, forseti NLS, stýrði fundinum en auk hann flutti Magnús Þór Jónssonl, formaður KÍ, upphafsorð. Fram kom að NLS hefur komið á fót tengsaneti um sameiginlegar rannsóknir á sviði skóla- og menntamála.

Áður hefur verið gefin út skýrsla um kennaraskort. Markmiðið með þessu er að efla samstarf kennarasambandanna, efla upplýsingagjöf og skapa umræður um menntamál.

Viðburðurinn var, sem fyrr segir, haldinn í tengslum við ISTP, alþjóðlegan leiðtogafund, sem hefur staðið yfir í Hörpu síðustu þrjá daga. Á leiðtogafundinn komu saman ráðherra menntamála og forystufólk kennarasambanda frá 25 löndum.

Fundurinn þótti takast með afbrigðum vel.

Skoða skýrsluna

 

 

Á forsíðumyndinni eru

Gordon Ørskov Madsen, formaður Dönsku kennarasamtakanna (DLF), Geir Røsvoll, formaður Norska kennarasambandsins (UTD), Ander Adlercreutz, menntamálaráðherra Finnlands, Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ, Kari Nessa Nordtun, menntamálaráðherra Noregs, Mattias Tesfaye, menntamálaráðherra Danmerkur, Lotta Edholm, menntamálaráðherra Noregs, Tomas Kepler, formaður Félags framhaldsskólakennara í Danmörku, Anna Olskog, formaður Sænska kennarasambandsins (STU), Djóni Nolsøe Joensen, menntamálaráðherra Færeyja, Katarina Murto, formaður Kennarasambands Finnlands (OAJ), Jacob Eli Olsen, formaður Færeyska kennararasambandsins, og Christer Holmlund, forseti NLS.

Svipmyndir frá afhendingunni