Ráðherra menntamála í fyrsta Kennaravarpinu

Evrópsk kennaravika er hafin og stendur fram á föstudag. Kennarasambandið tekur virkan þátt í kennaravikunni en undir eru tíu lykilþættir sem eiga að styðja við starf kennara og gera það meira aðlaðandi. Kennaravarpið er þá lagt af stað.
Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, er fyrsti gestur Kennaravarpsins sem hleypt er af stokkunum í dag. Tilefnið er upphaf kennaravikunnar, sem haldin er hátíðleg að tilstuðlan Samtaka evrópskra kennarasambanda, ETUCE.
Magnús Þór tekur ráðherra tali í þessu fyrsta Kennaravarpi og ræða þeir stöðu kennarastéttar og skólakerfis frá ýmsum hliðum.
Kennarasambandið ætlar að miðla efni í myndbandaformi á næstu mánuðum og misserum. Markmiðið er að leyfa röddum kennara hérlendis að hljóma, efna til umræðu um kennarastarfið, áskoranir í skólamálum, starfsaðstæður, fagmennsku, stöðu nemenda með ólíkan bakgrunn og svo mætti áfram telja.
Magnús Þór segir að uppleggið í kennaravikunni séu tíu lykilþættir sem ETUCE hefur sent frá sér og er ætlað að kveikja umræður um hvað skiptir mestu máli þegar kemur að því að styðja og styrkja kennara í starfi, bera virðingu fyrir fagmennsku þeirra, gæta að starfsumhverfi og kannski ekki síst hvernig gerum við kennarastarfið aðlaðandi þannig að nýliðun sé nægileg.
Lykilatriði ETUCE eru tíu talsins og tala vel inn í íslenskan veruleika.
- Tryggja faglegt sjálfstæði og akademískt frelsi skólafólks.
- Hafa samvinnu og sameiningu að leiðarljósi við störf innan menntastofnana og -‐kerfa.
- Bjóða mannsæmandi laun og koma í veg fyrir launamisrétti.
- Tryggja góð og traust vinnuskilyrði og stuðla að velferð kennara.
- Stýra vinnuálagi og vinnutímum.
- Skapa vinnuumhverfi sem laðar að nýliða og stuðlar að því að starfsfólk haldist í starfi.
- Tryggja rétt til vandaðrar kennaramenntunar og stöðugrar starfsþróunar.
- Fást við áskoranir á sviði jafnréttismála innan kennarastéttarinnar.
- Stuðla að virkri og faglegri umræðu.
- Valdefla kennarastéttina.
Ásmundur Einar hefur kynnt sér tíu atriði ETUCE og segir meðal annars að eitt af því sem þurfi að nálgast betur sé hvernig stuðlað verði að vinnuumhverfi sem laðar að nýja kennara og sé þess eðlis að kennarar haldist í starfi. Ráðherra segist bera ómælda virðingu fyrir þeim sem vinna með börnum og hvetur kennara til að halda áfram sínum góðu störfum og ekki gleyma að segja frá því sem vel er gert.
Lesa meira um lykilatriðin tíu og hvað býr að baki þeim.
Tökum þátt!
Kennarasambandið hvetur félagsfólk til að taka þátt í umræðum um starfið sitt, leggja orð í belg og segja frá sínu eigin starfi. Samfélagsmiðlarnir eru góður vettvangur fyrir slíkt og mælst er til þess að færslur séu merktar með myllumerkinu #kennaravikan.
Fleiri þættir Kennaravarpsins eru væntanlegir á næstu dögum. Ekki missa af!