Ráðherra boðar breytingar á rekstri framhaldsskóla

Fréttir|17. september 2025

Áformaðar eru kerfisbreytingar á rekstri opinberra framhaldsskóla. Formenn KÍ, FF og FS fengu fyrst veður af málinu á fundi með Guðmundi Inga Kristinssyni, barna- og menntamálaráðherra, eftir hádegi í dag. Formennirnir gerðu kröfu um að mál þetta verði unnið í náinni samvinnu við Kennarasambandið.

Mennta- og barnamálaráðuneytið kynnti í dag áform um kerfisbreytingar á rekstri opinberra framhaldsskóla. Stefnt er að því að stofna fjórar til sex svæðisskrifstofur sem tækju við stjórnsýsluhluta stjórnunar skólanna og ýmissi annarri þjónustu.

Ráðuneytið tekur fram að skólar verði ekki lagðir niður eða sameinaðir, heldur haldi sínum nöfnum og sérkennum og að fagleg stjórnun verði áfram hjá hverjum og einum þeirra; mannauðs- og rekstrarmál muni hins vegar færast yfir til nýju skrifstofanna.

Ráðuneytið tilgreinir að ítarlegt samráð muni fara fram við Kennarasamband Íslands, stjórnendur skólanna, kennara, nemendur og annað starfsfólk skólanna í þessu verkefni. Þau halda því fram að breytingin muni ekki hafa bein áhrif á heildarkjarasamning framhaldsskólakennara en gert er ráð fyrir að stofnanasamningar skólanna verði teknir til endurskoðunar.

Formenn KÍ, FF og FS voru boðaðir á fund ráðherra í dag þar sem þeir fengu fyrst veður af þessum áformum. Á sama tíma var einnig fundað með skólameisturum ríkisskólanna sem fengu sambærilega kynningu. Á fundinum lögðu formennirnir sérstaka áherslu á að framhaldsskólastigið hefur um langa hríð verið vanfjármagnað og að við hugsanlegar breytingar verði að koma nýtt fjármagn. Sömuleiðis gerðu formennirnir kröfu um að ráðuneytið vinni þetta mál í náinni samvinnu við Kennarasambandið og þar verða hagsmunir félagsfólks að sjálfsögðu í algerum forgrunni. Í máli ráðherra kom skýrt fram að hér yrði um aukið fjármagn að ræða og að samtal við Kennarasambandið væri ein forsendan fyrir því að verkefnið tækist.

Ráðuneytið hefur sett saman sérstaka upplýsingasíðu um þessi áform.